Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.11.2005, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 10.11.2005, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Diddú býður til veislu tónleikar í kirkjulundi, safnaðarheimili keflavíkurkirkju FÖSTUDAGINN 11. NÓVEMBER KL. 20.00 Perlur og skrautaríur eftir Händel, Bellini, Mozart, Offenbach, Bernstein og Verdi Hljómsveitarstjóri ::: Kurt Kopecky Einsöngvari ::: Sigrún Hjálmtýsdóttir Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tónleika í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Þar mun okkar ástsæla söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir – Diddú – flytja margar af sínum uppáhalds perlum. Miðaverð er 2.000 kr. en 1.000 kr. fyrir 16 ára og yngri. Miðasala við innganginn. Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá febr- úar sl. að starfsmannahaldi Varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli hafi verið óheimilt að af- nema greiðslu ferðapeninga til slökkviliðsmanna á Keflavíkur- flugvelli sem búa á Höfuðborg- arsvæðinu. Íslenska ríkið, sem var stefnt fyrir hönd Varnarliðsins, var dæmt til að greiða Landssam- bandi Slökkviliðs- og Sjúkra- flutningamanna 300.000 krónur í málskostnað og mun þurfa að greiða slökkviliðsmönnunum ferðapeningana afturvirkt frá 1. febrúar 2004 til dagsins í dag. Deilt var um hvort varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hefði árið 2003 verið heimilt að segja upp greiðslu dagslegs rútufargjalds til slökkviliðsmanna á Keflavík- urflugvelli. Greiðslum þessum hafði ver ið kom ið á með ákvörðun kaupskrárnefndar árið 1955, en sú nefnd úr- skurðar um starfskjör íslenskra starfsmanna varnarliðsins. Rök íslenska ríkisins voru þau að greiðslur vegna ferðastyrks hafi verið uppsegjanlegar með þriggja mánaða fyrirvara þar sem þær hafi ekki verið eigin- legur hluti af kjarasamningum. Það féllst héraðsdómur ekki á og staðfesti Hæstiréttur þann dóm. Var fallist á að varnarliðinu hefði ekki verið unnt að fella þessar greiðslur niður einhliða. Voru uppsagnirnar því dæmdar ógildar. Verharð Guðnason, formaður Landssambands Slökkviliðs- og Sjúkraflutningamanna, sagði í samtali við Víkurfréttir í dag að þeir væru mjög ánægðir með niðurstöðuna. „Þetta er mikil gleðistund fyrir okkur að vinna þetta réttlætis- mál. Við vorum bjartsýnir að svona færi, þar sem dómurinn í héraði var mjög afdráttarlaus en það er gott að þessu er lokið. Með þessum dómi er staðfest að þeir megi ekki segja upp launa- liðum einhliða og nú munum við fara út í að innheimta þessa fjárhæð.” Vernharð segir að um verulega upphæð sé að ræða, en fjöldi slökkvi liðs manna sem hafa orðið af þessum greiðslum er á bilinu 25 til 30. Varnarliðinu óheimilt að afnema ferðapeninga slökkviliðsmanna Sinfóníuhljómsveit Ís-lands verður með tón-leika í Kirkju lundi í Reykjanesbæ á morgun, föstu- dag, kl. 20.00. Hljómsveitar- stjóri er Kurt Kopecky en ein- söngvari er Sigrún Hjálmtýs- dóttir, Diddú. Diddú syngur sínar uppá- haldsar íur á tónleikunum líkt og hún gerði fyrr í haust fyrir fullu húsi á tvennum tón- leikum með sinfóníuhljómsveit- inni í Háskólabíói. Á efnisskrá er óperutónlist eftir Bellini, Dvorak, Mozart, Offenbach, Bernstein og Verdi. Diddú hefur fyrir löngu sungið sig inn í hjörtu landsmanna með bjartri rödd sinni og heill- andi framkomu. Miðasala á tónleikana er við innganginn og húsið verður opnað kluku- stund fyrir tónleikana. Miða- verð er 2000 krónur, en 1000 krónur fyrir 16 ára og yngri. Diddú og Sinfónían í Kirkjulundi SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Diddú býður til veislu tónleikar í kirkjulundi, safnaðarheimili keflavíkurkirkju FÖSTUDAGINN 11. NÓVEMBER KL. 20.00 Perlur og skrautaríur eftir