Víkurfréttir - 10.03.2005, Side 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
stuttar
F R É T T I R
8 Listasafn Reykjanesbæjar:
8 Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna:
Landssamband slökkvi-liðs og sjúkraflutninga-manna gengst fyrir ár-
lega eldvarnarátaki en það fer
fram í síðustu viku nóvember
á hverju ári, þetta átak er gert
í samvinnu við slökkviliðin og
skólana um allt land þannig
að mjög margir aðilar koma
að þessu.
LSS veitir verðlaun og er dregið
úr réttum svörum sem ber-
ast skrifstofu LSS og síðan sjá
slökkviliðsmenn um að afhenda
verðlaunin. Að þessu sinni fengu
23 börn víðsvegar um landið
verðlaun og þar af tvö börn úr
Reykjanesbæ og bæði voru þau í
Heiðarskóla.
Þau heita Bríet Sif Hinriksdóttir,
Heiðarbraut 7D, og Einar Ingi
Kristmundsson, Suðurgarði 3.
Þau hlutu vegleg verðlaun sem
samanstóðu af viðurkenningar-
skjali, ferðageislaspilara og reyk-
skynjara.
Fjörutíu og átta ára gam-all maður var dæmdur í héraðsdómi Reykjanes
til að greiða 5000 króna sekt
og 80.000 króna sakarkostnað.
Máls at vik voru þannig að
mánudaginn 12. júlí 2004 voru
lögreglumenn við umferðar-
eftirlit á Reykjanesbrautinni.
Bifreið sem ákærði var í, var
fyrir aftan lögreglubílinn og
var bifreiðinni ekið of nálægt
lögreglubifreiðinni og sögð-
ust lögreglumenn ekki hafa
séð framljós bifreiðarinnar í
baksýnisspeglum á löngum
kafla. Miðað við mælingar lög-
reglunnar reyndist bilið vera
um þrír metrar. Ákærði brást
ókvæða við og taldi bilið vera
meira og að hann hafi verið að
bíða færis á að taka framúr við
góðar aðstæður. Lögreglubif-
reiðinni var ekið á 86 km. hraða
samkvæmt ratsjá lögreglubif-
reiðinnar. Í ákæru var talið að
háttsemi ákærða varðaði við
3. mgr. 14. gr. umferðalaga nr.
50/1987.
Ákærði taldi að bilið hafi verið
meira en 3 metrar og kvaðst
hann ekki geta dregið úr hrað-
anum og breikkað bilið þar sem
næstu bifreið fyrir aftan bifreið
hans hafi verið ekið mjög nálægt
honum.
Lokið er endurbótum á hliðum að varnarstöð-inni á Keflavíkurflug-
velli sem uppfylla nýjustu ör-
yggiskröfur við eftirlit með
umferð inn og út af varnar-
svæðinu.
Framkvæmdirnar fólu í sér
byggingu nýrra varðskýla og
vegabréfaskrifstofu auk breyt-
inga á girðingu og lagningu bif-
reiðastæða. Verkið var unnið af
Íslenskum aðalverktökum og
nam kostnaður við verkið um
132 milljónum króna.
Öll almenn umferð er sem fyrr
um aðalhliðið við Hafnaveg
sem er opið allan sólarhring-
inn en umferð flutningabif-
reiða verður um Grænáshlið
ofan Njarð vík ur. Verð ur
Grænáshlið lokað almennri
umferð nema á tímabilinu 7:15
til 8:15 á morgnana fimm daga
vikunnar. Afgreiðsla flutninga-
bifreiða verður opin frá 8:30 til
15:30 virka daga.
Vegabréfastofan við aðalhliðið
verður opin frá kl. 8:00 til
16:30 virka daga og verða að-
gangsheimildir og vegabréf
einungis gefin út þar á þeim
tíma. Utan opnunartíma vega-
bréfaskrifstofu fer afgreiðsla
aðgangsheimilda fram í aðal-
hliði og þar munu flutningabif-
reiðar einnig hafa aðgang eftir
lokun Grænáshliðs.
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli,
sagði í samtali við Víkurfréttir
að nýja starfsaðstaðan breytti
miklu fyrir lögregluna á Kefla-
víkurflugvelli. Verið væri að
uppfylla kröfur nútímans. Með
nýju hliði er aðgengi að varnar-
stöðinni ekki eins greitt, þ.e.
flugvöllurinn væri lokaðri en
áður. Jóhann vildi ekki meina
að meiri ógn stæði að Keflavík-
urflugvelli, en völlurinn þurfi
að uppfylla kröfur um öryggi
herstöðva. Kostnaður Íslend-
inga er enginn af þessari fram-
kvæmd.
Næstu skref í öryggismálum
Keflavíkurflugvallar er að að-
skilja það svæði sem verktakar
hafa frá annarri starfsemi með
girðingu. Ekki er ljóst hvenær
ráðist verður í það verkefni.
Það er hugsað til framtíðar en
byrjað verður að girða svæðið
um leið og fjárveiting fæst til
þess. Óprúttnir einstak-lingar voru á ferð í vikunni og stálu
raf geym um
ú r v ö r u b í l
s e m s t ó ð á
Fitja bakka.
F y r s t v a r
stolið einum
s n e m m a í
vikunni og svo í gær var
ann ar tek inn ófrjálsri
hendi. Rafgeymarnir eru
nýir og kosta samtals 50-
60 þúsund. Ef einhver getur
gefið upplýsingar um málið
er hann beðinn um að hafa
samband við lögreglu.
Krakkar úr Heiðar-
skóla fá verðlaun
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, heldur opinn stjórnmálafund í kvöld, 10. mars kl. 20.00 í Listasafni Reykjanes-
bæjar, DUUS húsum.
Á fundinum mun Halldór fara vítt og breitt yfir
stöðu stjórnmálanna í dag og fundarmönnum gef-
ast kostur á að leggja fyrir hann spurningar. Búast
má við fjölmenni þar sem fjölmörg mál brenna á
Suðurnesjamönnum.
Forsætisráðherra á opnum
fundi í Reykjanesbæ í kvöld
Nýtt 132 milljóna kr. hlið opnað
Nokkrir farsímaeig-end ur eiga von á reikningi upp á þús-
undir króna aukalega fyrir
að hafa hringt eða tekið á
móti símtölum í Keflavík
á föstudaginn. Allt á þetta
fólk það sameiginlegt að
hafa verið við akstur öku-
tækis á meðan það talaði í
símann og látið lögregluna
koma sér í opna skjöldu. Lög-
reglan hafði komið sér fyrir
að rólegum stað við Hafnar-
götuna og þar óku margir í
fasið á henni með aðra hönd
á stýri en hina með símann
upp að eyranu.
Nokkur
rándýr
símtöl
Rafgeymum
stolið úr vörubíl
Neitaði að
borga 5000 kr.
- gert að greiða
85.000 kr.
8 Varnarstöðin á Keflavíkurflugvelli:
vf.is
Fréttavefurinn