Víkurfréttir - 03.04.2014, Qupperneq 22
fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR22
-íþróttir pósturu eythor@vf.is
Fyrsta viðureign Grindvíkinga og Njarðvíkinga í undanúr-
slitum Domino’s deildar karla í
körfubolta hefst á morgun, föstu-
daginn klukkan 19:15 í Grinda-
vík. Grindvíkingar höfnuðu í
þriðja sæti deildarinnar en Njarð-
víkingar því fjórða. Grindavík
fagnaði sigri í tveimur viður-
eignum liðanna í deildinni í vetur.
Einnig áttust liðin við í 8-liða úr-
slitum bikarsins þar sem Grind-
víkingar höfðu eins stigs sigur í
spennandi leik. Af þessu að dæma
verða Grindvíkingar að teljast
sigurstranglegri. Njarðvíkingar
eru hins vegar ekki á þeim bux-
unum að lúta í lægra haldi. Þeir
sendu Hauka í sumarfrí eftir 3-0
viðureign en allir leikirnir voru
jafnir og spennandi. Þar sýndu
Njarðvíkingar mikinn styrk og
koma því fullir sjálfstrausts til
móts við meistara síðustu tveggja
ára úr Röstinni.
Allt sem mælir með því
að þeir klári þessa seríu
Njarðvíkingar hafa ekki unnið
leik gegn Grindavík í deildar-
keppni síðan í október árið 2009
og því má tala um nokkurs konar
Grindavíkurgrýlu hjá þeim grænu.
Einar Jóhannsson þjálfari Njarð-
víkinga segir að hann sé ekki að
spá mikið í fortíðinni en vissulega
sé þetta langur tími. „Það er mikil
tilhlökkun og spenna í okkar her-
búðum. Við erum búnir að vera
að berjast fyrir því undanfarin ár
að komast í undanúrslit með þetta
unga lið,“ segir Einar en liðið hefur
fallið úr keppni undanfarin ár í
8-liða úrslitum. Liðið féll úr leik
eftir rimmu gegn Grindvíkingum
árið 2012 en þar voru flestir leik-
menn liðsins að stíga sín fyrstu
skref í meistaraflokki og í efstu
deild.
„Það var tvennt ólíkt að falla úr
leik gegn Grindavík árið 2012 og
svo gegn Snæfell í fyrra. Gegn
Grindavík var maður mjög stoltur
af ungu strákunum en gegn Snæfell
var þetta virkilega svekkjandi. Við
fengum öflugan stuðning og von-
brigðin voru mikil,“ segir þjálfar-
inn sem telur að liðið sé reynslunni
ríkara í ár. „Löngunin virðist vera
til staðar núna og við sýndum viss
þroskamerki gegn Haukum. Menn
hafa þroskast mikið enda fengið að
njóta góðs af því að fá mikinn tíma
til þess að spila í meistaraflokki
þrátt fyrir ungan aldur.“
Einar snýr sér að þjálfun yngri
flokka eftir tímabilið og hann fer
ekki í neinar grafgötur með að það
hefur áhrif á nálgun hans á síðustu
leiki þessa tímabils. „Ég trúi því að
það geti hjálpað okkur öllum að
staðan sé svona. Við erum búnir
að puða mikið saman undanfarin
ár flestir og lagt mikið á okkur.
Ef þetta er ekki augnablik til þess
að kreista út allt það besta á loka-
sprettinum þá veit ég ekki hvað.“
Einar er 37 ára gamall en hann
telur að hann eigi eftir að koma að
þjálfun meistaraflokks aftur, enda
bara unglamb í þjálfarastéttinni.
„Maður veit aldrei hvað verður.
Keppnismaðurinn í mér mun
væntanlega grípa völdin á ein-
hverjum tímapunkti og útiloka ég
því ekkert.“
Njarðvíkingar eru að mæta meist-
urum síðustu tveggja ára og nýk-
rýndum bikarmeisturum. Að auki
hefur liðinu gengið illa gegn þeim
gulklæddu undanfarin ár.
„Ég á eftir að sjá þetta Njarðvík-
urlið sem ég er með í höndunum
núna mæta Grindavík. Áður var
Nigel með okkur og svo Tracy í
töluvert verra formi en hann er í
núna þegar við mættum þeim
síðast. Þeir eru með gríðarlega
sterkt fimm manna lið og mikla
reynslu og þekkingu. Við pössum
nokkuð vel á móti þeim og tel ég að
þarna verði mörg áhugaverð ein-
vígi meðal leikmanna sem gaman
verður að sjá kljást.“
Einar telur að hópar liðanna séu
ekkert svo ólíkir en það sé stað-
reynd að þekkingin og reynslan
á þessu stigi sé meiri Grinda-
víkurmegin. „Við berum mikla
virðingu fyrir andstæðingunum
sem eru meistarar síðustu tveggja
ára. Ef eitthvað er þá er þetta bara
áskorun. Það er allt sem mælir með
því að þeir klári þessa seríu. Það er
þó mikill hugur í okkur og stuðn-
ingsmönnunum. Ég er bjartsýnn
á góðan stuðning frá okkar fólki.
Ég hef fulla trú á því að við getum
sótt sigur gegn Grindavík sem er
fyrsta skref. Við förum í leikinn á
föstudaginn til þess að vinna, það
er ekki flókið.“
Sverrir treystir á
sterka liðsheild
Sverrir Þór segist kunna vel við sig í
Grindavík en hann gekk frá nýjum
tveggja ára samningi við félagið á
dögunum. Þar samdi hann einnig
um að taka að sér þjálfun kvenna-
liðs félagsins. Eins og áður hefur
komið fram eru Grindvíkingar
sjóðheitir eftir áramót og stefna
þeir hraðbyr að þriðja Íslands-
meistaratitlinum í röð.
Þorleifur Ólafsson fyrirliði er úr
leik þetta tímabilið eftir að hafa
meiðst illa á hné. Sverrir segir það
mikið áfall að missa Þorleif út en
hann sé þó til taks á bekknum með
andlegan stuðning. „Hann er frá-
bær leikmaður og mikill leiðtogi
í þessu liði. Nú er tækifæri fyrir
aðra til að stíga rækilega upp og
taka ábyrgð.“ Liðsheildin er sterk
hjá Grindvíkingum. Sverrir er á
því að mönnum sé umhugað um
liðsheildina en ekki tölur og ein-
staklingsafrek. „Það er styrkur
okkar að leikmenn hugsa fyrst og
fremst um gengi liðsins. Við erum
svo með marga leikmenn sem geta
tekið að sér að bera sóknarleikinn
uppi þegar þess þarf.“
Varðandi andstæðingana þá segir
Sverrir að þar beri margt að varast.
„Þeir eru með 7-8 menn sem geta
valdið usla og með þekktar stærðir
eins og Elvar, Loga og Tracy sem
er óðum að komast í form. Það er
engin tilviljun að þetta lið er komið
í undanúrslit. Við erum að fara
í hörku einvígi við Njarðvík um
að komast í úrslit. Við erum að fá
mjög erfiðan andstæðing og við
verðum að vera klárir ef við ætlum
að slá þá út.“
Sverrir þekkir Suðurnesjarimmur
sem þessar ansi vel enda tekið þátt
í þeim nokkrum sem leikmaður og
þjálfari. „Það er alltaf meiri spenna
í kringum körfuboltann þegar
Suðurnesjalið eru að mætast. Það
virðist vera einhver extra stemning
í Suðurnesjaslag sem þessum og
fleiri mæta á leikina. Ég býst við
miklum látum og kjaftfullu húsi á
föstudag,“ segir þjálfarinn sigur-
sæli. „Við tæklum bara einn leik í
einu og komum grimmir til leiks.
Við ætlum okkur að ná í sigurinn
á heimavelli í fyrsta leiknum,“ segir
Sverrir að lokum.
n Kveða Njarðvíkingar niður Grindavíkur-grýluna?
GULIR EÐA GRÆNIR Í ÚRSLIT
DOMINO’S DEILDARINNAR
Keflvíkinga eru úr leik þriðja árið í röð í 8-liða úrslitum
karla í Domino’s deildinni. Enn
og aftur gegn Stjörnumönnum
Teits Örlygssonar sem unnu ein-
vígið 3-0 þvert á alla spádóma.
Þriðji leikurinn var vægast sagt
spennandi en hann fór fram í
TM-höllinni við Sunnubraut.
Lokatölur urðu 93-94 og skoraði
Marvin Valdimarsson þriggja
stiga körfu þegar ein sekúnda
var til leiksloka. Litlu munaði
að Þresti Jóhannssyni tækist að
lauma boltanum í körfuna á síð-
ustu sekúndu en boltinn rúllaði
á körfuhringnum.
Magnús Gunnarsson fyrirliði
Keflvíkinga segist hafa verið fram
á mánudagsmorgun að jafna sig á
tapinu gegn Stjörnunni og þeirri
staðreynd að liðið væri komið í
sumarfrí.
„Ég er rétt að jafna mig núna en
þetta er búið að vera ömurlegt.
Maður trúði hreinlega ekki að
maður væri dottinn út. Ef menn
mæta ekki tilbúnir þá gerist ekk-
ert í þessu,“ segir Magnús en
hann telur að rimman hafi tapast í
tveimur fyrstu leikjunum þar sem
andleysi gerði vart við sig hjá Kefl-
víkingum.
„Teitur nær að að kreista allt það
besta úr þessu liði gegn Keflavík.
Þeir eru þó alltaf með gott lið
en Teitur er „winner“ og elskar
greinilega að vinna Keflavík. Hann
á lykilþátt í þessu,“ segir skyttan
en Njarðvíkingurinn Teitur Ör-
lygsson er þjálfari Stjörnunnar.
Magnús segist ekki vita hvað hafi
verið í gangi í kollinum á mönnum
en þó virðist sem að eftir tap gegn
KR í deildinni hafi hallað undan
fæti. „Við gætum hugsanlega talið
upp einhverjar afsakanir en eina
afsökunin er sú að við mættum
alls ekki tilbúnir í leik 1 og 2, því
fór sem fór.“
Hvað varðar þátt þjálfarans Andy
Johnston þá segir Magnús að ekki
sé honum um að kenna, leikmenn
hafi einfaldlega ekki gert það sem
fyrir þá var lagt. Fyrirliðinn segir
að hann myndi gjarnan vilja starfa
með Andy áfram en óvíst er hvað
stjórnin geri þar sem ekki vannst
leikur hjá Bandaríkjamanninum
í úrslitakeppni, hvorki karla- né
kvennamegin.
„Við vorum með ákveðin plön en
svo lokast á eitthvað hjá okkur.
Þetta fór alls ekki eins og við ætl-
uðum okkur.“
Teitur með tak á Keflvíkingum
Stjörnumenn fögnuðu gríðarlega.
Þröstur og Keflvíkingar niðurbrotnir.
VF-mynd/Páll Orri.
Þröstur Jóhannsson sést hér á þessari
skemmtilegu mynd með boltann alveg
við körfuna á síðustu sekúndu leiksins.
Hann lagði boltann á körfuna en hann
rúllaði eftir hringnum og út.
Elvar á fleygiferð með
Njarðvíkingum. Hann er einn af
lykilmönnum UMFN.
VF-mynd/karfan.is
Ólafur Ólafsson hafði ástæðu til
að fagna eftir sigurinn á Þór.
VF-mynd/karfan.is