Víkurfréttir - 16.07.2015, Qupperneq 6
6 fimmtudagur 16. júlí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
AUGLÝSINGASÍMINN
ER 421 0001
vf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Olga Björt Þórðardóttir, olgabjort@vf.is
Sigurður Friðrik Gunnarsson, siddi@vf.is
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is og kylfingur.is
ÚTGEFANDI:
AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN:
RITSTJÓRI OG ÁBM.:
FRÉTTASTJÓRI:
BLAÐAMENN:
AUGLÝSINGASTJÓRI:
UMBROT OG HÖNNUN:
AFGREIÐSLA:
PRENTVINNSLA:
UPPLAG:
DREIFING:
DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA:
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl.
17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáaug-
lýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðju-
dögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist
skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á
vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri
útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
OLGA BJÖRT ÞÓRÐARDÓTTIR
RITSTJÓRNARPISTILL
Virðing, þekking og reynsla
Þegar óvæntur hlykkur kemur
á lífsleiðina eins og þegar al-
varleg veikindi verða, standa
sjúklingur og aðstandendur
ringlaðir og ríghalda í trú og
von um að allt fari á besta veg.
Í slíku ferli er nærvera heil-
brigðisstarfsfólks og samskipti
við það af afar stór þáttur í
minningunni þegar litið er til
baka. Hvernig sem fer.
Sem aðstandandi sjúklings í líknandi meðferð var
mikið öryggi fólgið í því að vita af móður minni
í góðum höndum heimahlynningar Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja og afar dýrmætt hversu lengi
mamma gat dvalið heima hjá sér í veikindum sínum,
nánast fram á síðasta dag. Það var líka vegna þess að
faðir minn gat aðstoðað hana við athafnir daglegs
lífs og verið henni nauðsynlegur félagsskapur. Ég
fylgdist oft með samskiptum mömmu og pabba við
hjúkrunarfræðingana og sjúkraliðana sem komu
daglega til þeirra. Færnin, þekkingin, reynslan,
hlýjan, húmorinn og mannþekkingin voru algjör.
Eins og fram kemur í viðtali Víkurfrétta við Margréti
Blöndal hjúkrunarfræðing, sem stýrir 17 kvenna
teyma heimahjúkrunar og heimahlynningar, eru að-
standendur alltaf stór þáttur í því að fólk geti verið
veikt heima. Boðið hefur verið upp á líknandi með-
ferð í heimahúsum frá því Sigurður Árnason krabba-
meinslæknir hóf störf hjá HSS árið 2003. Sú þjónusta
er opin bók á þann hátt að þarfir og aðstæður eru
metnar hjá hverjum og einum og snýst þjónustan um
samvinnu og handleiðslu.
Heildarfjöldi vitjana heimahjúkrunar og heima-
hlynningar HSS var tæp 30 þúsund í fyrra, til 434
einstaklinga. Yngstu skjólstæðingar heimahjúkrunar
hafa verið allt niður í nokkurra daga ungabörn.
Öllum aldurshópum er sinnt en verkefnin eru mjög
mismundi, allt frá næringu og/eða lyfjagjöf í æð yfir í
aðstoð við böðun. Góð samvinna er við aðrar deildir
HSS eins og Margrét bendir á í viðtalinu eru Suður-
nesin landfræðilega vel til þess fallin að veitt sé góð
heimaþjónusta; heimahjúkrun og félagsleg þjónusta.
Það er einstakt fólk starfar við þetta á Suðurnesjum,
flestir úr samfélaginu á staðnum og því með mikla
tengingu við það. Slíkt er ómetanlegt og kallar fram
trúnað, traust og öryggiskennd sjúklinga og aðstand-
enda á erfiðum tímum. Vonandi fær þessi þjónusta
að eflast og dafna áfram, öllu samfélaginu til góðs.
„Nú er framkvæmdum á útliti
Hótel Keflavík og Diamond Su-
ites á efstu hæð hótelsins loksins
lokið og er útkoman framar bestu
vonum,“ segir Steinþór Jónsson
hótelstjóri og vísar í meðfylgj-
andi mynd sem ljósmyndarinn
Ozzo tók af hótelinu um síðustu
helgi. Allt efnisval, lýsing og
hönnun hótelsins hefur alfarið
verið í höndum hótelstjórans
Steinþórs sem leitar jafnan eftir
góðum hugmyndum í ferðum er-
lendis, hjá eigin starfsmönnum
og tugum iðnaðarmanna sem
hann segir hafa staðið sig einstak-
lega vel síðustu tvö ár við fram-
kvæmdina að eigin sögn.
Stórbrotið úsýni yfir Keflavíkina
„Á efstu hæðinni má sjá útlitið á
Diamond Suites, fyrsta 5 stjörnu
lúxushóteli landsins, útilýsingu og
nýja heita potta sem eru vel stað-
settir með stórbrotið útsýni yfir
Keflavíkina, Reykjanesið og Bláa
Lónið. Við pottana er komið mjög
fullkomið hljóðkerfi og sér arin-
eldur verður við hvorn pottinn.
Stærsta svítan er 260 fermetra og
mun bjóða uppá þessar einkasvalir,
lúxusbaðkör, ljós, hljóðkerfi og
húsbúnað frá fremstu hönnuðum
heims,“ segir Steinþór og bætir við
að til að gestir Diamonds Suites
geti notið útsýnisins enn betur yfir
Keflavík verði þjónustustigið með
því besta sem þekkist. Veitingar
KEF restaurant og líkamsrækt-
araðstaða Lífstíls verði í boði allan
sólarhringinn fyrir gesti sem gista
á þessum lúxus svítum og munu
starfsmenn hótelsins fara í kennslu
strax í haust sem er hugsuð fyrir
starfsmenn fimm stjörnu hótela.
Að auki verði starfsfólki boðið á
námskeið í almennri þjónustu,
förðun og hárgreiðslu svo eitthvað
sé nefnt,“ segir Steinþór.
Allra skemmtilegasta
viðbótin hingað til
Öll rými Diamond Suites hafa nú
verið tekin í gagnið en lúxusbún-
aður og fimm stjörnu þjónusta
verður komin á fullt síðar í vetur.
Gegnheilar hurðar úr Eik frá TSA
í Njarðvík eru komnar í notkun
með allra nýjasta hurðarstýrikerfi
Ving Card, sem er stærsti fram-
leiðandi heims á því sviði, en þeirra
nýjasta afurð fyrir lúxushótel, All-
ure, var fyrst sett upp í heiminum
á Diamond Suites. Gólf hafa verið
flísalögð með Versace flísum og
eru stigagangar nú í sömu vinnslu.
„Eftir tæpa 30 ára uppbyggingu
hótelsins þá er Diamond Suites
allra skemmtilegasta viðbótin
hingað til og mjög spennandi að
vera fyrst til að bjóða uppá alvöru
lúxusgistingu á hóteli hér á landi. Á
þessu stigi sér maður að rýmið og
herbergin standast samanburð við
það allra besta og þá er bara þetta
nýja þjónustustig sem við verðum
að sanna okkur með. Ég held að
það takist líka vel með okkar góða
starfsfólki,“ segir Steinþór.
Herbergjanýting
oft yfir 100%
Eftir langbesta vetur í sögu hótels-
ins þar sem nýting var yfir 90% þá
segir Steinþór nýtinguna í sumar
alveg 100% og oftar en ekki vel
yfir það þegar áhafnir koma inn
á óreglulegum tímum hægt er að
nýta herbergin tvisvar sinnum á
sama sólarhringnum. Þá hefur
meðalverð á gistingu hækkað tölu-
vert samhliða auknum gæðum á
herbergjum og almennri uppbygg-
ingu. „Það er ekki spurning að sú
fjárfesting er að skila sér en þessi
gæði gera okkur líka auðveldra að
skilgreina okkur fyrir gesti sem vilja
greiða fyrir betri gæði og þjónustu.
Lúxushótel hugmyndin byggir því
á þessari reynslu og nýjum mögu-
leikum til að auka tekjur án þess að
stækka frekar en fjölgun herbergja
er síðan næsta skref og verður að
veruleika fyrr enn seinna,“ segir
Steinþór að lokum.
FRAMKVÆMDUM Á EFSTU HÆÐ HÓTELS KEFLAVÍK LOKIÐ:
STARFSFÓLKIÐ FÆR NÁM-
SKEIÐ Í LÚXUSÞJÓNUSTU