Víkurfréttir - 10.03.2005, Blaðsíða 28
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Aðstandendur geðsjúkra, sem hafa hist vikulega í Sjálfs bjarg ar hús-
inu undanfarið, vilja koma á
framfæri innilegu þakklæti
til þeirra sem hafa gert þeim
kleift að koma saman í húsinu
á hverjum mánudegi síðan í
nóvember, þeim að kostnaðar-
lausu.
Viðmælandi Víkurfrétta sagði
fundina veita ólýsanlegan stuðn-
ing og hvetur aðra sem eru í
sömu aðstöðu að mæta því það
eru margir sem þurfi á slíkum
stuðningi að halda.
Fundirnir eru, eins og áður
sagði, í Sjálfsbjargarhúsinu í
Njarðvík kl. 20 öll mánudags-
kvöld.
Þakklátir aðstandendur geðsjúkra
Skátafélagið Heiðabúar mun standa fyr ir sölu fermingarskeyta í ár líkt
og mörg undanfarin ár, en sala
slíkra skeyta hefur verið ein
af helstu fjáröflunarleiðum fé-
lagsins í gegnum tíðina.
Boðið er upp á fimm tegundir
skátaskeyta og getur fólk valið
sér mismunandi texta í flest
skeytin. Öll skeyti eru borin út
til fermingarbarna á fermingar-
daginn sjálfan, og kosta kr. 500,-
Opið er í skeytasölunni í Skáta-
húsinu að Hringbraut 101 í
Keflavík frá 11:00 til 19:00 og
pöntunarsíminn er 421 3190.
Þá daga sem fermt er í Garði
og Sandgerði er opið í skátahús-
unum þar milli 11:00 og 18:00.
Skátahúsið í Garði er staðsett að
Heiðarbraut 4 og Skátahúsið í
Sandgerði er við Grunnskólinn
í Sandgerði.
Meðfylgjandi er mynd af nýjasta
skátaskeyti Heiðabúa, það var
teiknað af Stefáni Jónssyni og
sýnir svipmyndir af merkum
stöðum í sveitarfélaginu Garði.
Skeytasala Heiðabúa
Þingmenn á ferð í Reykjanesbæ
Allsherjarnefnd Alþingis lagði leið sína til Reykjanesbæjar á dögunum
þar sem þingmenn kynntu sér starfsemi lögreglunnar í Keflavík og
sýslumannsskrifstofunnar. Ekki voru allir ókunnir hér suðurfrá því
að formaður nefndarinnar, Bjarni Benediktsson, starfaði sem fulltrúi
hjá sýslumanni árið 1995 eftir að hann útskrifaðist úr laganámi.
Þingmenn voru leiddir um lögreglustöðina og fengu að sjá aðstöðuna
og ýmsan búnað sem lögreglan hefur yfir að ráða áður en þeim var
boðið upp á kaffi og með því í sal lögreglunnar.
Þingmenn skoða hin ýmsu vopn sem lögreglan
hefur gert upptæk undanfarið.
Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks
frá Suðurlandi, bregður á leik.