Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.03.2005, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 31.03.2005, Blaðsíða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Í bíl skúr í Kefla vík leyn-ist mik ið lista verk sem á hvergi sinn líkan. Yfir 200.000 eldspýtur mynda 5,5 metra Eiffel turn sem er 2*2m að breidd við gólf. Það tók Jón Guðjónsson 5 ár að búa til turn- inn, og gerði hann verkið í frí- stundum sínum. Enginn vafi er á því að turninn er gjaldgengur í heimsmeta bók Guinness en Jón átti þar annað verk í bók- inni árið 1975 og segir hann það verk ekki vera í líkingu við þetta Eiffel stórvirki. Verkið er eins og áður greindi í bílskúr í Keflavík, og er þar í nokkrum pörtum. Jóni og Jak- obi félögum hans er mikið í mun að finna stað fyrir turninn og telja Flugstöðina kjörinn stað fyrir verkið, þar sem það myndi vekja verðskulduga athygli og vera á víðförlum stað. Nú leita þeir að stað þar sem hægt væri að setja turninn upp þannig að mögulegt yrði að mynda hann og bjóða fólki að verða vitni að því þegar heimsmet verður sett, því það er nokkuð ljóst að þetta verk er gjaldgengt í heimsmeta- bókina. Nánari upplýsingar um verkið er hægt að fá með því að senda tölvupóst á faxin@visir.is eða hafa samband við skrifstofu Vík- urfrétta(sími: 4210000) á opnun- artíma skrifstofunnar. Að mati netferðaskrifstofunnar iExplore er bað í heitum laugum á Íslandi ein af 10 óvenjulegustu ferðum sem fyrirspurnir bárust um á síðasta ári. Kampavínsflug til norðurpólsins er hins vegar óvenjulegasta ferðin að mati forsvars- manna ferðaskrifstofunnar. iExplore hefur einkum sérhæft sig í sérsniðnum ævintýraferðum. Listinn yfir þessar óvenjulegu ferðahugmyndir er eftirfarandi: Kampavínsflug á norðurpólinn. Ferð til Timbuktu og til baka. Róa á kajak gegnum Panamaskurðinn. Dveljast hjá Mongólafjölskyldu á Gobi-eyðimörkinni. Fara á kameldýrum yfir Saharaeyðimörkina. Gönguferð til grunnbúðanna á Everestfjalli. Baða sig í heitum laugum (Bláa lóninu) á Íslandi. Loftbelgsflug yfir Serengeti í Tansaníu. Ganga um regnskógana á Amazonsvæðinu. George Deeb, stofnandi iExplore, segir í tilkynningu sem birt er á netsíðu Morgunblaðsins, að kynslóðin, sem nú sé að nálgast miðjan aldur og undirbúi að setjast í helgan stein snemma, hafi ekki áhuga á að safna eignum heldur upplifa eitthvað merkilegt. Umræddur listi sýni, hvað neytendur séu reiðubúnir að ganga langt til að upp- lifa eitthvað einstakt, og geri þeim kleift að monta sig af það sem eftir er ævinnar. 5,5m hár Eiffel- turn úr eldspýtum í bílskúr í Keflavík! Bláa lónið á topp 10 8 iExplore.com: Jón virkar sem lítið peð við hliðina á 5,5m turninum Partur af hæstu hæð Eiffel turnsins og sést hversu vandað verkið er.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.