Händel, Bellini, Mozart, Offenbach, Bernstein og Verdi Hljómsveitarstjóri ::: Kurt Kopecky Einsöngvari ::: Sigrún Hjálmtýsdóttir Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tónleika í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Þar mun okkar ástsæla söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir – Diddú – flytja margar af sínum uppáhalds perlum. Miðaverð er 2.000 kr. en 1.000 kr. fyrir 16 ára og yngri. Miðasala við innganginn. Ákvörðun Lífeyrssjóðs Su ð u r l a n d s u m a ð lækka réttindi sjóðsfé- laga sinna um 16 % frá og með síðustu mánaðarmótum hefur vakið hörð viðbrögð meðal sjóðsfélaga. Í samtali við Víkurfréttir sagði Friðjón Einarsson, framkvæmda- stjóri lífeyrissjóðsins, að þeim væri að sjálf sögðu þvert um geð að grípa til þessara aðgerða. Þær væru hins vegar af nauðsyn þar sem viðvar- andi atvinnuleysi undanfarin ár og stóraukin örorka hefðu lagst þungt á sjóðinn. Friðjón bætti því við að allflestir líf- eyrissjóðir hefðu lækkað réttindin á síðustu 2 árum, en Lífeyrissjóður Suðurlands væri nú einn af þeim síðustu til þess. „Við fórum að vinna eftir nýjum reglum við útreikninga á skuld- bindingum sjóðsins um áramót og þar kom í ljós mikil aukn- ing í örorku sem felur í sér um- talsverða aukningu á kostnaði fyrir almennu lífeyrissjóðina. Suðurnesin voru sérlega slæm í þessu tilliti auk þess sem lengri lífaldur þjóðarinnar veldur líka kostnaðarauka.” Aðspurður hvort komið gæti til hækkunar síðar ef atvinnuleysi helst í lágmarki, líkt og raunin hefur verið undanfarna mán- uði, sagði Friðjón svo vera. „Ef atvinnuleysi eykst ekki aftur og örorka minnkar munum við geta hækkað réttindin aftur líkt og við gerðum í árslok 2000. Það er hins vegar ekki hægt að segja til um hvenær það verður því það eru margir þættir sem koma þar að. Við vonumst hins vegar til þess að staðan verði þannig innan fárra ára.” Friðjón neitar alfarið að þessar aðgerðir tengist fjárfestingum sjóðsins, en þrátt fyrir að þær gangi misvel ár frá ári sé það ekki ástæða til hækkana til langs tíma litið. „Við höfum ekki gert nein mis- tök að því leyti og höfum aldrei fengið aðfinnslur frá fjármála- eftirliti eða öðrum eftirlitsstofn- unum. Ef þessi nýja viðmiðun hefði ekki komið til hefðum við sennilega ekki þurft að grípa til þessara ráða.” Friðjón bætir því við að allir al- mennir lífeyrissjóðir eigi í vand- ræðum vegna aukinna skuld- bindinga, annað en hægt er að segja um líf eyrissjóði opin- berra starfsmanna. „Þar greiða ríki og sveitarfélög hallann upp s já l f , en v ið erum ekki með slíka bakhjarla. Þetta er mikið réttlætismál fyrir okkur og þessa stundina eru ASÍ og Starfsgreina- sambandið að reyna að fá stjórn- völd til að koma að þessu máli. Eins erum við í viðræðum við aðra lífeyrissjóði með samruna í huga til að styrkja sjóðina svo að síður þurfi að grípa til lækk- unaraðgerða.” Nokkur fjöldi sjóðsfélaga hefur komið ábendingum til Víkur- frétta varðandi þetta mál og nokkrir hafa velt því fyrir sér hvort ekki hefði verið unnt að dreifa lækkuninni á lengri tíma eða gefa meiri fyrirvara. Friðjón segist viss um að það fyr- irkomulag sem valið var sé það heppilegasta í stöðunni. „Þetta er ákvörðun stjórnarinnar og hún fer eftir tillögum trygginga- stærðfræðings sjóðsins sem taldi þetta hagkvæmast fyrir sjóðinn.” Því er ekki að neita að slíkar að- gerðir snerta marga illa og segir Friðjón að þetta sé það versta sem geti komið uppá. „Það er auðvitað ömurlegt að þurfa að standa í forsvari fyrir slíku. Þetta er bæði leiðinlegt og dap- urt, en vonandi lagast þessi mál til frambúðar sem fyrst.” Lífeyrissjóður Suðurlands: Lækkun rét inda sjóðsfélaga vekur hörð viðbrögð - „Nauðsynlegar aðgerðir,“ segir framkvæmdastjórinn

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.