Víkurfréttir - 16.07.2015, Síða 16
„Staðan hjá okkur er mun betri
núna heldur en fyrir rúmri viku
síðan. Þær aðgerðir sem við
fórum í að biðja farþega um að
mæta fyrr hafa skilað góðum
árangri, nú mæta farþegar fyrr
og innritun opnar fyrr,“ segir
Guðni Sigurðsson upplýsinga-
fulltrúi Isavia vegna ófremdar-
ástands í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar í vopnaleit. Langar biðraðir
mynduðust við vopnaleitina en
bilanir hafa verið í nýjum ör-
yggisleitarlínum sem settar voru
upp í vor. Þá hefur aukning ferða-
manna verið enn meiri en gert var
ráð fyrir.
„Við höfum við náð fjórum nýjum
öryggisleitarlínum í notkun og
þjálfað mikið af starfsmönnum á
þær. Þær eru með sjálfvirku bakka-
kerfi þannig að bakkarnir koma
til baka á neðra færibandi og fær-
ast sjálfir til farþegans. Nú ganga
raðirnar því hraðar, en við erum
ennþá með mjög mikinn farþega-
straum um flugstöðina, allt upp í
22-23 þúsund manns á sólarhring
þessa stærstu daga og við búumst
við þessum tölum í júlí og ágúst
á sunnudögum og fimmtudögum
sérstaklega.“
Guðni segir samstarfið hafa verið
sérlega gott við flugfélög og inn-
ritunaraðila og innritunaraðilar
hafi verið fljótir að bregðast við og
opnað innritun fyrr á morgnana til
þess að hægt væri að dreifa álaginu.
„Nú hefst innritun á þessum álags-
tímum um þremur tímum fyrir
brottför og við hvetjum fólk ennþá
til þess að mæta snemma til þess að
forðast langar raðir og geta notið
tímans betur í upphafi ferðalags-
ins,“ segir Guðni.
vf.is
-mundi
Fínt að vera í fyrra fallinu
og skella sér á barinn í Leifsstöð.FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ • 28. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
Eyjólfur Sverrisson
Nú er sumarið komið
sem ég er búin að bíða
eftir!
Rúnar Ingi Hannah
Var ég búinn að nefna
það að Gunni Nelson
er frændi minn. Vá
hann var rosalegur.
Magnús
Valgeirsson
Þoli ekki þegar maður
býður einhverjum
nammi og viðkomandi
tekur meira en eitt,
maður var ekki að bjóða nömm,
sem er fleirtalan af nammi. Sumt
fólk kann sig ekki.
Tómas J. Knútsson
Óopinber hitamælir á
pallinum sýnir 22°hita,
eða eins og Guð-
mundur afastrákur
sagði í den, mamma
það er alltaf Mallorca veður í
Sandgerði.
Jón Kr. Magnússon
Leiran í dag með
þessum fallegu kylf-
ingum.
VIKAN Á
VEFNUM
Northern Light Inn er 32 herbergja hótel
í Svartsengi (við Bláa Lónið), Grindavík.
Við erum einnig með veitingastaðinn
Max’s Restaurant á sama stað sem tekur
150 manns í sæti.
Á Northern Light Inn / Max’s Restaurant
starfar hópur af samhentu starfsfólki og
við leggjum áherslu á að fá til liðs við
okkur fólk sem hefur gaman af vinnunni,
er þjónustulundað, gestrisið og leggur
áherslu á samvinnu og gleði.
www.nli.is.
Ef þú hefur áhuga á að ganga til liðs við okkur
hafðu þá endilega samband við Friðrik Einarsson
í síma 852 1907 eða sendu tölvupóst með upplýsingum
um þig á fridrik@nli.is. Öllum umsóknum verður svarað
og við hvetjum konur sem karla til að sækja um hjá
okkur. Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí 2015.
Gestamóttaka
Við leitum að áreiðanlegu samstarfsfólki með ríka þjónustulund til starfa í gestamóttöku Northern Light Inn.
Starfið felst í samskiptum við gesti og ferðaskrifstofur, undirbúning fyrir komu og brottför gesta, úrlausn þeirra
verkefna sem upp koma hverju sinni sem og önnur verkefni sem falla til í margbreytilegu starfi gestamóttökunnar.
Góð enskukunnátta er skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur. Reynsla af störfum í gestamóttöku eða öðrum
þjónustustörfum er kostur. Við leitum að einstaklingi með góða samskipta- og samstarfs hæfni sem sýnir sjálfstæði
í vinnubrögðum. Unnið er á 2-2-3 vaktakerfi og er vinnutíminn frá kl. 07:00 til kl. 19:00.
Vaktstjóri í veitingasal
Við leitum að þjóni eða manneskju með reynslu af störfum þjóns. Um er að ræða stöðu vaktstjóra á veitingastað
hótelsins, Max’s Restaurant. Góð enskukunnátta er skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur. Við leitum að
einstaklingi með góða samskipta- og samstarfshæfni sem sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum. Unnið er á
2-2-3 vaktakerfi og er vinnutíminn frá kl 10:30 til kl. 22:30.
Við leitum að framtíðarstarfsfólki í eftirfarandi stöður:
Framtíðarstörf
Við viljum fá þig í hópinn
Aldrei hafa fleiri farþegar farið um flugstöðina en
síðustu vikurnar og ástandið verður þannig til sumarloka.
Biðraðir við innritun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gríðarlegt álag í stöðinni:
Farþegar tóku vel við
ábendingum og mæta fyrr
-um 23 þúsund farþegar á sólarhring þegar mest er