Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.04.2014, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 03.04.2014, Blaðsíða 22
fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR22 -íþróttir pósturu eythor@vf.is Fyrsta viðureign Grindvíkinga og Njarðvíkinga í undanúr- slitum Domino’s deildar karla í körfubolta hefst á morgun, föstu- daginn klukkan 19:15 í Grinda- vík. Grindvíkingar höfnuðu í þriðja sæti deildarinnar en Njarð- víkingar því fjórða. Grindavík fagnaði sigri í tveimur viður- eignum liðanna í deildinni í vetur. Einnig áttust liðin við í 8-liða úr- slitum bikarsins þar sem Grind- víkingar höfðu eins stigs sigur í spennandi leik. Af þessu að dæma verða Grindvíkingar að teljast sigurstranglegri. Njarðvíkingar eru hins vegar ekki á þeim bux- unum að lúta í lægra haldi. Þeir sendu Hauka í sumarfrí eftir 3-0 viðureign en allir leikirnir voru jafnir og spennandi. Þar sýndu Njarðvíkingar mikinn styrk og koma því fullir sjálfstrausts til móts við meistara síðustu tveggja ára úr Röstinni. Allt sem mælir með því að þeir klári þessa seríu Njarðvíkingar hafa ekki unnið leik gegn Grindavík í deildar- keppni síðan í október árið 2009 og því má tala um nokkurs konar Grindavíkurgrýlu hjá þeim grænu. Einar Jóhannsson þjálfari Njarð- víkinga segir að hann sé ekki að spá mikið í fortíðinni en vissulega sé þetta langur tími. „Það er mikil tilhlökkun og spenna í okkar her- búðum. Við erum búnir að vera að berjast fyrir því undanfarin ár að komast í undanúrslit með þetta unga lið,“ segir Einar en liðið hefur fallið úr keppni undanfarin ár í 8-liða úrslitum. Liðið féll úr leik eftir rimmu gegn Grindvíkingum árið 2012 en þar voru flestir leik- menn liðsins að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki og í efstu deild. „Það var tvennt ólíkt að falla úr leik gegn Grindavík árið 2012 og svo gegn Snæfell í fyrra. Gegn Grindavík var maður mjög stoltur af ungu strákunum en gegn Snæfell var þetta virkilega svekkjandi. Við fengum öflugan stuðning og von- brigðin voru mikil,“ segir þjálfar- inn sem telur að liðið sé reynslunni ríkara í ár. „Löngunin virðist vera til staðar núna og við sýndum viss þroskamerki gegn Haukum. Menn hafa þroskast mikið enda fengið að njóta góðs af því að fá mikinn tíma til þess að spila í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur.“ Einar snýr sér að þjálfun yngri flokka eftir tímabilið og hann fer ekki í neinar grafgötur með að það hefur áhrif á nálgun hans á síðustu leiki þessa tímabils. „Ég trúi því að það geti hjálpað okkur öllum að staðan sé svona. Við erum búnir að puða mikið saman undanfarin ár flestir og lagt mikið á okkur. Ef þetta er ekki augnablik til þess að kreista út allt það besta á loka- sprettinum þá veit ég ekki hvað.“ Einar er 37 ára gamall en hann telur að hann eigi eftir að koma að þjálfun meistaraflokks aftur, enda bara unglamb í þjálfarastéttinni. „Maður veit aldrei hvað verður. Keppnismaðurinn í mér mun væntanlega grípa völdin á ein- hverjum tímapunkti og útiloka ég því ekkert.“ Njarðvíkingar eru að mæta meist- urum síðustu tveggja ára og nýk- rýndum bikarmeisturum. Að auki hefur liðinu gengið illa gegn þeim gulklæddu undanfarin ár. „Ég á eftir að sjá þetta Njarðvík- urlið sem ég er með í höndunum núna mæta Grindavík. Áður var Nigel með okkur og svo Tracy í töluvert verra formi en hann er í núna þegar við mættum þeim síðast. Þeir eru með gríðarlega sterkt fimm manna lið og mikla reynslu og þekkingu. Við pössum nokkuð vel á móti þeim og tel ég að þarna verði mörg áhugaverð ein- vígi meðal leikmanna sem gaman verður að sjá kljást.“ Einar telur að hópar liðanna séu ekkert svo ólíkir en það sé stað- reynd að þekkingin og reynslan á þessu stigi sé meiri Grinda- víkurmegin. „Við berum mikla virðingu fyrir andstæðingunum sem eru meistarar síðustu tveggja ára. Ef eitthvað er þá er þetta bara áskorun. Það er allt sem mælir með því að þeir klári þessa seríu. Það er þó mikill hugur í okkur og stuðn- ingsmönnunum. Ég er bjartsýnn á góðan stuðning frá okkar fólki. Ég hef fulla trú á því að við getum sótt sigur gegn Grindavík sem er fyrsta skref. Við förum í leikinn á föstudaginn til þess að vinna, það er ekki flókið.