Víkurfréttir - 10.11.2005, Blaðsíða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
AMERÍSKIR DAGAR
JUSTIN NEWMANHONEYBOY
LAUGARDAG 12. NÓV. FRÁ 23:00 - 02:00.
Í GRINDAVÍK!
FÖSTUDAG 11. NÓV. HÚSIÐ OPNAÐ KL. 20.
HoneyBoy á
Lukku Láka.
2000 kr. aðgangseyrir.
Sögulegir tónleikar
með einum mesta
blúsara heimsins.
Ekki missa af einstöku
tækifæri!
Aldurstakmark 18.ár.
Einnig á Nasa 12.nóv
miðasala á midi.is.
Justin Newman
magnaður trúbador
frá San Diego í
Kaliforníu sem
spilaði á Icelandic
Airwaves mun halda
miðnæturtónleika í
Salthúsinu, Grindavík
laugardaginn 12.nóv.
frá 23:00 - 02:00.
aðgangseyrir 1000 kr.
Aldurstakmark 18.ár.
Salthúsið Stamphólsvegi 2 Grindavík
426 9700 www.salthusid.is
Lukku Láki Hafnargata 6
Grindavík 426 9999
Bókaðu jólaböllin hjá okkur! Vantar þér tónlistarmann í giftinguna, party, sveitaballið
?
Trúbbar, hljómsveitir, plötusnúðar - www.gigg.is UMBOÐSSKRIFSTOFA
Á degi íslenskrar tungu, miðvikudaginn 16. nóv-ember, verður haldið
bókmenntaþing sem hefur þá
sérstöðu að vera sérstaklega
ætlað lesendum á aldrinum 10-
16 ára.
Þingið verður haldið í Kirkju-
lundi, safnaðarheimili Keflavík-
urkirkju, á degi íslenskrar tungu
16. nóvember kl. 10-12.
Yfirskrift bókmenntaþingsins er
Er gaman að lesa?
Ungir lesendur flytja samtals
11 framsöguerindi. Þar verður
spurningunni í yfirskrift þings-
ins svarað frá ýmsum sjón-
arhornum og m.a. fjallað um
hvort barna- og unglingabækur
eigi að vera líkar raunveruleik-
anum, um teiknimyndasögur
og aðrar sögur, um muninn á
bók og mynd, um Gunnlaugs
sögu o.fl.
Frummælendur á þinginu verða
börn og unglingar úr Áslands-
skóla og Víðistaðaskóla í Hafnar-
firði, Grunnskóla Grindavíkur
og Heiðarskóla, Holtaskóla,
Myllubakkaskóla og Njarðvík-
urskóla í Reykjanesbæ. Auk
nemenda, kennara og bóka-
varða verða á þinginu fulltrúar
bókaútgefenda og barna- og
unglingabókahöfunda sem sitja
fyrir svörum unga fólksins í pall-
borði.
Að þinginu standa Íslensk mál-
nefnd, Fræðsluskrifstofa Reykja-
nesbæjar og SÍUNG, samtök ís-
lenskra barna- og unglingabóka-
höfunda. Er þetta í fyrsta sinn
sem þessir aðilar taka höndum
saman um slíkt þing.
Ný hársnyrtistofa, Hár-skúrinn, hefur tekið til starfa í Reykjanesbæ.
Bára Skúladóttir rekur stofuna
að Túngötu 16.
Í samtali við Víkurfréttir sagði
Bára, sem hef ur unnið sem
hársnyrtir í rúm 8 ár, að hún
hefði fengið góðar móttökur.
„Bókanirnar eru strax farnar að
berast þó ég sé nýbyrjuð. Ég var
áður hjá Hársnyrtistofu Harðar
í mörg ár, en ákvað að fara út í
eigin rekstur þegar ég fékk gott
rými fyrir stofu með húsinu sem
ég keypti.”
Bára segist alls ekki vera bangin
við að fara út í sjálf stæðan
rekstur og hlakkar til að takast
á við verkefnið. „Það er alltaf
pláss fyrir fleiri hársnyrtistofur
í bænum þannig að ég var ekki
hrædd við að láta vaða.”
Viðskipti og atvinnulíf:
Ný hárgreiðslustofa
í ReykjanesbæBlásið verður til nor-rænnar bókasafnaviku á Bókasafni Reykjanes-
bæjar mánudaginn 14. nóv-
ember kl. 18:00. Lesið verður
við kertaljós úr bók Selmu
Lagerlöf „Nilli Hólmgeirsson
og ævintýraför hans um Sví-
þjóð”, hlýtt á norræna söngva
og fræðst um heima víkinga í
Reykjanesbæ.
Norræna bókasafnavikan er
nú haldin í 10. sinn en mark-
mið hennar er að vekja athygli
á sameiginlegum arfi Norð-
urlandanna og þeirrar fornu
menningarhefðar að lesa við
kertaljós í baðstofum. Þemað
í ár er „Á ferð í Norðri” og
verður því sjónunum beint að
ferðalögum í tíma og rúmi.
Dagskráin hefst kl. 18:00 með
því að slökkt verður á rafmagns-
ljósum, kertaljós tendruð og
Fjóla Oddgeirsdóttir, nemi
í Njarðvíkurskóla les kaflann
„Borgin á hafsbotni”. Sönghóp-
urinn „The Engels” úr Njarð-
víkurskóla mun flytja nokkra
norræna söngva og Árni Sigfús-
son bæjarstjóri kynnir bæjar-
búum hugmyndina að Víkinga-
heimum við Fitjar.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Bókmenntaþing ungra lesenda
Ferðalög í ýmsum myndum
Bókasafn Reykjanesbæjar: