Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.03.2005, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 31.03.2005, Blaðsíða 15
VÍKURFRÉTTIR I 13. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 31. MARS 2005 I 15 Þær Helena og Berglind hafa nýlega stofnað klúbb- inn Vola da Gamba þar sem stelpur og strákar, fjögurra ára og eldri, koma saman og leika sér. Þær eru sjálfar í fjórða bekk Holtaskóla og segjast ætla að fara í leiki og fara í ferðalög með þeim sem vilja vera með. Þátttökugjald verður 1000 krónur en fyrsta vikan verður ókeypis. Þá munu þær líka hjálpa yngri krökkunum að læra að lesa og skrifa og kenna stóru krökkunum að vera góð í framtíðinni og margt fleira. Skrán- ingarsímar eru 421-3793 og 847-5472. Kenna yngri krökkum að lesa og skrifa en þeim eldri að vera góð í framtíðinni ©FRÉTTASÍMINN SÓLARHRINGSVAKT898 2222Púlsinn ævintýrahús í Sandgerðisbæ býður upp á spennandi nám-skeið laugardaginn 9.apríl k l u k k a n 1 3 - 1 8 með landsfrægum sjáanda, Erlu Stef- ánsdóttur. Hún er þekkt fyrir að sjá ma. álfa og huldu- fólk og kort lagði álfabyggð Hafnar- fjarðar. En Erla sér lengra en inn í huliðsheima, hún skynjar líka orkulínur jarðarinnar. Erla Stefáns ætlar að kenna þátttakendum á námskeiðinu að skynja orkulínur í umhverf- inu og hvernig við getum mælt þessa orku með spápriki og pendúl. Þetta er ævaforn en áhrifarík aðferð til þess. Þeg ar við náum jafn vægi í orkunni okkar þá komum við í veg fyr ir sjúk dóma. Orka og útgeislun orkunnar í umhverfinu hefur mikil áhrif á heilsu manna. Við þurfum að vita hvernig orku- lín ur jarð ar inn ar fara í gegnum heim- ili okk ar, hvern ig ú t ge i s l un er f rá matn um sem v ið borð um og hús gögn um, hvernig húsgögn raðast best inni á heimilinu ofl. Á nám- skeiðnu verður farið í orku- streymi mannsins, orkulínur, orku punkta og út geisl un mannsins, útgeislun jarð- arinnar og umhverfi. Kennt verður á spáprik og pendúl. Skráning er hafin í Púlsinum! Viltu læra af Erlu Stefáns sjáanda? Keflavíkurkirkja Fimmtudagur 31. mars: Námskeið um sporin 12 sem andlegt ferðalag verður haldið í Kirkjulundi kl. 18-20 og áfram næstu fimmtudaga. Nánari upp- lýsingar gefa María í síma 864 5436 og Sigfús í síma 4204302. Föstudagur 1. apríl: Útför Friðgerðar Finnbjörns- dóttur, fyrrum ljósmóður, Garðvangi, Garði, áður Birkiteig 13, Keflavík, fer fram kl. 14. Kálfatjarnarsókn Kirkjuskóli í Stóru-Vogaskóla á laugardögum kl. 11.15. Ytri-Njarðvíkurkirkja Spilakvöld aldraðra og öryrkja fimmtudaginn 31. mars kl. 20. í umsjá félaga úr Lionsklúbbi Njarðvíkur, Ástríðar Helgu Sig- urðardóttur, Natalíu Chow Hew- lett organista og sóknarprests. Hvítasunnukirkjan Keflavík Sunnudagar kl. 11.00 Barna og fjölskyldusamkoma Þriðjudagar kl. 19:00 Bænasamkoma Fimmtudagar kl. 19:00 Alfa námskeið www.gospel.is Baptistakirkjan á Suðurnesjum Alla fimmtudaga kl. 19.30: Kennsla fyrir fullorðna. Barnagæsla meðan sam- koman stendur yfir. Sunnudagaskóli: Alla sunnudaga. Fyrir börnin og unglingana Samkomuhúsið á Iðavöllum 9 e.h. (fyrir ofan Dósasel) Allir velkomnir! Prédikari/Prestur: Patrick Vincent Weimer B.A. guðfræði 847 1756 8 Kirkjustarf á Suðurnesjum: Jógafræðin eru um 5000 ára gömul fræði og segir það allt sem segja þarf um gæði þess að stunda jóga. L í k a m s æ f - ingarnar eru sérstaklega til þess falln ar að teygja vel á líkamanum. Te y g j a v e l á s in um og vöðvum með því að gera liðk- andi og styrkjandi æfingar. Æf- ingarnar teygja mjög djúpt á vöðvavefum og losa þannig um eiturefni og langvarandi stirð- leika. Regluleg ástundun jóga bætir líkamlega líðan og eykur ein- beitningu. Það örvar meltingu, styrkir og liðkar líkamann, róar hugann, dýpkar svefninn, mýkir liðina og margt fleira. Engin tæki eða tól eru notuð við æf- ingarnar ,líkaminn er allt sem við þurfum! Þess vegna getum við stundað jóga hvar og hvenær sem er. Það er jóga. Bryndís Kjartansdóttir Jóga og þolfimi kennari 8 Aðsent: Hvað er jóga? F élagar í Ættfræðifélaginu á Su ð u r n e s j u m æ t l a að hittast á Bókasafni Reykjanesbæjar þriðjudags- kvöldið þ. 5. apríl n.k. kl. 20:00. Allir áhugasamir um ættfræði eru velkomnir. Ættfræðikvöld á Bókasafni

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.