Víkurfréttir - 14.04.2016, Síða 2
2 fimmtudagur 14. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR
Haraldur Axel Einarsson hefur verið
ráðinn skólastjóri Heiðarskóla. Var
ráðning hans samþykkt einróma á
fundi bæjarráðs í síðustu
viku.
Haraldur lauk kennara-
námi með B.Ed. gráðu
árið 2005 frá Kennara-
háskóla Íslands og hefur
frá árinu 2013 stundað
meistaranám við Há-
skóla Íslands í uppeldis-
og menntunarfræðum
með áherslu á stjórnun.
Hann á að baki far-
sæla reynslu af kennslu
og stjórnun innan grunnskóla, en
hann hefur verið aðstoðarskóla-
stjóri Heiðarskóla síðastliðin þrjú
ár, en áður var hann deildarstjóri og
kennari við skólann. Hann hefur auk
þess áralanga reynslu af
rekstrarstjórnun.
Haraldur Axel mun taka
við skólastjórastarfinu
af Sóleyju Höllu Þór-
hallsdóttur sem lætur
af störfum 1. maí næst-
komandi.
Þrír sóttu um skóla-
stjórastöðu Heiðarskóla.
Umsækjendur voru:
Gerður Ólína Steinþórs-
dóttir, Haraldur Axel Einarsson og
Hólmfríður Árnadóttir.
Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa gef-
ist upp á ítrekuðum sóðaskap þeirra
sem virða ekki reglur sem gilda á jarð-
vegstipp á Stapanum. Þrátt fyrir að
eingöngu megi losa þar ómengaðan
jarðveg eins og grjót, möl, sand, mold
og leir, steypubrot, hellur og steypt rör
og garðaúrgang eins og túnþökur, trjá-
greinar, gras og matjurta- og blóma-
leyfar, þá eru alltof margir sem fara
þangað með bílfarma af rusli ýmis
konar og henda á svæðinu.
Heilu eldhúsinnréttingarnar og sófa-
settin hafa endað í tippinum sem
og annað sorp sem síðan fýkur um
allan Stapann og yfir byggðina í Innri
Njarðvík.
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðs-
stjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar,
segir að nú sé nóg komið. Nú er ekki
lengur hægt að hafa svæðið opið og
því hefur verið ákveðið að setja upp
læst hlið að svæðinu. Verktakar sem
þurfa að losna við jarðvegsútgang
þurfa því að nálgast lykil að hliðinu
hjá Reykjanesbæ.
Guðlaugur Helgi segir að hliðið verði
sett upp á næstu dögum og að þá
þurfi jafnframt að hreinsa svæðið af
því rusli sem þar hefur safnast upp.
Bærinn hefur þurft að leggja í mik-
inn kostnað við hreinsun og hefur
fjúkandi rusl skapað íbúum í Innri
Njarðvík óþægindum.
Íbúakosningin kostaði 3 milljónir
Hafa gefist upp
á ítrekuðum
sóðaskap
●● Loka●jarðvegstipp●með●læstu●hliði
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis-
sviðs Reykjanesbæjar, við skilti sem segir til um hvað
má losa og hvað má ekki losa á svæðinu.
Mikið magn af rusli er á jarðvegstippnum.
Þetta rusl á heima í Kölku en ekki í náttúrunni á Stapanum. VF-myndir: Hilmar Bragi
Haraldur Axel ráðinn
skólastjóri Heiðarskóla
■ Kostnaður Reykjanesbæjar vegna
rafrænnar íbúakosningar um breyt-
ingu á deiliskipulagi í Helguvík var
3.033.928 krónur. Auk þess greiddi
Þjóðskrá kostnað við kosninguna.
Íbúakosningin fór fram 24. nóvem-
ber til 4. desember síðastliðinn og
tóku aðeins 8,71 prósent kosninga-
bærra íbúa í Reykjanesbæ þátt í
henni.
Niðurstaðan varð sú að 50,4 prósent
voru hlynnt breytingu á deiliskipu-
lagi í Helguvík en 48,3 prósent á móti.
Fyrr á síðasta ári höfðu um 2800
íbúar Reykjanesbæjar skrifað undir
yfirlýsingu þess efnis að efnt yrði til
íbúakosningar um breytingar á deili-
skipulagi í Helguvík vegna byggingar
á kísilveri Thorsil ehf. við Berghóla-
braut.
Ók utan vegar
og festi bíl sinn í
Lambhagatjörn
■ Lögreglunni á Suðurnesjum barst
í vikunni sem leið tilkynning þess
efnis að bifreið sæti föst í Lambhaga-
tjörn. Í ljós kom að ökumaðurinn
var búinn að stunda akstur utan
vegar við tjörnina. Hann viður-
kenndi brot sitt en kvaðst þó ekki
hafa vitað að þarna mætti ekki vera
á ferð á ökutækjum, þó að við veginn
væri skilti sem bannar allan akstur
utan vegar.
Þá varð umferðaróhapp í umdæminu
þar sem lítilli bifreið var ekið aftan
á hópferðabifreið. Ökumaður fyrr-
nefndu bifreiðarinnar fann til eymsla
eftir atvikið og ætlaði sjálfur að leita
læknis.
Tveir teknir með
fölsuð skilríki
■ Tveir ferðamenn hafa á undan-
förnum dögum verið stöðvaðir með
fölsuð skilríki í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar. Í báðum tilvikum var um
breytifölsuð vegabréf að ræða. Lög-
reglan á Suðurnesjum færði menn-
ina á lögreglustöð, þar sem rætt var
við þá, og eru mál þeirra komin í
hefðbundið ferli.
TVÆR LEIKSKÓLA-
STJÓRASTÖÐUR
LAUSAR TIL UMSÓKNAR
Leikskólinn Heiðarsel. Reykjanesbær auglýsir starf leik-
skólastjóra við leikskólann Heiðarsel laust til umsóknar
frá og með 1. ágúst 2016. Umsóknarfrestur er til 1. maí
nk. Heiðarsel er heilsuleikskóli sem starfar eftir heilsu-
stefnunni. Í skólanum eru fjórar deildir með um það bil 100
börnum á aldrinum tveggja til sex ára.
Leikskólinn Tjarnarsel. Einnig er laust starf leikskólastjóra
í leikskólanum Tjarnarseli frá og með 1. ágúst 2016. Áherslu-
þættir Tjarnarsels eru vettvangsferðir, umhverfismennt, úti-
nám, mál og læsi ásamt efniviði til listsköpunar. Leikskólinn
hefur fjórum sinnum tekið við Grænfánanum.
Leitað er að drífandi og metnaðarfullum einstaklingum sem
búa yfir leiðtogahæfni og hafa víðtæka þekkingu á leik-
skólastarfinu.
Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Frekar upplýsingar um leik-
skólastjórastöðurnar veitir Kristín Helgadóttir leikskólafull-
trúi Reykjanesbæjar, kristin.helgadottir@reykjanesbaer.is.
Umsóknum í báðar stöður skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/lausar-stodur,
þar sem einnig er að finna upplýsingar um menntunar- og
hæfniskröfur til umsækjenda og skil umsóknar.
STÖRF Í VINNUSKÓLA
FYRIRLESTUR
UM STRÍÐSÁRIN
Í DUUS SAFNAHÚSUM
Bókasafn Reykjanesbæjar
SILKIÞRYKK
NÁMSKEIÐ
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vinnuskóla sumarið 2016
fyrir nemendur í 9. og 10. bekk. Vinnutími er mánudaga til
fimmtudaga frá 08:00 til 16:00, hádegismatur 12:00 - 13:00.
Ekki er unnið á föstudögum í sumar.
Umsóknum skal skilað á vef Reykjanesbæjar,
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf, þar sem
einnig er að finna nánari upplýsingar.
Einnig er bent á upplýsingasíður Vinnuskólans,
www.vinnuskolinn.wordpress.com og Facebook:
Vinnuskóli Reykjanesbæjar.
Páll B. Baldvinsson heldur fyrirlestur um bók sína
„Stríðsárin 1938-1945“ í Bíósal Duus Safnahúsa í dag,
fimmtudaginn 14. apríl kl. 17.30. Fyrirlesturinn er í boði Duus
Safnahúsa, Bókasafn og Byggðasafns Reykjanesbæjar og
Sögufélags Suðurnesja.
Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
Laugardaginn 16. apríl kl. 13.00 verður silkiþrykk námskeið í
Bókasafni Reykjanesbæjar á vegum Gillian Pokalo. Nauð-
synlegt er að skrá sig á námskeiðið í afgreiðslu safnsins eða
gegnum heimasíðuna sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn