Víkurfréttir - 02.11.2006, Page 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 44. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
Við skorum á þig að tippa,“ er nýr leikur sem Barna- og unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur stendur fyrir. Leikurinn hefst þannig að skorað er á formann Keflavíkur að tippa hjá Íslenskum getraunum á enska boltann fyrir kr. 480 í boði Barna- og unglinga-
ráðs gegn því að hann styrki ráðið um mögulegan vinning að hámarki 5.000.-
Áskorandinn getur notað 8 leiki með einni merkingu, fjórir leikir eru tvítryggðir og einn leikur er
þrítryggður.
Seðilinn birtist í Víkurfréttum og þar getur tipparinn skorað á þann næsta með sömu reglu. Í vikunni
á eftir kemur fram hvað fyrri áskorandi fékk marga rétta og hvort hann hafi unnið eitthvað.
Leikurinn stendur yfir fram í janúar eða þar til fyrirtækjaleikurinn tekur við.
Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur, opnar leikinn nú og skorar á Rúnar V. Arnarson, formann
knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Getraunseðill Einars lítur svona út:
Nótt eina nýverið óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð lögregl-unnar í Keflavík. Ofurölvi farþegi hans vildi með engu móti yfirgefa bifreiðina þegar heim var komið, þrátt fyrir
mikla eftirgangsmuni.
Sá leigubílstjórinn sér ekki annað fært en að kalla til lögreglu, sem
tók farþegann í sína vörslu. Fékk hann að sofa úr sér í fangageymslu
lögreglunnar.
Neitaði að yfirgefa leigubílinn
Getraunaleikur: Við skorum á þig að tippa!
1. 1 Man. Utd. - Portsmouth
2 1 Liverpool - Reading
3 1 Bolton - Wigan
4. 1x Charlton - Man. City
5 x2 Watford - Middlesbro
6 x2 Barnsley - Leeds
7. 1 Burnley - Ipswich
8. 2 Colchester - Cardiff
9. 1x2 Derby - W.B.A
10 1 Norwich - Sunderland
11. 2 Plymouth - Birminghan
12. 1 Preston - Luton
13. x2 Q.P.R. - Crystal Palace Einar Haraldsson
Heilsa og hollusta / Íþróttaakademían:
Hvernig í ósköpunum á ég að fara að þessu? Á hverju á ég að byrja? Er þetta ekki hrikalega flókið og mikið
vesen? Þetta eru spurningar sem margir
spyr ja sig þeg ar þeir
standa frammi fyrir því
að vilja breyta lífstíl og
mataræði til batnaðar.
Mörgum finnst þetta óyf-
irstíganlegt vandamál og
gefast þar af leiðandi upp,
jafnvel án þess að reyna.
„Í dag er þetta ekkert mál,“
segir Inga Kristjánsdóttir
næringarþerapisti.
Hún segir að fólk þurfi ein-
faldlega leiðsögn um hvar
það eigi að byrja og hverju
það geti auðveldlega breytt
til batnaðar.
„Stórmarkaðirnir keppast
nú við að auka hillupláss
í verslunum sínum fyrir
heilsuvörur og lífræna úr-
vals fæðu er hægt að fá úr flest öllum fæðu-
flokkum í dag,“ segir Inga. Hún segir að heilsu-
vöruverslunum hafi fjölgað mikið á síðustu
misserum og úrval matvöru stóraukist. „Það er
meira að segja hægt að fá kex, kökur og kart-
öfluflögur úr lífrænu hráefni, sem eru þá laus
við transfitusýrur og hvítan sykur og það kann
líkaminn að meta,“ segir Inga.
Hún leggur áherslu á að það sé alls ekkert mein-
lætalíf að breyta og bæta mataræðið.
„Þetta snýst um að læra að
velja betra hráefni og gera
mun á illa unni fæðu, fullri
af aukaefnum og góðum vel
unnum matvörum án auka-
efna.“
Fimmtudaginn 9. nóvember
mun Inga halda fyrirlestur
í Íþróttaakademíunni sem
hún kallar „Einfalda leiðin.“
Þar mun hún leiða fólk í
allan sannleikann um það
hvað það er í raun einfalt
að breyta mataræðinu til
batnaðar og hvernig farið er
að því að verða líkamanum
út um öll þau næringarefni
sem hann þarfnast. Einnig
mu n hú n k e n n a f ó l k i
hvernig það getur komið
stjórn á blóðsykurinn og hvaða fitu og olíur er
best og hollast að nota í matargerð og til inn-
töku. „Ég verð líka með sýnishorn með mér
af ýmsum matvörum, því fólki finnst gott og
lærdómsríkt að sjá hvernig þessar vörur líta út,“
segir Inga.
Er flókið að nota lífrænt
ræktaðar vörur?
Af vettvangi lögreglunnar:
Kvöld eitt í síðustu viku var lögreglu tilkynnt um innbrot í íbúð í Njarðvík. Íbúðin er á fyrstu hæð og var farið inn með því að spenna upp svalahurð um hábjartan daginn
á meðan íbúarnir voru í vinnu. Stolið var fartölvu af gerðinni
Fujitsu Siemens, vídeótæki, Sony stafrænni myndavél og fleiri
tækjum. Ekki er vitað hver þarna var að verki og lögregla rann-
sakar málið.
Brotist inn í íbúð í Njarðvík