Víkurfréttir - 26.02.2005, Page 21
VÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 2005 I 21
ÚTTEKT/FASTEIGNAMARKAÐURINN Í REYKJANESBÆ
PARHÚS
Hafnarfjörður kr. 32.500.000,-
Reykjanesbær kr. 21.300.000,-
Mismunur: kr. 11.200.000,-
Íbúðaverð í Tjarnarhverfi fjórðungi
ódýrara en á stór-Reykjavíkursvæðinu
„Verð íbúða í hinu nýja Tjarnarhverfi í Innri-Njarðvík verður um
70-75% af heildarverði íbúða á stór-Reykjavíkursvæðinu,” segir Hall-
dór Ragnarsson framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Húsaness
ehf. sem hefur fengið leyfi til byggingar 120 íbúða í Tjarnarhverfi.
Að sögn Halldórs er fyrirtækið að byggja 24 íbúðir sem tilbúnar
verða í sumar og haust og á vormánuðum verður hafist handa við
byggingu 40 íbúða á svæðinu. Alls verður fyrirtækið því með 64
íbúðir í byggingu í sumar og haust. „Við ætlum að sjá til með það
hvort við hefjumst handa við frekari byggingar á svæðinu strax eða
hvort við bíðum eitthvað. Markaðurinn mun svara því,” segir Hall-
dór en mikið hefur verið spurt um íbúðir á svæðinu að hans sögn.