Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.03.2005, Síða 22

Víkurfréttir - 10.03.2005, Síða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Dr ek kið 1 Leverkusen - Hertha Berlin 1 X 1 2 2 Wigan - Millwall 1 1 3 Ipswich - Nott. Forrest 1 1 4 Crewe - Sunderland 2 1 2 5 Preston - Wolves 1 1 6 Stoke - Sheff. Utd. 1 X 2 1 2 7 Reading - West Ham 1 X 2 1 8 Leeds - Gillingham 1 1 9 Q.P.R. - Watford 1 1 X 2 10 Burnley - Rotherham 1 1 11 Plymouth - Brighton 1 X 1 12 Coventry - Cardiff 1 1 X 2 13 Hartlepool - Tranmere 1 2 1 Firmakeppni Keflavíkur Seðill vikunnar Landsbankinn sló Byko út í síðustu viku en lokastaðan var 8 réttir á móti 5 í erfiðum seðli. Í næstu viku eru það Hitaveita Suðurnesja og Viðhaldsdeild Varnarliðsins sem eigast við. Sex lið frá Suð ur nesj um spiluðu bikarúrslitaleik í ÍM Grafarvogi um helg- ina. Þrjú Suðurnesjalið lönduðu titlum en hin þrjú biðu í lægri hlut að þessu sinni. 9. flokkur kvenna úr Grindavík vann glæsilegan sigur á Haukum 49-41 þar sem Íris Sverrisdóttir var val in maður leiks ins. 10. flokkur karla úr Njarðvík vann Snæfell örugglega 75-49 þar sem Hjörtur Rafn Einarsson var valinn maður leiksins. 11. flokkur karla úr Njarðvík er nánast skipaður af leikmönnum 10. flokks og gerðu þeir sér lítið fyrir og sigruðu Val 57-49 þar sem Ragnar Ólafsson var maður leiksins. Þetta er gríð- arlega góður árangur hjá Njarðvík- urpiltum og er hann sigursælasti flokkur UMFN frá upphafi. Þrjú bikargull til Suðurnesja Nýju Njarðvíkurkanarnir til í slaginn Grindavíkurstúlkur hrósuðu fræknum sigri á Haukum í 9. flokki. Strákarnir í 10. flokki Njarðvíkur hafa haft mikla yfirburði í sínum flokki undanfarin ár. Á myndina vantar þá Þorgils og Jakob sem kepptu með þeim í 11. flokki. Keflvíkingar lentu í 2. sæti í 9. flokki. Þeir töpuðu gegn KR. Þeir Doug Wrenn og Alvin Snow, nýjir erlendir leikmenn Njarðvíkur-liðsins í Intersport-deildinni, voru í fyrsta sinn saman á æfingu liðsins á þriðjudag. Þeir komu til liðsins í stað þeirra Anthony Lackey og Matt Sayman sem var sagt upp störfum í síðustu viku. Wrenn og Snow líst vel á framhaldið og stefna ótrauðir að því markmiði að landa Íslandsmeistaratitli á meðan veru þeirra stendur hérlendis. „Aðstaðan hér er frábær og sömuleiðis strákarnir, þetta er frábær bær og aldrei hefði mig grunað að Ísland væri svo fallegt,” sagði Alvin Snow í samtali við Víkurfréttir. „Við vissum ekki við hverju væri að búast þegar við fyrst komum hingað en það hafa allir verið okkur mjög góðir og ég er mjög ánægður með hlutina hér, það eina sem nú vantar er meistara- titill og þá er rúsínan í pylsuendanum komin,” sagði Doug Wrenn. Báðir gera þeir Snow og Wrenn sér grein fyrir því að mikils verður af þeim krafist í úrslitakeppninni og sögðu þeir í spjallinu að kröfurnar um árangur væru af hinu góða. Snow og Wrenn þreyta frumraun sína í Ljónagryfjunni annað kvöld þegar Njarðvíkingar taka á móti ÍR í 8-liða úrslitum Intersport-deildarinnar.VF-mynd/Jón Björn Óskar Pétursson, hinn ungi og efni legi mark vörð ur Grindvíkinga, hefur fengið samningstilboð frá enska 1. deildarliðinu Ipswich. Full- trúi frá Ipswich var hjá liðinu í nokkurn tíma og leist vel á piltinn, sem hefur vakið verð- skuldaða athygli utan land- steinana undanfarin misseri. Óskar og faðir hans halda út um miðjan apríl til að kynna sér aðstæður og verður tekin lokaákvörðun um málið út frá því. Ipswich býður Óskari samning Ljónamenn kláruðu síðasta leik sinn í 2. deildinni með stæl og unnu b-lið Vals- manna 87-108 á sunnudag. Ljónin enduðu í fyrsta sæti í sínum riðli í 2. deild en hafa ákveðið að fara ekki til Vest- mannaeyja um helgina þar sem úrslitakeppnin í 2. deild fer fram. Stjórn og leikmenn Ljónanna voru samstíga um að fara ekki þar sem þeir töldu að það væri ekki grund- völlur fyrir liðið að fara upp um deild að sinni. Ljónin ekki í úr- slitakeppnina Einar Guðmundsson og Guð- rún Halldórsdóttir sigruðu á Lyfjupúttmótinu í Röstinni um síðustu helgi. Guðrún fór á 67 höggum og Einar á 65. Aðeins mættu 29 til keppni og eru áhugasamir hvattir til að láta sjá sig, en salurinn er opinn frá mánudögum til föstudaga. Einar og Guðrún sigra í Lyfjumóti Aðalfundur Sunddeildar UMFN verður haldinn í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur kl. 20.00 þann 16. mars. Aðalfundur sunddeildar Þórarinn Kristjánsson lék ekki með Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni um síðustu helgi, en hann er meiddur á ökkla eftir óhapp á æfingu. Hann hafði leikið 3 leiki með aðalliðinu og auk þess átt góða innkomu með varalið- inu. Þórarinn meiddur Molar

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.