Víkurfréttir - 10.03.2005, Síða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
KA L L I N N F Ó R H E L D U R B E T U R u n d i r
niðurskurðar-hnífinn hjá ritstjórninni og var bara
hent inn á netútgáfuna. Það virðist ekki hafa
komið að sök, því önnur eins viðbrögð hefur
Kallinn sjaldan fengið. Fyrir þá sem ekki lásu
vefútgáfuna ætlar Kallinn að nefna hér hluta
af síðasta pistli, sem tengist sjávarútvegi og
fiskvinnslu
KALLINN ER ÁHUGASAMUR um sjávarút-
veginn og fer oft á bryggjurnar til að ræða við
karlana þegar þeir koma að landi, annað hvort
með nokkra sporða í kassa eða kjaftfulla báta af
fallegum fiski. Það hefur svo sannarlega verið
fiskistund hjá trillukörlunum síðustu daga og
Kallinn hefur notið þess að fara með höldupok-
ann á bryggjuna og fá einn og einn þorsk eða ýsu
í soðið.
FISKMARKAÐIR VORU FRÁBÆRT verkfæri til
að tryggja sjómönnum og útgerðum rétt og sann-
gjarnt verð fyrir aflann. Nú heyrir Kallinn það að
fjölmargir kaupendur taki sig saman og hafi kaup-
anda fyrir sig á markaði, sem bjóði eitt verð fyrir
marga aðila. Þetta fyrirkomulag getur vart talist
gott og boðin eru trúlega ekki fjörug, þegar tveir
aðilar skipta með sér boðum í fiskinn. Kallinn
hefur ekki sannreynt þetta en skorar á blaðamenn
að kafa í málið. Er verið að halda fiskverði niðri
með óeðlilegum hætti, eða er þetta bara allt í lagi?
Kallinn spyr.
EKKI STÓÐ Á VIÐBRÖGÐUM og þessi bárust
m.a. til Kallsins um tölvupóstinn: „Sæll Kallinn,
vegna pistils sem þú skrifar á vf.is er rétt að eftir-
farandi komi fram. Fiskmarkaðir eru verkfæri til
að tryggja seljendum rétt verð. Varðandi það að
kaupendur taki sig saman og að aðeins séu tveir
aðilar sem skipta með sér boðum er ekki rétt.
Íslandsmarkaður sendir í hverri viku 150-200
kaupendum reikninga fyrir fiskkaupum. Í upp-
boðskerfi Íslandsmarkaðar er sá möguleiki fyrir
hendi að einn aðili geti verslað fyrir fleiri en fáir
nýta sér það. Í framhaldi af yfirlýstri vanþekkingu
Karlsins á starfssemi fiskmarkaða er honum hér
með boðið í heimsókn til Íslandsmarkaðar að Iða-
völlum 7 í Reykjanesbæ. Uppboðin hefjast kl. 13
alla virka daga.
Vertu velkominn Kallinn.
Kveðja
Fh. ÍSM
Bjarni Áskelsson.“
KALLINN HVETUR FRÉTTAMENN til að skoða
málið en af þeim póstum sem honum hafa borist
og af umræðunni á kajanum að dæma þá skynjar
Kallinn það að ekki eru menn á eitt sáttir um það
hvort sanngjarnt verð sé að fást fyrir fiskinn.
ÞAÐ ERU FLEIRI MÁLEFNI sem brenna
á Suðurnesjafólki og eftirfarandi bréf barst til
Kallsins fyrir fáeinum dögum: „Kæri Kall mig
langar nú að biðja þig að ræða um þessa blessuðu
SKURÐSTOFU hérna á sjúkrahúsinu í Keflavík.
Það er ekki nógu gott hvernig þessum opnunar-
tíma hennar er háttað. Hvað eru 40 milljónir á
móti einu eða tveimur mannslífum. Sjálfur lenti
ég nú í þeirri raun að þurfa að fara með sjúkrabíl
í bæinn með unnustu mína sem var barnshafandi
eftir að hún datt. Það stóð til að við ættum að fara
á sjúkrahúsið í Keflavík en eftir að læknir kom
um borð í sjúkrabílinn þá var ákveðið að fara
á Landspítalann við Hringbraut með forgangi.
Mér fannst þessi tími vera heillengi að líða þó
það hefði ekki verið nema hálftíma ferð. En hvað
er hálftími í lífshættu? Það er mikill tími. Hvers
vegna tekur þetta bæjarfelag ekki höndum saman
og þrýstir á heilbrigðiskerfið og sjálfan heilbrigð-
isráðherrann. Ég vil því biðja þig, kæri Kall, um
að fjalla um þessi mál í næsta pistli þínum, þar
sem að megnið af þeim sem lesa Víkurféttir lesa
pistlana þína.
Með fyrirfram þökk, Georg Sigurðsson.“
KALLINN ER SAMMÁLA því að Suðurnesjamenn
þurfa að þrýsta á ráðherra heilbrigðismála
til að fá enn betri þjónustu á skurðstofu
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Kallinn man
eftir viðtali við Konráð Lúðvíksson, yfirlækni,
þar sem hann lýsir því að hann vilji flytja inn
sjúklinga að utan, sem muni kaupa þjónustu af
HSS og þar með skurðstofunni. Það þarf ekki að
horfa nema til stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík
til að sjá biðlista, sem skurðstofan í Keflavík gæti
stytt og um leið yðri hún mönnuð þannig að
grípa mætti til hennar 24 tíma á sólarhring, alla
daga vikunnar.
ENN BÍÐA NOKKUR BRÉF afgreiðslu Kallsins,
m.a. um mannaráðningar hjá fyrirtækjum og þá
sjálfsögðu kurteysi að svara öllum umsækjendum,
hvort sem þeir eru ráðnir til starfa eða ekki.
MINNI Á PÓSTINN: kallinn@vf.is fyrir ábend-
ingar og athugasemdir.
Kveðja, Kallinn@vf.is
Þorskur, ýsa og
skurðstofan okkar!
8 Kallinn á kassanum
Það hefur svo sannarlega verið fiskistund hjá trillukörlunum síðustu daga og
Kallinn hefur notið þess að fara með höldupokann á bryggjuna og fá einn og einn
þorsk eða ýsu í soðið. Kallinn hefur hins vegar áhyggjur af því að sjómennirnir
séu ekki að fá sanngjarnt verð fyrir fiskinn. Allt um það í pistli Kallsins hér að
neðan. Myndin er úr löndun Hópsnes GK í Grindavík á dögunum.
ÞESSI VELTANDI
VESTFIRÐINGUR
VERÐUR 27 ÁRA UM
HELGINA. HVER VEIT
NEMA HANN BLÁSI TIL
VEISLU OG GLAMRI Á
STRENGJABRETTIÐ?
HAMINGJUÓSKIR FRÁ
VINNUFÉLÖGUNUM.