Víkurfréttir - 16.04.2014, Qupperneq 16
miðvikudagurinn 16. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR16
-fréttir pósturu vf@vf.is
AÐALSKIPULAG REYKJANESBÆJAR
BREYTING
Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi
Reykjanesbæjar 2008-2024,
Grófin og Berg og deiliskipulagstillaga
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar auglýsir hér með
breytingu á aðalskipulagi skv. 31.gr. skipulagslaga nr.
123/2010. Tillagan fellur ekki undir lög nr. 106/2000 um
umhverfismat áætlana, þar sem hún markar ekki
stefnu um framkvæmdir sem háðar eru lögum nr.
106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Samhliða er
auglýst deiliskipulagstillaga af Gróf og Bergi skv. 41.gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
• Breyting á aðalskipulagi Grófin og Berg
Breytingin felst í að miðsvæði er stækkað og
íbúðasvæði minnkað. Einnig er sjávarstæði við höfn
minnkað og fært til suðurs. Greinagerð er se fram á
uppdræi í mkv. 1:17.500.
• Deiliskipulagstillaga af Gróf og Bergi.
Gert er ráð fyrir uppbyggingu á nýju miðsvæði í
Grófinni og þéingu núverandi íbúðabyggðar á
Berginu. Einnig er gert ráð fyrir stækkun
smábátahafnar.Tillagan er se fram á tveim
uppdráum og í greinagerð.
Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu
Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 og hjá
Skipulagsstofnun frá og með 16. apríl 2014 til 27. maí
2014. Tillögur eru einnig aðgengilegar á vefsíðu
Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Eldri
auglýsing um sama efni, sem birtist í Lögbirtingi
19. mars og Víkurfréum 20. mars sl. er þar með ógild.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 27. maí
2014. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á
skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, þar sem nafn,
kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillögurnar
fyrir tilskilinn frest telst samþykkur þeim.
Reykjanesbæ, 10. apríl 2014.
Skipulagsfulltrúi
AUGLÝSING UM DEILISKIPULAGSTILLÖGU
SUNNAN FITJA
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er
hér með auglýst til kynningar eirfarandi
deiliskipulagstillaga.
Deiliskipulagstillaga sunnan Fitja
Deiliskipulagssvæðið er um 10. ha sunnan Fitja (Paerson
svæði) og er skipulagt undir gagnaver og aðveitustöð.
Svæðið er í reit VÞ5 í Aðalskipulagi. Á svæðinu er gert ráð
fyrir starfssemi sem tengist rannsóknum, þróun m.a. í
tengslum við nýtingu orku, netþjónabúum og gagnaverum
og er í samræmi við Aðalskipulag.
Tillaga ásamt fylgigögnum verða til sýnis á skrifstofu
Reykjanesbæjar, að Tjarnargötu 12, frá og með 16. apríl til
27. maí 2014. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á vefsíðu
Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Eldri auglýsing
um sama efni, sem birtist í Lögbirtingi 19. mars og
Víkurfréum 20. mars sl. er þar með ógild.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 27. maí 2014.
Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12. Hver sá sem eigi gerir
athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst
samþykkur henni.
Reykjanesbæ, 16. apríl 2014.
Skipulagsfulltrúi
Umfangsmikil skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls sparisjóðanna kom út í síðustu
viku. Skýrslunnar hafði verið beðið lengi og með nokkurri eftir-
væntingu, enda vonuðust margir til þess að skýrslan myndi varpa ljósi
á þá atburði sem urðu sparisjóðunum að falli. Þegar skýrslan er skoðuð
kemur bersýnilega fram að ýmsar brotalamir hafi verið í áhættustýr-
ingu sparisjóðanna og hafi henni í raun verið ábótavant. Áhættusókn
hafi í raun leitt til falls sparisjóðanna. Ljóst er að sparisjóðirnir töpuðu
gríðarlegum fjármunum á kostnað skattgreiðenda, eða hátt á fjórða
tug milljarða króna. Langstærsti hlutinn af því kemur til vegna Spari-
sjóðsins í Keflavík.
Í skýrslunni er farið yfir helstu
niðurstöður rannsóknarinnar, þar
á meðal starfs- og lagaumhverfi
sparisjóðanna, útlán, fjárfestingar,
stofnfjáraukningar, arðgreiðslur og
fjárhagslega endurskipulagningu
þeirra. Flestum ber saman um
að skýrslan hafi ekki boðið upp á
neinar afgerandi niðurstöður aðrar
en þær að 21 mál mun fara fyrir
ríkissaksóknara. Þau ákvæði sem
málin snerta geta öll varðað fang-
elsisrefsingu. Rannsóknarnefndin
tók þá ákvörðun að nafngreina ekki
viðkomandi aðila né fara nánar út
í atvik mála í skýrslunni. En það
mun væntanlega koma fram síðar.
Þegar umsvif Sparisjóðsins í Kefla-
vík voru mest, í lok árs 2008, hafði
hann 17 afgreiðslustaði víðs vegar
um landið; sex á Suðurnesjum að
höfuðstöðvum meðtöldum, átta á
Vestfjörðum og einn á Hvamms-
tanga, á Ólafsvík og í Borgartúni í
Reykjavík. Sparisjóðurinn virðist
hafa fjarlægst upphaflegt hlutverk
sitt, sem var að efla atvinnulíf og
ávaxta sparifé almennings á Suður-
nesjum. Hagnaður virtist hafa
verið hafður að leiðarljósi og eftirlit
með starfsemi sjóðsins í algjöru
lágmarki á síðustu starfsárunum.
Eftirlit stjórnar í algjöru lág-
marki og stjórnun sparisjóðs-
ins í höndum sparisjóðsstjóra
Í skýrslunni er fjallað um ýmis félög
og einstaklinga sem áttu stórtæk
viðskipti við Sparisjóð Keflavíkur.
Einnig er greint frá lánveitingum
sem veitt voru til starfsmanna, en í
skýrslunni er umfjöllun um stærstu
lántakendur Sparisjóðsins í Kefla-
vík frábrugðin umfjöllun um aðra
sparisjóði sem teknir voru yfir af
Fjármálaeftirlitinu, en þar liggja
ekki fyrir upplýsingar um mat á
útlánum við fall þeirra. Þegar Fjár-
málaeftirlitið tók yfir Spkef árið
2010 voru heildarútlán starfs-
manna 1.520 milljónir króna, þar
af milljarður í erlendri mynt. Þeir
tíu starfsmenn sem skulduðu mest
hjá Spkef skulduðu samtals tæplega
1,1 milljarð króna eða 72 prósent af
öllum lánum til starfsmanna. Það
vekur athygli að hjá Sparisjóðnum
í Keflavík voru ekki til neinar skrif-
legar viðmiðunarreglur um fríð-
indi starfsmanna né eftirlit með
þeim. Vettvangskönnun Fjármála-
eftirlitsins árið 2008 leiddi í ljós að
í Sparisjóðnum í Keflavík voru ekki
til neinar formlegar innri reglur eða
ferlar varðandi áhættustýringu, svo
sem áhættuviðmið, skilgreining á
verkefnum áhættustýringar, verk-
lag vegna lána í tapsáhættu, verklag
ef frávik eru á tryggingum útlána
og verklag við tengingar milli lán-
þega í tengslum við stórar áhættu-
skuldbindingar. Jafnframt voru
engar innri reglur til um álagspróf,
gerð þeirra, tíðni, úrvinnslu eða
eftirfylgni. Niðurstöður skýrslu
Fjármálaeftirlitsins voru á þá leið
að frumkvæði og eftirlit stjórnar
virtist vera í algjöru lágmarki og
stjórnun sparisjóðsins að mestu í
höndum sparisjóðsstjóra.
Breyttar línur í arðgreiðslum
Sparisjóðurinn í Keflavík greiddi
stofnfjárhöfum arð af stofnfé þeirra
milli áranna 2001–2007. Arð-
greiðslurnar námu samtals rúmum
3,9 milljörðum króna, þar af voru
2,8 milljarðar króna vegna ársins
2007. Greiðsla arðs á þessu tímabili
var í samræmi við reglur Trygg-
ingasjóðs sparisjóða, en hin háa
greiðsla vegna 2007 kallar á sér-
staka umfjöllun, að því er kemur
fram í skýrslunni.
Í skýrslunni segir að ljóst hafi verið
að ný stefna hvað snerti arðgreiðslu
hafi verið tekin upp árið 2007. Á
stjórnarfundi í nóvember 2007
var lagt til að hagnaði ársins yrði
varið til greiðslu arðs og nýttar
verði aðrar heimildir eftir því sem
lög og reglur leyfa. Á fundi stofn-
fjáreigenda skömmu síðar lagði
Þorsteinn Erlingsson, stjórnarfor-
maður Sparisjóðsins í Keflavík, til
að stjórn sparisjóðsins skyldi stefna
á að auka stofnfé fyrir áramót og
greiða hærri arð en áður. Þannig
myndi hlutdeild stofnfjáreigenda í
heildar eigin fé aukast.
Á sama fundi gerði Geirmundur
Kristinsson sparisjóðsstjóri grein
fyrir tillögu stjórnar um að henni
yrði veitt heimild til að auka stofnfé
umtalsvert. Samþykkt var að leggja
fram á aðalfundi tillögu um arð-
greiðslu til stofnfjáraðila upp á kr.
3,3 milljarða. Það jafngildir um
það bil 25% arði á stofnfé. Þessi
tillaga var svo ítrekuð og samþykkt
á næsta stjórnarfundi. Aðstoðar-
forstjóri Fjármálaeftirlitsins hafði
samband við sparisjóðsstjóra sím-
leiðis í kjölfarið og óskaði eftir
upplýsingum um útreikning á arð-
greiðsluhlutfallinu. Þar kom m.a.
fram að samkvæmt lauslegum út-
reikningum Fjármálaeftirlitsins
var raunarðsemi ársins 2007 hjá
sparisjóðnum 8,2%. Beðið var um
skýringar á því hvernig 25% arð-
greiðsluhlutfallið var fundið. Ekki
hvíldi lagaleg skylda á Fjármála-
eftirlitinu að hafa eftirlit með arð-
greiðslum sparisjóða. Þetta var eina
skiptið sem Fjármálaeftirlitið hafði
afskipti af arðgreiðslu hjá sparisjóði
og um frekari eftirfylgni eða að-
gerðir var ekki að ræða.
Óhófleg bjartsýni í útlánum
og hirðuleysi við innheimtu
Í september 2008 lagði Fjármála-
eftirlitið fram skýrslu um útlána-
áhættu, markaðsáhættu og eftir-
lit með peningaþvætti hjá Spari-
sjóðnum í Keflavík. Í niðurstöðum
skýrslunnar sagði að útlánasafn
sparisjóðsins væri almennt nokkuð
vel dreift en gæði þess væru vafa-
söm. Vanskil væru í lágmarki en
væru þó að aukast, lán til venslaðra
aðila væru umtalsverð og 90% út-
lána með veði í hlutabréfum væru
tryggð með veði í óskráðum hluta-
bréfum. Fyrirséð væru útlánatöp
vegna ofmats á verðmæti félaga,
óhóflegrar bjartsýni í útlánum og
hirðuleysi við innheimtu lána.
Tryggingaþekja sparisjóðsins
vegna lána með veði í hlutabréfum
Icebank hf. og stofnfjárbréfum
sparisjóðsins var talin óviðunandi.
Þá væru veð sparisjóðsins í fast-
eignum í mörgum tilvikum léleg
og haldbærar tryggingar almennt
of lágar. Var það meðal annars talin
afleiðing þess að regluverk sjóðsins
væri í ólestri og þá sérstaklega hvað
varðaði áhættustýringu. Einnig var
bent á að mikilvægt væri að settar
yrðu reglur um mat á afskriftum
og skjalfest stefna um hlutfall út-
lána til einstakra atvinnugreina.
Þá virtist Fjármálaeftirlitinu sem
stjórn sparisjóðsins hefði ekki sinnt
eftirlitshlutverki sínu með rekstri
sjóðsins á fullnægjandi hátt.
Starfsmenn fóru út fyrir laga-
heimildir
Frá miðju ári 2005 og fram til
ársins 2007 var ekki að finna ítar-
lega umfjöllun innri endurskoð-
anda um útlán Sparisjóðsins í
Keflavík í fundargerðum stjórnar
sjóðsins. Rannsóknarnefndin fékk
ekki afhentar skýrslur innri endur-
Áhersla á gróða og arðsemi
– misstu sjónar af upprunalegu hlutverki Sparisjóðanna
■■ Úr skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis