Víkurfréttir - 10.03.2005, Síða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Fríður hópur kvenna í Ladies circle í Reykjanesbæ gerði sér glaðan dag í vikunni þegar þær gæddu sér á sjávarfangi frá Saltveri. Að
því loknu var ferðinni heitið í höfuðborgina að höfuðstöðvum Ríkisútvarpsins í Efstaleitinu þar sem Adolf Ingi Erlingsson, íþróttafrétta-
maður, tók á móti þeim í skoðunarferð um húsið. Að lokum fóru þessar hressu konur í snyrtivöruheildsöluna Forval þar sem þær fengu
að vita allan sannleikann um nýju sumarlitina frá Chanel. Ladies circle konur halda fund einu sinni í mánuði og skemmta sér alltaf kon-
unglega. Í Reykjanesbæ eru tveir klúbbar starfandi en alls eru klúbbarnir 10 á Íslandi. Þær vilja koma á framfæri þakklæti til Hertz sem
lánaði þeim hópbifreið til að flytja hópinn á milli staða.
Rat sjár stöðv um Rat-sjárstofnunar verður fjar stýrt frá rat sjár-
stöðinni á Miðnesheiði frá og
með haustinu 2007. Ákveðið
hefur verið að auka sjálfvirkni
í rekstri ratsjárstöðva Ratsjár-
stofnunar þannig að í staðinn
fyrir mannaða sólarhrings-
vakt í öllum fjórum stöðvum
stofnunarinnar verður ratsjár-
stöðvunum á Bolafjalli, Gunn-
ólfsvíkurfjalli og á Stokksnesi í
framtíðinni fjarstýrt frá ratsjár-
stöðinni á Miðnesheiði. Gert er
ráð fyrir að sjálfvirkni í rekstri
stöðvanna aukist í áföngum og
verði að fullu komin til fram-
kvæmda haustið 2007.
Á næstu mán uð um verð ur
unnið að því að koma upp nauð-
synlegum búnaði þannig að
hægt verði að tengja stöðvarnar
við stöðina á Miðnesheiði. Þessi
breyting mun hafa í för með sér
uppstokkun og fækkun í starfs-
liði Ratsjárstofnunar.
Í dag starfa 79 manns hjá Rat-
sjárstofnun en þar af eru 32
starfsmenn á sólarhringsvöktum
í ratsjárstöðvunum fjórum. Ekki
liggur endanlega fyrir hver starfs-
mannafjöldi Ratsjárstofnunar
verður eftir að skipulagsbreyt-
ingin er að fullu komin til fram-
kvæmda og ræðst það meðal
annars af endanlegri útfærslu
kerfisins. Ratsjárstofnun rekur
ratsjárstöðvar á Miðnesheiði,
Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli og
á Stokksnesi auk hugbúnaðar-
sviðs og birgðastöðvar á Kefla-
víkurflugvelli og skrifstofu í
Reykjavík.
Upplýsingar sem Ratsjárstofnun
aflar um flugumferð yfir Íslandi
og umhverfis landið eru nýttar
af Varnarliðinu, NATO og Flug-
málastjórn Ís lands. Rekstur
ratsjárstöðvanna er al far ið
greiddur af bandarískum stjórn-
völdum samkvæmt samningi
sem gerður var árið 1987 en þá
tóku Íslendingar yfir rekstur
ratsjárstöðva Varnarliðsins á Ís-
landi.
Á liðnum árum hefur sjálfvirkni
í rekstri bandarískra ratsjárkerfa
verið aukin til muna og í ljósi
þess að stöðvarnar hér á landi
eru byggðar og reknar sam-
kvæmt bandarískum stöðlum
er talið eðlilegt að rekstur rat-
sjárstöðvanna hér á landi verði
aðlagaðar að þeim tæknilegu
breytingum sem þar hafa orðið.
Komin er liðlega 10 ára reynsla
af rekstri fjarstýrðra ratsjár-
stöðva víða í vestur Evrópu, í
Bandaríkjunum og Kanada og
hafa þær gefist vel.
LADIES CIRCLE Í FYRIRTÆKJAKYNNINGU
Ratsjárstöðvar mannlausar og
þeim fjarstýrt frá Miðnesheiði
8 Loftvarnir Íslands - Augað í norðri:
stuttar
F R É T T I R
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi mann á mánudag til tveggja og
hálfs árs fangelsisvistar fyrir gróf og ítrekuð kynferðisbrot gegn
stjúpdóttur sinni. Áttu brotin sér stað á þrettán ára tímabili, frá því
stúlkan var sjö ára fram til tvítugs. Komst dómurinn að því að mað-
urinn ætti sér engar málsbætur enda hafi hann gróflega misnotað
traust stúlkunnar og valdið margvíslegum sálrænum erfiðleikum
með gjörðum sínum. Stúlkunni var dæmd rúm milljón króna í
skaðabætur.
Fimmtudaginn 17. mars kl.20:00
verður opinn fræðslufundur um
lesblindu skv. kenningum Ron
Davis.
Foreldrar og aðrir áhugsamir
aðilar velkomnir, enginn að-
gangseyrir. Nánari upplýsingar
má finna á vefsíðunni www.
lesblind.com eða með því að
senda fyrirspurnir í netfangið
Lesblind@lesblind.is.
Fundurinn verður haldinn í A-
sal á Fræðsluskrifstofunni, Hafn-
argötu 57
Kolbeinn Sigurjónsson frá Les-
blind.com heldur fundinn.
Fundur um lesblindu
Ragnheiður Ólafsdótt ir,
teiknimiðill, ráðgjafi, áru-
lesari og lesari hefur störf
17. mars ásamt Hermundi
Rósinkrans talnaspekingi
og miðli. Þá mun Þórunn
Maggý miðill hefja störf
16. mars. Upplýsingar og
tímapantanir eru í símum
421-3348 og 866-0621.
Ragnheiður
árulesari hjá
Sálarrann-
sóknar-
félaginu
Dæmdur fyrir gróft kynferðisbrot