Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.03.2005, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 31.03.2005, Blaðsíða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 4 hnakkastykki af þorsk sósan 1 dl. japönsk soja sósa “Blue dragon” 2 msk. tómatsósa 4 dass tabasco 1 msk. edik 1 tsk. engifer 1 tsk. sax chilli 80 g. smjör í bitum. Meðlæti Rauð og græn paprika í strimlum Broccoli hausar 1 st. gerkings í sneiðar 1/2 dl. olífuolía. Sjóðið allt sem í sósuna á að fara fyrir utan smjörið, þeytið því í seinast, maukið allt saman með sprota eða í mixer. Steikið fiskinn í olífuolíunni kryddið með salti og pipar, haldið heitu. hitið grænmetið á sömu pönnu í smjöri. Setjið fiskinn á miðjan diskinn, grænmetið of- aná hann og sósuna í kring. Skreytt með kerfil. þorskur með bragðmiklu meðlæti Steiktur þorskur Uppskriftir Örn Garðarsson matreiðslumeistari Örn Garðarsson matreiðslumeistari soho@soho.is Kammersveit Reykja-víkur heldur tónleikar í Duushúsum í Keflavík miðvikudaginn 6. apríl 2005 kl. 20.00. Drottning kammerverkanna Strengjakvintett Schuberts í C-dúr op. 163 er oft nefndur drottning kammerverkanna vegna þess hve fallegur hann er. Þegar Kammersveitin lék hann á tónleikum sínum í Reykjavík sl. haust var fjallað um flutninginn í dagblöðum á eftirfarandi hátt: Í DV, S.Þ.G.: “Flutningur verksins var hreint út sagt frábær.....Hægi kaflinn hefði e.t.v. mátt vera aðeins hæg- ari en var samt átakanlega vel leikinn og síðustu tvo kaflana með sinni manísku lífshyllingu, spennu og óvissu er vart hægt að spila betur”. Og í Morgunblaðinu R.Ö.P.: “Skemmst er frá því að segja að leikur fimmmenninganna úr Kammersveitinni var sópandi glæsi legur, innlif aður fram í fingurgóma og í beinu rótar- sambandi við alþýðlegan undir- tóninn sem gerir kvintettinn að einu hjartnæmasta strengjaverki 19. aldar”. Kammersveitina skipa á þessum tónleikum: Rut Ingólfsdóttir, fiðla Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðla Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló Hrafnkell Orri Egilsson, selló Tónleikarnir taka eina klukku- stund. Miðasala við innganginn. Miðaverð er 1000 kr. Verið vel- komin. Kammersveit Reykja- víkur í DUUS-húsum Þessi mynd er af þorskréttinum sem uppskriftin er af hér að ofan. Myndin birtist fyrir mistök með uppskrift að lúðurétti í blaðinu fyrir hálfum mánuði. Beðist er velvirðingar á því.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.