“ Sverrir treystir á sterka liðsheild Sverrir Þór segist kunna vel við sig í Grindavík en hann gekk frá nýjum tveggja ára samningi við félagið á dögunum. Þar samdi hann einnig um að taka að sér þjálfun kvenna- liðs félagsins. Eins og áður hefur komið fram eru Grindvíkingar sjóðheitir eftir áramót og stefna þeir hraðbyr að þriðja Íslands- meistaratitlinum í röð. Þorleifur Ólafsson fyrirliði er úr leik þetta tímabilið eftir að hafa meiðst illa á hné. Sverrir segir það mikið áfall að missa Þorleif út en hann sé þó til taks á bekknum með andlegan stuðning. „Hann er frá- bær leikmaður og mikill leiðtogi í þessu liði. Nú er tækifæri fyrir aðra til að stíga rækilega upp og taka ábyrgð.“ Liðsheildin er sterk hjá Grindvíkingum. Sverrir er á því að mönnum sé umhugað um liðsheildina en ekki tölur og ein- staklingsafrek. „Það er styrkur okkar að leikmenn hugsa fyrst og fremst um gengi liðsins. Við erum svo með marga leikmenn sem geta tekið að sér að bera sóknarleikinn uppi þegar þess þarf.“ Varðandi andstæðingana þá segir Sverrir að þar beri margt að varast. „Þeir eru með 7-8 menn sem geta valdið usla og með þekktar stærðir eins og Elvar, Loga og Tracy sem er óðum að komast í form. Það er engin tilviljun að þetta lið er komið í undanúrslit. Við erum að fara í hörku einvígi við Njarðvík um að komast í úrslit. Við erum að fá mjög erfiðan andstæðing og við verðum að vera klárir ef við ætlum að slá þá út.“ Sverrir þekkir Suðurnesjarimmur sem þessar ansi vel enda tekið þátt í þeim nokkrum sem leikmaður og þjálfari. „Það er alltaf meiri spenna í kringum körfuboltann þegar Suðurnesjalið eru að mætast. Það virðist vera einhver extra stemning í Suðurnesjaslag sem þessum og fleiri mæta á leikina. Ég býst við miklum látum og kjaftfullu húsi á föstudag,“ segir þjálfarinn sigur- sæli. „Við tæklum bara einn leik í einu og komum grimmir til leiks. Við ætlum okkur að ná í sigurinn á heimavelli í fyrsta leiknum,“ segir Sverrir að lokum. n Kveða Njarðvíkingar niður Grindavíkur-grýluna? GULIR EÐA GRÆNIR Í ÚRSLIT DOMINO’S DEILDARINNAR Keflvíkinga eru úr leik þriðja árið í röð í 8-liða úrslitum karla í Domino’s deildinni. Enn og aftur gegn Stjörnumönnum Teits Örlygssonar sem unnu ein- vígið 3-0 þvert á alla spádóma. Þriðji leikurinn var vægast sagt spennandi en hann fór fram í TM-höllinni við Sunnubraut. Lokatölur urðu 93-94 og skoraði Marvin Valdimarsson þriggja stiga körfu þegar ein sekúnda var til leiksloka. Litlu munaði að Þresti Jóhannssyni tækist að lauma boltanum í körfuna á síð- ustu sekúndu en boltinn rúllaði á körfuhringnum. Magnús Gunnarsson fyrirliði Keflvíkinga segist hafa verið fram á mánudagsmorgun að jafna sig á tapinu gegn Stjörnunni og þeirri staðreynd að liðið væri komið í sumarfrí. „Ég er rétt að jafna mig núna en þetta er búið að vera ömurlegt. Maður trúði hreinlega ekki að maður væri dottinn út. Ef menn mæta ekki tilbúnir þá gerist ekk- ert í þessu,“ segir Magnús en hann telur að rimman hafi tapast í tveimur fyrstu leikjunum þar sem andleysi gerði vart við sig hjá Kefl- víkingum. „Teitur nær að að kreista allt það besta úr þessu liði gegn Keflavík. Þeir eru þó alltaf með gott lið en Teitur er „winner“ og elskar greinilega að vinna Keflavík. Hann á lykilþátt í þessu,“ segir skyttan en Njarðvíkingurinn Teitur Ör- lygsson er þjálfari Stjörnunnar. Magnús segist ekki vita hvað hafi verið í gangi í kollinum á mönnum en þó virðist sem að eftir tap gegn KR í deildinni hafi hallað undan fæti. „Við gætum hugsanlega talið upp einhverjar afsakanir en eina afsökunin er sú að við mættum alls ekki tilbúnir í leik 1 og 2, því fór sem fór.“ Hvað varðar þátt þjálfarans Andy Johnston þá segir Magnús að ekki sé honum um að kenna, leikmenn hafi einfaldlega ekki gert það sem fyrir þá var lagt. Fyrirliðinn segir að hann myndi gjarnan vilja starfa með Andy áfram en óvíst er hvað stjórnin geri þar sem ekki vannst leikur hjá Bandaríkjamanninum í úrslitakeppni, hvorki karla- né kvennamegin. „Við vorum með ákveðin plön en svo lokast á eitthvað hjá okkur. Þetta fór alls ekki eins og við ætl- uðum okkur.“ Teitur með tak á Keflvíkingum Stjörnumenn fögnuðu gríðarlega. Þröstur og Keflvíkingar niðurbrotnir. VF-mynd/Páll Orri. Þröstur Jóhannsson sést hér á þessari skemmtilegu mynd með boltann alveg við körfuna á síðustu sekúndu leiksins. Hann lagði boltann á körfuna en hann rúllaði eftir hringnum og út. Elvar á fleygiferð með Njarðvíkingum. Hann er einn af lykilmönnum UMFN. VF-mynd/karfan.is Ólafur Ólafsson hafði ástæðu til að fagna eftir sigurinn á Þór. VF-mynd/karfan.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.