Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.2016, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 14.04.2016, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 14. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR 0% 50% 100% 150% 200% 250% Landsmeðaltal Reykjanesbær Sandgerðisbær Vogar Grindavík Garður 48% 58% 104% 167% 244% 84% Hlutfall skulda af árstekjum sveitarfélaga á Suðurnesjum La nd sm eð alt al ■ Viðskiptaráð hefur opnað vef þar sem gefst kostur á því að bera saman skatta og gjöld allra sveitarfélaga á landinu. Hægt er að slá inn upplýsingar um búsetu, fjölskyldusamsetningu, tekjur og stærð húsnæðis og finna út hvar hagstæðast er að búa. Hér á landi eru 74 sveitarfélög og í töflunum hér fyrir neðan má sjá samanburð álögum sveitarfélaganna eftir fjölskyldustæð og tekjum. Á vefnum má sjá yfirlit yfir skatta, gjöld og skuldir sveitarfélaganna. Einnig má bera niðurstöður saman við landsmeðaltal og stilla upp samanburði milli ákveðinna sveitarfélaga. Með opnun vefsins vill Viðskiptaráð auka gagnsæi um skattheimtu, gjöld og skuldsetningu á sveitarstjórnarstigi. Á vef Viðskiptaráðs má einnig finna yfirlit og samanburð á skuldastöðu allra sveitarfélaga á Íslandi. Skuldir Garðs og Grindavíkur undir landsmeðaltali Foreldrar, eitt barn í leikskóla, eitt í grunnskóla, 100 fermetra húsnæði, 1.000.000 kr. í mán- aðarlaun Garður 15. sæti Vogar 36. sæti Reykjanesbær 42. sæti Sandgerði 52. sæti Grindavík 57. sæti Einstaklingur í 50 fermetra íbúð, 400.000 krónur í mánaðarlaun Grindavík 26. sæti Garður 29. sæti Reykjanesbæar 66. sæti Vogar í 69. sæti Sandgerði 70. sæti Sex manna fjölskylda, eitt barn hjá dagmömmu, eitt á leikskóla og tvö í grunnskóla, 180 fermetra hús og 900.000 krónur í mán- aðarlaun Vogar 3. sæti Grindavík 20. sæti Sandgerði 22. sæti Reykjanesbær 29. sæti Garður 39. sæti Isavia hefur undanfarið unnið að breytingum á skiltum og leiðbein- ingarkerfi flugvallarins í heild með það að markmiði að auðvelda far- þegum að komast leiðar sinnar innan flugstöðvarinnar. Hlið verða nú að- greind með lit og bókstaf eftir því í hvaða hluta flugstöðvarinnar þau eru og hvort þau eru fyrir flug til áfangastaða innan eða utan Schen- gen svæðisins. Leiðbeiningakerfið er hugsað til framtíðar og mun falla vel að framtíðaruppbyggingu samkvæmt þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar. Hliðin sem hafa bókstafina A og C eru fyrir áfangastaði innan Schengen svæðisins en þau sem hafa bókstafinn D eru fyrir áfangastaði utan Schengen. Þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar gerir ráð fyrir nýjum brottfararhliðum til austurs og vesturs frá norðurbygg- ingu. Þau nýju hlið munu í fram- tíðinni vera merkt A og B og hliðin í suðurhluta flugstöðvarinnar bera bókstafina C og D. Auðvelda farþegum að komast leiðar sinnar ●● Breyttar●merkingar●í●FLE Breyttar merkingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. vinalegur bær REYKJANESBÆ R ATVINNA Vegna mikillar vinnu þá vantar bílstjóra bæði á sendi- og flutningabíla.  Um er að ræða bæði fastráðningu og sumarafleysingar þar sem menn ganga í öll störf. Lágmarksaldur 18 ára. Vinsamlegast skilið inn umsóknum á bfaerseth@mitt.is. AÐALFUNDUR Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Keavíkur og nágrennis verður haldinn  í  Krossmóa  4,  5. hæð,  þriðjudaginn 26. apríl nk. kl. 20:00. Dagskrá • Venjuleg aðalfundarstörf. • Önnur mál. Kaveitingar verða á fundinum. Félagar ölmennum! Stjórnin Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja fór fram þann 7. apríl síðastliðinn. Í ræðu formanns fé- lagsins, Skúla Skúlasonar, kom fram að hagn- aður móðurfélagsins var 27 milljónir og í sam- stæðu félagsins var hagnaðurinn 120 milljónir. Eigið fé KSK nemur 215 milljónum. Félagsmenn KSK eru 5117 og fjölgaði um tæp- lega 500 á árinu. Ómar Valdimarsson sagði frá rekstri Samkaup hf. og gestur fundarins var Þuríður Aradóttir, markaðsstjóri Markaðs- stofu Suðurnesja. Spurður um framgang uppbyggingar við Rósasel sagði Skúli að verkefnið væri í eðli- legum farvegi. Fólk þyrfti að vera þolinmótt þar sem skipulagsmálin þurfa að hafa forgang og þau ættu að liggja fyrir í haust. Þá ætti að vera hægt að hefjast handa við framkvæmdir. KSK hagnast og félögum fjölgar Frá aðalfundi Kaupfélags Suðurnesja. VF-mynd: Páll KetilssonAuglýsingasíminn er 421 0001

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.