Víkurfréttir - 10.03.2005, Blaðsíða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Björgunarsveitin Þorbjörn, Grindavík:
Grindvískafréttasíðan
U m s j ó n : Þ o r s t e i n n G u n n a r K r i s t j á n s s o n
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík fékk á dögunum gef-ins hágæða Canon stafræna myndavél til afnota útbúna með vatnsheldu húsi utanum vélina. Ljósmyndabúnað-
urinn kemur sem gjöf frá Nýherja hf. Myndavélin mun nýtast
vel í starfi björgunarsveitarinnar. Á myndinni sjást þeir Hafþór
Helgasson og Daníel Gestur Tryggvasson meðlimir úr Björgun-
arsveitinni Þorbirni taka við vélinni. Fulltrúi gefenda er Tobías
Sveinbjörnsson.
Nýherji gefur Þorbirni
myndarlega gjöf
Íþróttamaður Grinda-víkur var valinn Páll Axel Vilbergsson, körfuknatt-
leiksmaður. Í öðru sæti í val-
inu var Guðjón Hauksson
pílukastari og í þriðja var
Sinisa Valdimar Kekic, knatt-
spyrnumaður. Útnefningin
fór fram í Saltfisksetrinu á
mánudaginn.
Þá var Páll Guðmundsson og
Bogi Rafn Einarsson heiðraðir
fyrir fyrstu landsleiki sína í
knatt spyrnu. Þar að auki
fengu 8. og 9. flokkar stúlkna
í körfubolta viðurkenningu
fyrir frábæran árangur þar
sem þær urðu Íslands- og bik-
armeistarar. 3. flokkur kvenna
í knattspyrnu var einnig heiðr-
aður fyrir Íslandsmeistaratign
síðastliðið sumar.
Samkvæmt ársreikningi Samherja hf. fyrir árið 2004, sem stjórn félags-
ins samþykkti á stjórnarfundi
sínum í dag, nam hagnaður
Samherja hf. 2.914 milljónum
króna samanborið við 1.067
milljóna króna hagnað árið
áður. Hins veg ar dróg ust
tekjur landvinnslu saman um
676 milljónir króna, sem að
stærstum hluta má rekja til
samdráttar í vinnslu uppsjávar-
afurða í fiskimjölsverksmiðju
félagsins í Grindavík en loðnu-
vertíðin brást að mestu. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
Samherja hf.
Þá segir einnig: Rekstrarhorfur í
sjávarútvegi eru ekki góðar um
þessar mundir. Hátt gengi ís-
lensku krónunnar hefur veruleg
áhrif á afkomu sjávarútvegsfyr-
irtækja og þá sérstaklega á af-
komu landvinnslu. Allar líkur
benda til þess að gengi krón-
unnar haldist áfram sterkt og
ekki er líklegt að hækkun verði
á afurðaverði næstu misserin.
Félagið hefur þegar gripið til
ýmissa ráðstafana vegna þessa.
Í byrjun febrúar sl. varð bruni
í fiskimjölsverksmiðju félagsins
í Grindavík, sem veruleg áhrif
hef ur á af komu fé lags ins á
fyrstu mánuðum ársins 2005.
Félagið var tryggt fyrir tjóninu
bæði með bruna- og rekstrar-
stöðvunartryggingu. Rekstur
fjölveiðiskipanna Baldvins Þor-
steinssonar EA og Vilhelms Þor-
steinssonar EA hefur gengið vel
fyrstu mánuði ársins og var afla-
verðmæti þeirra samtals um 500
milljónir króna á fyrstu tveimur
mánuðum ársins.
Meist ar a flokk ur Grindavíkur í knatt-spyrnu heldur sitt
árlega herrakvöld í Salthús-
inu á föstudaginn og opnar
húsið kl. 19. Kvöldið þykir
hafa tekist afar vel á undan-
förnum árum og er nú unnið
hörðum höndum að því af
leikmönnum meistaraflokks
að gera enn betur í ár.
Aðalræðumaður kvöldsins
verður hinn sí-gildi Flosi
Ólafsson og veislustjóri hinn
sí-þreytti Eysteinn Hauksson.
Eitthvað verður um forvitni-
legar kvikmyndasýningar,
happdrættið verður óvenju
glæsilegt og uppboðið vænt-
anlega fjörugra en nokkru
sinni fyrr, þar sem m.a.
verður bókstaflega slegist um
áritaðar treyjur nokkurra af
mestu knattspyrnusnillingum
landsins.
Leynigestur er væntanlegur
og auk þess nokkur mögnuð
frumsamin skemmtiatriði.
Ekki er þó reiknað með að
Gummi Bjarna fari úr að ofan
að þessu sinni. Miðaverð fyrir
þessa skemmtun og máltíð
eins og þær gerast bestar á
Salthúsinu er kr. 3.900.- og
nálgast má miða í vallarhús-
inu (því gula) í síma 426-
8605 eða hjá leikmönnum
meistaraflokks. Miðum fer
fækkandi, segir í tilkynningu
frá Grindvíkingum.
Öll um lóð um sem auglýstar hafa verið í nýju hverfi ofan og
austan við verslunarmiðstöð-
ina í Grindavík, svokölluðu
Hópshverfi, var úthlutað á
síðasta fundi skipulags- og
bygginganefndar Grinda-
víkur.
Eftir er að auglýsa um það
bil helming lóða í hverfinu,
sem eru einbýlishúsalóðir, og
verður það gert fljótlega. Á
vef Grindavíkurbæjar segir
að ásókn hafi verið það mikil
í lóðirnar að draga hafi þurft
um sumar, slík var ásóknin.
Á fundi skipulags og bygging-
arnefndar var einnig var sam-
þykkt breyting á skipulagi
svokallaðs Sjómannagarðs
og úthlutað tveimur lóðum
þar. Til athugunar er breyt-
ing í Lautarhverfi, þ.e.a.s. frá
raðhúsum í tveggja hæða
fjölbýli. Þá voru samþykktar
teikningar af nýjum leikskóla
í Laut ar hverfi og er þess
skammt að bíða að útboð fari
fram ásamt gatnagerð.
Herrakvöld
í Grindavík
Grindvíkingar
á lóðaríi!
Páll Axel íþróttamaður
Grindavíkur 2004
Tekjur af landvinnslu í
Grindavík drógust saman
um 676 milljónir kr.
8 Samherji hf.:
stuttar
F R É T T I R