Víkurfréttir - 31.03.2005, Qupperneq 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Nýtt á vef Víkurfrétta:2
F R É T T I R
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
: B
JA
RN
I H
AL
LD
Ó
R
LÚ
Ð
VÍ
KS
SO
N
Á dögunum fóru lögreglu-menn í húsleit í heima-húsi í Höfn um vegna
gruns um landaframleiðslu.
Fundust þar um 50 lítrar af
bruggi og bruggtæki, sem tekið
var í vörslu lögreglunnar.
Enginn var handtekinn en rann-
sóknarlögreglan vinnur að mál-
inu.
Tuttugu og tveggja ára stúlka frá Reykjanesbæ var fyrir páska fundin
sek um líkamsárás á veitinga-
stað í Reykjanesbæ í október
síðastliðnum. Hún var dæmd
til greiðslu sektar, skaðabóta
og málsvarnarlauna, samtals
að upphæð rúmlega 218.000
króna.
Ákærða var sakfelld fyrir að
veita annarri stúlku andlitsá-
verka með hnefahöggi aðfar-
arnótt 24. október sl. en þær
höfðu rekist saman á dansgólfi
með þeim afleiðingum að vatn
skvettist yfir ákærðu.
Viðbrögð hennar þótti ekki í
samræmi við aðstæður og þótti
sektargreiðsla hæfileg refsing. Tímarit Víkurfrétta hefur göngu sína að nýju eftir nokkuð langt hlé í apríl. Að þessu sinni er blaðið m.a. helgað Fegurðarsamkeppni Suðurnesja en í Tímariti
Víkurfrétta verða ítarlegar kynningar
á þátttakendum í Fegurðarsamkeppni
Suðurnesja 2005 en Oddgeir Karls-
son ljósmyndari í Reykjanesbæ hefur
myndað drottningarnar sérstaklega
fyrir þetta blað.
Mikil leynd hvílir enn yfir öðru efni
blaðsins eins og er, en þar er að finna
átakanlega lífsreynslusögu. Tekið er
hús á Suðurnesjafólki víða um heim og
myndavélarnar hafa einnig verið á lofti
og mannlíf svæðisins hefur verið skjal-
fest í máli og myndum.
Við undirbúning á jafn umfangsmiklu blaði og Tímariti Víkur-
frétta gildir gamla góða tuggan að betur sjái augu en auga. Því
hvetjum við fólk til að standa með okkur vaktina og koma til
okkar ábendingum um áhugavert lesefni í Tímarit Víkurfrétta.
Ábendingum má koma áleiðis á postur@vf.is eða með því að
hringja í blaðamenn í síma 421 0002.
Lög reg l an í Kefla vík var kölluð að nýbygg-ingu við Bláa lón ið á
þriðjudagsmorgun, þar sem
húðlækningastöðin er til húsa,
vegna þjófnaðar. Í kjallara
nýbyggingarinnar hafði verk-
færum verið stolið frá verk-
tökum. Um er að ræða þrjár
hleðsluborvélar, einn slípirokk,
múfasuðuvél og nokkra bora.
Atburðurinn átti sér stað um
páskahelgina.
Lög regla var köll uð út vegna átaka að bens-ínstöð að Fitjabakka í
N j a r ð v í k a ð
kvöldi annars
í páskum. Þar
hafði mað ur
komið að bif-
reið sem var
verið að dæla
á, sparkað í hana og ráðist á
farþega. Ekki urðu meiðsl en
skemmdir urðu á bifreiðinni.
Taldi árásarmaðurinn sig eiga
eitthvað sökótt við farþegann.
Fólk í fasteignahugleiðingum á Suð-urnesjum þarf nú ekki að leita langt yfir skammt því Víkurfréttir hafa
tekið í notkun nýja fasteignasíðu á vf.is.
Hún sameinar á eina síðu fasteignir frá
fasteignasölunum Ásbergi, Stuðlabergi
og Eignamiðlun Suðurnesja. Þessar sömu
fasteignasölur auglýsa einnig eignir sínar
í Víkurfréttum í hverri viku.
Er um handhæga nýjung að ræða þar sem
nú má finna flestar fasteignir, sem eru til
sölu á Suðurnesjum, á einum stað. Það
sem gerir þetta kleift er það að viðkomandi
fasteignasölur nota sama vefumsjónarkerfi
og Víkurfréttir, Conman frá fyrirtækinu
Dacoda.
Fasteignaleitin á vef Víkurfrétta, www.vf.is/
fasteignir, hefur notið talsverðra vinsælda
frá því hún var tekin í notkun og skipta
flettingar þúsundum á þeirri viku sem liðin
er frá því leitarvélin var tekin í notkun.
Fasteignaleit nýtur mikilla
vinsælda á vef Víkurfrétta
Tímarit Víkurfrétta í apríl8 Vettvangur lögreglunnar:
Þjófar stálu verkfærum
við húðlækningastöð
50 lítra brugg í Höfnum
Átök við
bensínstöð
Fundin
sek um lík-
amsárás
Eru Hafnamenn
góðir í landafræði?
MUNDI
Mundi
Smiðir í „sjöunda himni“ á sjöundu hæð!
Peyjarnir hjá Hjalta Guðmundssyni ehf. voru í um 30 metra hæð yfir sjávarmáli að steypa fyrir þakíbúð Pósthús-
strætis 1 á 7. hæð hússins þegar þessi mynd var tekin þar sem kapparnir eru á ganginum á milli tveggja þakíbúð-
anna. Útsýni yfir bæinn og Faxaflóa er hreint með ólíkindum á hæstu hæðum byggingarinnar. Á myndinni eru Har-
aldur Arnarson, Pétur Örn Helgason, Kristján Guðbrandsson, Slavko Gribiz og Halldór Reinhardsson.