Víkurfréttir - 02.10.2014, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR14
www.vf.is
83% LESTUR
+
Capacent Ráðningar
Ármúla 13 // Hvannavöllum 14
Sími 540 1000
DEILDARSTJÓRI
REIKNINGSHALDS
Capacent Ráðningar
Reykjanesbær óskar eftir að ráða deildarstjóra í reikningshald bæjarins. Deildarstjóri ber ábyrgð á bókhaldi Reykjanesbæjar, stofnana og fyrirtækja
sveitarfélagsins. Starfi ð heyrir undir fjármálastjóra.
Um er að ræða fullt starf. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafi ð störf sem fyrst. Launakjör eru skv. kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Helstu verkefni:
• Yfi rumsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi
• Umsjón með fjárhagskerfi nu Dynamics NAV
• Afstemmingar og lokafrágangur mánaðaruppgjöra
• Vinna við árshlutauppgjör og ársreikninga bæjarfélagsins í samvinnu við yfi rmann og
endurskoðendur
• Innra eftirlit og almennt rekstrareftirlit
• Reikningagerð, skýrslugerð og greiningarvinna úr bókhaldi
• Ráðgjöf í bókhalds- og uppgjörsmálum
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðskiptafræðimenntun í reikningsskilum og endurskoðun
• Þekking og reynsla á bókhaldi er skilyrði
• Löggilding til endurskoðunarstarfa kostur og/eða reynsla af störfum á
endurskoðunarstofu
• Þekking á lögum og reglum um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga
• Góð þekking og færni á Dynamics Nav og Excel
• Greiningarhæfni, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Jákvæðni og góðir samstarfshæfi leikar
Umsóknarfrestur er til og með 20. október nk.
ATHUGIÐ: Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfi ð á heimasíðu Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi /lausstorf.
Umsókn um starfi ð þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfi ð.
Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Erik Christianson Chaillot (erik.chaillot@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Einn af útvörðum Faxaflóans, Garðskagaviti, er orðinn 70
ára. Vitinn er jafnaldri lýðveldis-
ins Íslands en hafist var handa
við smíði Garðskagavita sumarið
1944 en vitinn var svo vígður 10.
september það ár. Nú 70 árum
síðar stendur vitinn enn og þjónar
enn sínum tilgangi að lýsa sjófar-
endum um fjölförnustu siglinga-
leið við Íslands fyrir Garðskaga.
Garðmönnum er hlýtt til Garð-
skagavita og héldu mikla sagna- og
menningarveislu á Garðskaga um
liðna helgi til að fagna árunum 70.
Efnt var til guðsþjónustu en einn-
ig var messað á Garðskaga fyrir
70 árum þegar vitinn var vígður.
Hörður Gíslason frá Sólbakka í
Garði rakti sögu Garðskagavita og
sagði frá vitum um allan heim allt
frá tímum Rómverja.
Á Byggðasafninu í Garði sýndi
Kjartan Guðmundur Júlíusson ljós-
myndir frá Garðskaga. Í Hólmsteini
GK, sem er safngripur byggða-
safnsins, voru einnig sýndar ljós-
myndir frá Gerðabryggju frá því
upp úr miðri síðustu öld. Þá sýndu
listamenn úr Garði safn listaverka í
Garðskagavita þar sem listamenn-
irnir hafa sótt innblástur í Garðinn
og Garðskaga.
Þá var boðið til tónlistarveislu í
Garðskagavita þar sem boðið var
upp á söng, harmionikkuspil og
Birna Rúnarsdóttir lék á þverflautu
í vitanum en hljómburðurinn í
Garðskagavita er einstakur, enda
vitinn sá stærsti hér á landi og kjör-
inn til tónlistarflutnings.
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Fjölmenni var í afmælisveislu Garðskagavita.
VF-myndir: Hilmar Bragi
Listamenn sýndu verk sín í vitanum.
TIL LEIGU
ÓSKAST
TIL SÖLU
ATVINNA ÓSKAST
Til leigu er stúdió íbúð Hún leigist
með húsgögnum Og í mánuð
í senn Uppl: í síma 894 1412
Reglusöm fjölskylda óskar eftir
langtíma leigu húsnæði helst í innri
Njarðvík. Öruggar greiðslur og góð
umgengni. Sigga sími 6975815
Toyota Corolla árg 95. Skoðaður
2015. Upplýsingar í s: 8973899.
Óska eftir vinnu er bókari og
gjaldkeri til margra ára hef lokið
prófi í viðurkenndu bókhaldi.
Annars kemur margti til greina
ég sendi ferilskrá ef óskað er.
Sendið á mitt email g.ormsd@
gmail.com ef áhugi er fyrir hendi.
- smáauglýsingar
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Forvarnir með næringu
STAPAFELL
Hafnargötu 50, Keflavík
NÝTT
Opið alla daga
fram á kvöld
FJÖLSMIÐJAN Á
SUÐURNESJUM
Kompan nytjamarkaður er opin alla virka daga frá
kl. 10:00 - 15:00 og til 18:00 á fimmtudögum.
Mikið úrval - góð verð.
Bílaþvottur á góðu verði.
Tímapantanir í síma 421-1551
Útvörður Faxaflóans sjötugur
- afmæli Garðskagavita fagnað