Víkurfréttir - 16.04.2014, Qupperneq 14
miðvikudagurinn 16. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR14
Afi minn, Ólafur Björnsson fv. útgerðarmaður verður níræður þann 22. apríl næstkomandi.
Hér er vitnað í bók Sturlaugs
bróður hans, Steinabáta, um komu
hans til Keflavíkur.
„Þann 22. apríl 1929 (á afmæli
Óla) kemur móðir mín Unnur
Sturlaugsdóttir til Keflavíkur með
mig og eldri bræður mína Ólaf og
Magnús. Við komum frá fæðingar-
stað okkar, bænum Hnúki í Klofn-
ingshreppi í Dalasýslu.“
Ólafur hefur verið virkur í þjóð-
félagsumræðunni og í að skrá
minningar sínar, m.a. í bókunum
um Baldur hf og árin hjá Skeiðar-
samlaginu ásamt Faxa og sjó-
mannablaðinu Víkingi og fleiri
ritum.
Hér er tilvitnun í Ólaf. „Á togara
vildi ég helst komast. Lengst af
voru keflvískir sjómenn nær ein-
göngu bátamenn. Hér voru engir
togarar. Þegar að ég var strákur var
það fjarlægur draumur að kom-
ast á togara. Ég var einn um þann
draum af mínum félögum.“
Sextán ára var Ólafur orðinn haus-
ari á togaranum Venus frá Hafnar-
firði. Ólafur lauk hinu meira fiski-
mannaprófi frá Stýrimannaskóla
Íslands 1945. Var verkstjóri hjá
Togaraútgerð Keflavíkur 1953-
1956. Ólafur rak Baldur hf. í um
þrjátíu ár og var í bæjarstjórn
Keflavíkur fyrir Alþýðuflokkinn
í tuttugu og fjögur ár. Hann átti
hugmynd að fyrsta frambyggða
bátnum sem smíðaður var við ís-
lenskar aðstæður. Notaði fyrstur
skutdrátt við Ísland á Baldri KE
97. Átti frumkvæði að ýmsum nýj-
ungum við dragnótarveiðar.
Varaþingmaður var Ólafur árin
1978–1979. Formaður Olíusamlags
Keflavíkur frá 1966. Í stjórn LÍU
og SÍF og í fjölda nefnda á þeirra
vegum 1968–1984. Formaður
stjórnar Samlags skreiðarfram-
leiðenda 1983–1991. Formaður
stjórnar Heilsugæslu Suðurnesja
og sjúkrahúss 1986–1990.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og síðar Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur og ná-
grennis tilnefndi Ólaf sem heiðurs-
félaga. Ólafur var einn af aðalhvata-
mönnum að stofnun sjómanna-
deildar VSFK og var kjörinn fyrsti
formaður deildarinnar og gegndi
því starfi frá stofnun 1949 til árs-
ins 1961. Þá var hann á sama tíma
varaformaður félagsins. Hann var
fulltrúi félagsins hjá Sjómannasam-
bandi Íslands og sat í fyrstu fram-
kvæmdastjórn sambandsins sem
fyrsti varaforseti þess.
Ólafur missti konu sína Margréti
Zímsen Einarsdóttur árið 1966.
Þau eignuðust sex börn. Árið 1970
giftist Ólafur Hrefnu Ólafsdóttur.
Afkomendur Ólafs og Margrétar,
sem flestir búa í Reykjanesbæ eru
komir yfir sextíu.
Ólafur tekur á móti gestum í Báta-
safninum á afmælisdaginn milli
kl. 16 og 18. Gjafir eru afþakkaðar
en þeir sem vilja geta lagt Vel-
ferðarsjóði Suðurnesja lið. Söfn-
unarbaukur fyrir sjóðinn verður á
staðnum.
Ólafur Gunnarsson.
Ólafur Björnsson
níræður
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Sameinaður Lífeyrissjóður Suðurlands, Suðurnesja og Vesturlands
www.festa.is
Afkoma Festu lífeyrissjóðs
Ársfundur 2014
Ársfundur Festu lífeyrissjóðs verður
haldinn þriðjudaginn 13. maí nk.
Fundarstaður: Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38
Fundarstörf hefjast kl. 18:00
Dagskrá ársfundar 2014
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
3. Önnur mál, löglega upp borin
Guðmundur Smári Guðmundsson, stjórnarformaður
Björg Bjarnadóttir
Garðar K. Vilhjálmsson
Guðrún Hafsteinsdóttir
Halldóra Sigr. Sveinsdóttir
Ólafur S. Magnússon
Gylfi Jónasson
Húseignir og lóðir
Hlutdeildarfélög
Verðbréf með breytilegum tekjum
Verðbréf með föstum tekjum
Veðlán
Bundin innlán og aðrar fjárfestingar
Kröfur á viðskiptamenn
Aðrar eignir
Viðskiptaskuldir
Fjárfestingar:
Annað:
Fjárfestingar:
Annað:
Hrein eign til greiðslu lífeyris:
Efnahagsreikningur
Iðgjöld
Lífeyrir
Fjárfestingartekjur
Fjárfestingargjöld
Rekstrarkostnaður
Skattlagning hins opinbera
Hækkun á hreinni eign á árinu:
Hrein eign frá fyrra ári:
Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris:
Breytingar á hreinni eign
Nafnávöxtun
Hrein raunávöxtun
Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu fimm ára
Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu tíu ára
Tryggingafræðileg staða
Nafnávöxtun séreignardeildar
Hrein raunávöxtun séreignardeildar
2012
í milljónum króna
Ýmsar kennitölur
4.095
1.986
4.760
79
84
51
15
12
28.912
47.514
3.163
40
11,0%
6,0%
-3,2%
2,2%
-7,0%
9,6%
4,7%
9.717
69.881
79.598
2013
í milljónum króna
4.755
2.550
7.787
99
102
0
15
12
33.564
52.282
3.418
15
9,5%
5,5%
2,0%
1,7%
-3,8%
9,7%
5,7%
1.024
584
(1.525)
9.791
79.598
89.388
89.305 79.656
83
89.388
903
872
(1.833)
(59)
79.598
Frjálst afl býður fram í Reykjanesbæ
XuNý stjórnmálasamtök, Frjálst afl, munu bjóða fram í sveitarstjórnar-
kosningunum 31. maí n.k. í Reykjanesbæ. Stefnumál þau sem Frjálst afl
berst fyrir verða kynnt innan tíðar. Frjálst afl hefur listabókstafinn Á og
er nýi listinn skipaður neðangreindu fólki:
Á- listi Frjálst afl
1. Gunnar Þórarinsson – viðskiptafræðingur og bæjarfulltrúi, Vallarási 2
2. Elín Rós Bjarnadóttir – grunnskólakennari og yogakennari, Leirdal 42
3. Davíð Páll Viðarsson – markaðsfræðingur, Suðurvöllum 16
4. Alexander Ragnarsson – húsasmíðameistari, Gónhól 11
5. Jasmina Crnac – nemi við Keili, Ásgarði 2
6. Eva Björk Sveinsdóttir – grunnskólakennari, Þórsvöllum 3
7. Guðni Jósep Einarsson – lögmaður, Djúpavogi 20
8. Guðbjörg Ingimundardóttir - sérkennari og deildarstjóri, Drangavöllum 3
9. Þórður Karlsson – rafvirki, Borgarvegi 31
10. Reynir Ólafsson – viðskiptafræðingur, Heiðarbakka 1
11. Gunnar Örlygsson – útgerðarmaður, Holtsgötu 37
12. Ásgeir Hilmarsson – útgerðarmaður, Gónhól 24
13. Baldur Rafn Sigurðsson – prestur, Starmóa 6
14. Örvar Kristjánsson – viðskiptastjóri, Lágseylu 21
15. Grétar Ólason – leigubílstjóri, Týsvöllum 1
16. Elínborg Ósk Jensdóttir – lögfræðinemi, Dalsbraut 12
17. Hólmfríður Karlsdóttir – grunnskólakennari, Gónhól 23
18. Geir Gunnarsson – stýrimaður , Hringbraut 79
19. Bryndís Guðmundsdóttir – íþróttafræðingur og flugfreyja, Heiðarenda 6b
20. Ása Ásmundsdóttir – deildarstjóri, Suðurgötu 11
21. Kristján Friðjónsson – þjónustustjóri, Hlíðarvegi 80
22. Steinn Erlingsson – vélstjóri, Stekkjagötu 9
DANSLEIKUR
á Nesvöllum
Félag eldri borgara heldur dansleik síðasta vetrardag
(miðvikudagur 23. apríl) kl. 20:00 á Nesvöllum.
Suðurnesjamenn leika fyrir dansi.
Aðgangseyrir kr. 1000
Skemmtinefnd FEBS
40 ára afmæli Grindavíkurbæjar
í Sjónvarpi Víkurfétta á ÍNN, vf.is og á Kapalrásinni í Reykjanesbæ