Víkurfréttir - 02.10.2014, Qupperneq 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUDAGURINN 2. OKTÓBER 2014 • 38. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Hringbraut 99 - 577 1150
ILMANDI
OKTÓBER
15% afsláttur af völdum
dömu og herra ilmum.
Gildir frá 4. - 19. október.
Er kláralega betri
en pabbi gamli
bls 19
Elín Rós
segir jóga eiga vel
við í stjórnmálum
bls 6
Akurskóli í Reykjanesbæ sprunginn
–„Eigum við að sætta okkur við að skólalóðin fyllist af færanlegum skólastofum?,“ spyr foreldrafélagið.
Málefni flugstöðvarinnar hafa verið
í brennidepli sem hér er í skugga
haustsólar. Ein af mörgum flugvélum
að koma inn til lendingar.
Mynd: Einar Guðberg
Húsnæði Akurskóla í Innri Njarðvíker sprungið. Þar eru nú 460 nem-
endur en húsnæði skólans er hannað til
að rúma með góðu móti 320 nemendur.
Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri Reykja-
nesbæjar, segir að nú sé leitað leiða til
að nýta betur húsnæði skólans og koma
betur til móts við þarfir nemenda.
Tveimur lausum kennslustofum hefur
verið komið fyrir á lóð skólans og þriðju
stofunni þarf sennilega að bæta við fyrir
næsta skólaár. Þá er verið að skoða það að
koma upp skilrúmum í tveimur rýmum
í skólanum til að fjölga kennslurýmum
þannig að betur fari um nemendur og
minnka bekkjarstærðir.
Foreldri barna við skólann segir í samtali
við Víkurfréttir að nú sé verið að kenna 65
börnum í rými sem sé hannað til að vera
með 40 börn. Það sé ekki ásættanlegt. For-
eldrar barna í Akurskóla hafa verið boðaðir
til fundar nk. miðvikudag, 8. október. For-
eldrafélagið segir í fundarboði að „glæsilegt
skólahúsnæðið rúmar ekki fyrirhugaðan
fjölda nemenda sem mun hefja skólagöngu
á næstu árum. Þetta þýðir að það frábæra
starf sem búið er að byggja upp og fram fer
í Akurskóla kemur til með að eiga undir
högg að sækja. […] Eigum við að sætta
okkur við að ákveðnum árgöngum verði
keyrt yfir í aðra skóla? Eigum við að sætta
okkur við að skólalóðin fyllist af færan-
legum skólastofum? Eigum við að krefjast
þess að byrjað verði á framkvæmdum við
Dalsskóla?“.
Gylfi Jón segir að ástandið í Akurskóla nú sé
tímabundinn toppur en hliðstæða hafi orðið
í Heiðarskóla sem á sínum tíma hafi verið
leyst með lausum kennslustofum. Í samtali
við Víkurfréttir segir Gylfi Jón að nokkrar
lausnir séu til skoðunar þessa dagana og
verið sé að kostnaðarmeta þær þannig að
hægt sé að kynna þær vel fyrir íbúum og
pólitískum fulltrúum þannig að hægt sé að
taka ákvörðun. Meðal möguleika sem hafa
verið nefndir er að fjölga lausum kennslu-
stofum við skólann, nýta laust kennslurými
í Háaleitisskóla á Ásbrú, taka á leigu hús-
næði í námunda við skólann og að setja
niður lausar kennslustofur í Dalshverfi, þar
sem íbúum er að fjölga eða flýta byggingu
nýs skóla. Gylfi Jón segir alla möguleika
skoðaða fordómalaust. Gylfi Jón segir að sér
hugnist best lausnir fyrir börn í sínu skóla-
hverfi, frekar en að setja upp skólaakstur
með börn á milli hverfa.
Næsti skóli sem mun rísa í Reykjanesbæ
verður í Dalshverfi. Samkvæmt áætlunum
bæjaryfirvalda er gert ráð fyrir að hann rísi
innan fimm ára. Lausar kennslustofur við
Akurskóla verða því væntanlega í notkunn
til þess tíma. Ítarlegri frétt er á vf.is.
„Niðurstöður valferlisins verða til hagsbóta fyrir
samfélagið á Suðurnesjum sem hefur átt undir
högg að sækja. Lögð verður áhersla á að leitast
við að nýta þá starfskrafta áfram sem unnið
hafa í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Engin loforð
hafa verið gefin en þeir starfsmenn hafa forskot
á störfin. Eftir á að hyggja, í ljósi umræðunnar,
hefði líklegra verið ákjósanlegra að hafa tvo val-
nefndarfulltrúa af fimm óháða í stað eins,“ sagði
Ingimundur Sigurpálsson, stjórnarformaður
Isavia, á blaðamannafundi í gær þar sem niður-
stöður valferlis um viðskiptatækifæri á þjón-
ustusvæði í flugstöðinni voru kynntar.
Hlynur Sigurðsson, verkefnastjóri útboðsins
sagði vopnaleitina hingað til hafa verið of hæga
og haft neikvæð áhrif á upplifun farþega í flug-
stöðinni. „Afköst þar verða aukin og sýnileiki
verslana verður eins og best verður á kosið án
þess þó að það trufli farþegana. Salurinn verður
ekki endurbyggður í heild, en innréttaður með
íslenskum áherslum.“
Suðurnesjamenn hafa
forskot á störfin
í Flugstöðinni
Sjónvarp Víkurfrétta
Nýr þáttur á ÍNN í kvöld
kl. 21:30 og 23:30
Körfubolti // Fiskur // Fjölsmiðjan og fl.