Víkurfréttir - 16.07.2015, Side 12
12 fimmtudagur 16. júlí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
„Við vorum að gefa út plötu sem
við köllum Vettlingatök. Við
fengum hana til landsins um dag-
inn og nú eru hún komin í allar
helstu hljómplötuverslanir, fys-
ískar og stafrænar. Okkur finnst
þessi plata frábær. Við vonum
að þér finnist
það líka,“ segir
H a l l b j ö r n V.
Rúnarsson (Halli
Val l i ) , s öng v-
a r i o g g í t a r-
leikari suður-
nesísku hljóm-
s v e i t a r i n n a r
Æ lu o g b æ tir
v ið að örl ít ið
erfitt hafi verið
fyrir bandið að
klára þetta ferli.
„Það var ekkert
erfitt að semja
þessi lög. Það
v a r e i g i n l e g a
erfiðara að muna þau því þetta
var á svolítið löngum tíma. Við
þurftum bara að eignast fullt af
börnum og skoða heiminn betur
á sama tíma. Það dró þetta svo-
lítið á langinn.“
Fyrsta plata hljómsveitarinnar,
Sýnið tillitssemi, ég er frávik, kom
út í júlí 2006. Hljómsveitin fylgdi
plötunni vel eftir með tónleika-
haldi um allt land, og fór einnig í
þrjár tónleikaferðir á árunum 2007
og 2008, til Bretlands og Frakk-
lands, þar sem hún átti í viðræðum
við plötuútgefendur og tónleika-
haldara. Hljómsveitin hefur einnig
verið fastur liður í dagskrá Iceland
Airwaves öll ár síðan 2005. Ælu
hefur verið líkt við bönd eins og
The Minutemen,
Shellac, Les Savy
Fav, Purrkur Pill-
nikk og Slint.
H l j óms ve i t i n a
s k i p a H a f -
þór Skúlason á
trommur, Hall-
björn V. Rúnars-
son á gítar og
syngur, Sveinn
Helgi Hafþórs-
son á bassa og
Ævar Pétursson
á gítar. „Frá upp-
hafi hefur það
verið takmarka-
laus orka, gleði
og hispurslaus og skemmtileg
framkoma á tónleikum sem hefur
vakið athygli. Sú blanda var einmitt
kjarninn í markmiðum bandsins
fyrir upptökur á þessari plötu: Að
virkja óreiðuna, kraftinn, fárán-
leikann og gamanið sem einkennir
hljómsveitina Ælu. Því var hljóm-
platan öll tekinn upp lifandi með
alla meðlimi í sama rými. Engin
önnur leið var valmöguleiki,“ segir
Halli Valli.
Upptökur annaðist Sveinn Helgi
Halldórsson, bassaleikari Ælu og
upptökustjóri ársins 2013. Hljóð-
blöndun var í höndum Alberts
Finnbogasonar og Finnur Há-
konarsson masteraði. Gísli Dúa
tók einstaka ljósmynd sem prýðir
plötuumslagið.
Æla sendir frá sér myndband við
lagið „Your Head is my Ground“
innan skamms og fylgir útgáfunni
eftir með tónleikum á Paddy’s
í Keflavík, 16. júlí og í Reykjavík
stuttu seinna. Plötuna á má finna
í öllum helstu plötuverslunum og
helstu stafrænu sölumiðlum.
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Alltaf gaman
að fara til Eyja
Jón Arnór Sverrison er 17 ára Njarðvíkingur. Hann
vinnur sem málari í sumar og æfir körfubolta.
Aldur og búseta?
17 ára og á heima í Njarðvík
Starf eða nemi?
Nemi í FS.
Hvernig hefur sumarið verið hja þér?
Sumarið hefur verið mjög fínt hjá mér.
Hvar verður þú að vinna í sumar?
Er að vinna hjá pabba í því að mála.
Hvernig á að verja sumarfríinu?
Bara æfa körfu,lyfta og vinna og svo nátturulega bara
gera eitthvað skemmtilegt með vinum minum.
Ætlar þú að ferðast í sumar, og hvert þá?
