Víkurfréttir - 31.03.2005, Side 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
�����������������
��������������� ������ �������������
������������������������������������
�����������������
��������������������������
����������������������������
Grindvíska
fréttasíðan
U m s j ó n : Þ o r s t e i n n G u n n a r K r i s t j á n s s o n Helga Sigurðardóttir heldur einkasýningu á vatnslitaverkum í
Saltfisksetrinu í Grindavík 19.
mars - 4. apríl 2005, kl. 11:00
- 18:00 alla daga. Opnun sýn-
ingarinnar: Orkuflæði lands og
fjalla verður 19. mars kl. 14:00.
Helga Sigurðardótt ir hef ur
stundað nám við Myndlistar-
skóla Kópavogs frá 1992. Hún
hefur haldið einkasýningu í
Lækjarási 2001 og samsýningu í
Gallerí 5, 2002. Helga er ein af
fimm rekstraraðilum, sem rekur
Gallerí 5, Skólavörðustíg 1a.
Helga er með listaverk á vefsíðu
www.art-iceland.com
Aðalviðfangsefni sýningarinnar:
Orkuflæði lands og fjalla, er
krafturinn, stórfengleg fegurð
og litadýrð í íslenskri náttúru
og umhverfi. Verkin túlka sterk
áhrif nátt úr unn ar. Notk un
kröftugra lita mikils flæðis og
litasprenginga eru eikennandi.
Innblástur margra verkanna er
fenginn frá Snæfellsjökli og er
jökullinn sýndur í mismunandi
litbrigðum. Margar aðrar nátt-
úruperlur hafa verið hugmynda-
hvatar.
Helga Sigurðar-
dóttir með
einkasýningu í
Saltfisksetrinu
8 Fimleikadeild UMFG
Grind vík ing ar fjöl-menntu á styrktar-tón leika sem voru
haldnir á Salthúsinu á kvöldi
páskadags. Þar var safnað
fyrir Laufey Dagmar Jóns-
dóttur, sem gekkst undir lifr-
arskipti á sjúkrahúsi í Kaup-
mannahöfn fyrr um daginn.
Hallfreður Bjarnason, sonur
Laufeyjar, sagði stuðninginn
koma sér vel, en bætti því
við að aðgerðin hafi gengið
eins og sögu og móður sinni
liði vel. Kunna aðstandendur
öllum þeim sem komu á Salt-
húsið bestu þakkir og sérstak-
lega þeim Hjálmari og Jónu á
Salthúsinu, fyrir afnot af hús-
inu og fleira.
Um 100 manns mættu og
hlýddu á tón list sem trú-
badorar úr bænum auk sona
Laufeyjar léku. Skemmti fólk
sér afar vel fram eftir nóttu.
Þeim sem vilja leggja sitt af
mörkum er bent á styrktar-
reikning 1193-05-1500 kt.
160969-2969.
Fimleikadeild UMFG tók nýlega til starfa
og hafa viðtökurnar verið mjög góðar. Alls
hafa 70 börn skráð sig til æfinga og er það
framar björtustu vonum þjálfarans, Steinþórs
Ingibergssonar. Steinþór var áður þjálfari hjá
Björkunum og KR í tíu ár en hefur verið starfs-
maður Íþróttamiðstövarinnar frá því hann
flutti til Grindavíkur fyrir 2 árum.
„Fólk hefur verið að hvetja mig til að byrja
með æfingar en ég hafði ekki ímyndað mér að
fá svona góð viðbrögð. Alls hafa 70 krakkar
skráð sig á æfingar og það er strax kominn
biðlisti. Það á eflaust eftir að fækka eitthvað
í hópnum því það finna sig ekki alltaf allir í
fimleikum frekar en öðrum íþróttum. Ég er
með tvo hópa og við æfum alla daga en nú
vantar bara stærra íþróttahús því að salurinn
sem við notum rúmar ekki fleiri iðkendur. Ég
er einnig með hugmyndir um að bjóða upp á
æfingar fyrir börn frá allt að 16 mánaða aldri
og fá þá mæður og feður með í æfingarnar en
þetta verður allt að koma í ljós“, sagði Steinþór
hress í bragði við Víkurfréttir þegar við kíktum
á eina æfingu hjá Fimleikadeildinni.
Mikill áhugi
FRÉTTA
SÍMINN
898 2222
S Ó L A R H R I N G S
V A K T
Styrktartónleikar