Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.03.2005, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 31.03.2005, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I 13. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 31. MARS 2005 I 13 Grunnskólarnir í Reykja-n e s b æ h é l d u v e l heppnaðan árshátíðar- dansleik í Stapa. Stuðsveitin Í Svörtum Fötum hélt uppi fjör- inu fram á kvöld og voru ball- gestir til mikillar fyrirmyndar. Fyrr um daginn höfðu útskrift- arnemendur skólanna haldið hátíðarmálsverð sem var með ýmsu sniði. Í Heiðarskóla og Njarðvíkurskóla sáu foreldrar nemenda um matseld en í Holta- skóla var því öfugt farið. Auk þess var boðið upp á frábær skemmtiatriði af öllum gerðum og var mál manna að afar vel hefði tekist til. Með fylgj andi mynd ir sýna glöggt hve kátt var á hjalla, en mun fleiri myndir má nálgast á heimasíðum skólanna. Síðasta kennsludag fyrir páska fór hið ár leg a Starfshlaup fram í 11. sinn. Fyrir þá sem ekki þekkja starfshlaupið þá reyna nem- endur með sér í n.k. boðhlaupi þar sem keppt er í flest um þ e i m n á m s g r e i n u m s e m kenndar eru við skólann auk ýmis konar þrauta. Að þessu sinni kepptu 9 lið í hlaupinu en í hverju liði eru nokkrir tugir keppenda auk stuðningsliðs, fánabera o.fl. Keppnin byrjaði í Íþróttahúsinu þar sem keppt var í reiptogi, pokahlaupi og fleiri greinum. Síðan var synt og hlaupið en að því loknu þeystu keppendur inn í skólann þar sem liðin hlupu milli kennslustofa og leystu verk- efni auk þess að leysa ýmsar þrautir á göngum. Keppnin endaði síðan á sal þar sem liðin lögðu á borð, dönsuðu, sungu, léku o.fl. Einn af hápunktum starfshlaupsins á hverju ári er síðan kappátið þar sem hvert lið fær einn kennara til að keppa fyrir sína hönd. Að venju mynd- aðist mikil stemmning á sal þegar úrslitin nálguðust og enn einu sinni reyndist nýji salurinn vel. Að þessu sinni var það “Græna liðið” sem sigraði eftir harða keppni en frammistaða liðsins og liðsandi var svo sannarlega til fyrirmyndar. Liðsmenn sigur- liðsins fengu að sjálfsögðu hina hefðbundnu pizzuveislu í sigur- laun. Að venju var þó skemmt- unin í fyrirrúmi hjá nemendum og starfsfólki skólans. Fyrirmyndar árshátíðir skólanna 8 Grunnskóli Grindavíkur: 8 Starfshlaup í FS: Grænir sigruðu FRÉTTASÍMINNSÓLARHRINGSVAKT 898 2222

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.