Fór á NM í Svíþjóð og svo er EM framundan.
Eftirlætis staður á Íslandi?
Alltaf gaman að fara til Eyja
(Vestmannaeyjum).
Hvað einkennir íslenskt sumar?
Allir verða hressari og betra veður og svona.
Áhugamál þín?
Körfubolti og Fótbolti
Einhver sem þú stundar aðeins á sumrin?
Hef alltaf bara verið í fótbolta á sumrin og
körfu svo á veturnar, en er hættur í fótbolta
núna þannig að maður er bara í körfunni.
Hvað ætlar þú að gera um Verslunarmannahelgina?
Verð úti á EM.
Hvað fær þig til þess komast í sumarfíling?
Gott veður, grill og fótbolti.
Hvað er sumarsmellur-
inn í ár að þínu mati?
Haltu fast í höndina á mér - Sálin.
Hvað er það besta við sumarfríið?
Fara til útlanda, útileigur og bara frí í skólanum.
En versta?
Það er ekkert slæmt við sumarið finnst mér,
nema að það mætti vera betra veður bara.
Uppáhalds grillmatur?
Grillað lambalær klikkar ekki.
Sumardrykkurinn?
Appelsín.
Jó
n
A
rn
ór
Sv
er
ri
so
n
UMSJÓN:
PÁLL ORRI PÁLSSON
POP@VF.IS
Gunnar Þórðarson
& Jón Ólafsson
í Hljómahöll
– Af fingrum fram í október
XuS p j a l l t ó n l e i k a r ö ð i n A f
fingrum fram hefur gengið fyrir
fullu húsi í Salnum í Kópavogi
síðustu sex árin og nú mætir
gestgjafinn í Stapann ásamt
sjálfum Gunnari Þórðarsyni sem
þarf vart að kynna fyrir Suður-
nesjamönnum.
Lög þessa meistara melódíunnar
eru löngu greypt í þjóðarsálina og
mun hann flytja sín þekktustu lög
milli þess sem hann rabbar við Jón
Ólafsson um einstakan tónlistar-
feril og lífshlaup.
Tónleikarnir verða þann 24.
október og hefjast kl. 20:30. Húsið
opnar kl. 19:30. Miðasala er hafin.
Fagurgalinn, af plötunni Straumhvörf:
Elíza Newman
gefur út nýtt lag
XuFagurgalinn og er annað lagið til að koma út
af fjórðu sóló breiðskífu Elízu, Straumhvörf, sem
kemur út seinna á árinu. Lagið er tekið upp og
unnið með Gísla Kristjáns í studio Stereohóll.
Elíza hefur undanfarið unnið að nýrri sólóplötu
sinni ásamt því að hafa nýlokið við að koma fram
með Kolrössu Krókríðandi í mjög vel heppnaðri
endurkomu sveitarinnar á 17. júní og hátíðartón-
leikum í Hörpu 19. júní.
Fagurgalinn skírskotar eilítið til Kolrössu í hljómi
þar sem lagið er meira rokk en Elíza hefur verið að
fást við nýlega og einnig er fiðlan komin inn aftur í
trylltu fiðlusólói. Elíza hefur gefið út og samið mörg
vinæl lög eftir að hún hóf sólóferlll sinn og má þar
nefna Ukulele song for you, Eyjafjallajökull, Stjörn-
uryk og Hver vill ást?, ásamt Eurovision laginu Ég
syng. Útgefandi er Lavaland Records. Lagið er á ton-
list.is og spotify og fleiri stöðum. (Rafræn útgáfa).
Hljómsveitin Æla gefur út plötuna Vettlingatök:
„Þurftum að eignast fullt af
börnum og skoða heiminn“
TRJÁKLIPPINGAR -TRJÁFELLINGAR
í görðum og sumarbústaðalöndum.
Öll almenn garðaumhirða.
Gerum tilboð.
Áratuga reynsla og fagmennska.
GRÆNU KARLARNIR EHF.
Kristján Bjarnason garðyrkjufræðingur // s. 848 2418.