Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 6
6 fimmtudagur 2. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is
Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta,
vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent-
aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Strandblak-
völlur vígður á
Sjóaranum
■ Ungmennaráð Grindavíkur ætlar
að vígja formlega strandblakvöll í
nýja ungmennagarðinum í Grinda-
vík á Sjóaranum síkáta. Blásið
verður til grillveislu og fyrsta strand-
blakmótsins í Grindavík þegar ung-
mennagarðurinn verður vígður
laugardaginn 4. júní klukkan 20:00.
Um er að ræða löglegan keppnisvöll
með öryggissvæði í kring. Jafnframt
verður tekin í notkun kósýróla við
vígslu ungmennagarðsins. Strand-
blakvöllurinn er hluti af ungmenna-
garðinum sem er hluti af skólalóð
grunnskólans. Ungmennaráð hefur
unnið að ungmennagarðinum síðast-
liðið ár, meðal annars er búið að setja
þar aparólu, grillskýli og kósýskýli. Nú
bætist við strandblakvöllur og kósý-
róla og í næsta áfanga er gert ráð fyrir
trampólínkörfuboltavelli.
Forseti Íslands
flytur hátíðar-
ræðuna
■ Herra Ólafur Ragnar Grímsson,
forsti Íslands, flytur hátíðarræðuna
á hátíðarhöldum Sjómannadags-
ins, sunnudaginn 5. júní n.k. Þetta
verður væntanlega ein af síðustu
embættisskyldum forsetans en hann
lætur af störfum í sumar.
Sjóarinn á sam-
félagsmiðlum
■ Athygli er vakin á því að dagskrá
Sjóarans síkáta er hægt að nálgast í
nýja Grindavíkurappinu. Hátíðin er
einnig á Snapchat: sjoarinnsikati. Þar
munu fulltrúar Sjóarans síkáta sjá
um stýra Sapchat aðganginum, meðal
annars frá lita-hverfunum fjórum,
ungmennaráði og ýmsum fleiri.
Sjóarinn síkáti er einnig á Instagram,
og er fólk hvatt til að nota #sjoarinnsi-
kati og skella inn myndum. Þá er Sjóar-
inn síkáti á Facebook í gegnum síðu
Grindavíkurbæjar. Heimasíða Sjóarans
síkáta er www.sjoarinnsikati.is.
Forseti Íslands
á Sjóaranum
síkáta
■ Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, flytur hátíðarræðuna
á hátíðarhöldum Sjómannadagsins
í Grindavík sunnudaginn 5. júní
næstkomandi á Sjóaranum síkáta.
Hátíðarræðan verður væntanlega ein
af síðustu embættisskyldum forsetans
en hann lætur af störfum í sumar.
Risa rokktónleikar verða á Sjóaranum
síkáta í Grindavík fimmtudaginn 2.
júní næstkomandi klukkan 21:00 í
íþróttahúsinu, í tilefni af 20 ára af-
mæli Sjóarans síkáta. Þar verður þakið
sprengt af húsinu en alls koma fram
15 flytjendur, sem flestir búa í, hafa
búið í eða tengjast Grindavík á ein-
hvern hátt. Þetta fólk kemur úr ólíkum
áttum en á það sameiginlegt að njóta
þess að flytja frábæra tónlist. Hópur-
inn ætlar að flytja framsækið rokk (e.
Progressive Rock), sem átti sitt blóma-
skeið á áttunda áratugnum. Flutt verða
lög eftir hljómsveitir á borð við Pink
Floyd, Marillion, Yes og Queen, í
bland við nýrra efni. Þessi hópur var
með tónleika í Menningarvikunni fyrr
á árinu í Grindavíkurkirkju og sló í
gegn. Nú verður blásið í alla herlúðra
og blásið til enn stærri og kraftmeiri
rokkveislu.
Hugmyndin kviknaði hjá Sveini Ara
Guðjónsyni, Sólnýju Pálsdóttur og
syni þeirra Guðjóni eftir að þau fóru
í tónlistarsiglingu í Karabíska hafinu
á síðasta ári þar sem stór hópur tón-
listarfólks víðsvegar að úr heiminum
kom saman í þessum tilgangi. Undir-
búningur fyrir þá tónleika fór fram
í gegnum veraldarvefinn og þegar á
svið var komið voru flestir að sjást í
fyrsta skipti. Fékk fjölskyldan þá hug-
mynd eftir ferðina byggja á svipaðri
hugmyndafræði og safna saman tón-
listarfóki til að halda uppi heiðri þess-
arar tónlistarstefnu.
Tónlistin er oft og tíðum krefjandi og
óvenjuleg, en lögin voru valin með
því markmiði að hver sem er sem
hefur áhuga á tónlist geti haft gaman
að. Flutt verða lög sem flestir þekkja
í bland við nokkrar „faldar perlur”.
Lögin eru fjölbreytt og hópur flytj-
enda eftir því. Hljómsveitarstjóri er
Guðjón Sveinsson. Þeir sem koma
fram eru: Söngur: Bergur Ingólfsson,
Bjarni Halldór Kristjánsson, Ellert
Jóhannsson, Helgi Jónsson, Páll Jó-
hannesson, Sólný I. Pálsdóttir, Tómas
Guðmundsson og Urður Bergsdóttir.
Gítar: Bjarni Halldór Kristjánsson og
Guðjón Sveinsson. Hljómborð: Gísli
Þór Ingólfsson og Kristján Krist-
mannsson. Saxófónn: Kristján Krist-
mannsson. Þverflauta: Telma Sif
Reynisdóttir. Bassi: Sveinn Ari Guð-
jónsson og Þorsteinn Ý. Ásgeirsson.
Trommur: Einar Merlin Cortez og
Hreiðar Júlíusson.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
Rokkið lifir á
Sjóaranum síkáta
Undirbúningur hefur staðið yfir frá
því í ársbyrjun og verður mikið lagt
í hátíðina í ár. Barnadagskráin er í
öndvegi en búið er ráða Villa og Góa,
Gunna og Felix, Einar Mikael, íþrótta-
álfinn, Sollu stirðu, Sigga sæta, Gogga
Mega, Sirkus Ísland, Pílu pínu, brúðu-
bílinn og fleiri. Þá verða leiktæki og
hoppukastalar alla helgina, paintball
og lazertag, vatnaboltar, gokart, dorg-
veiðikeppni, skemmtisigling, sjópulsa
í höfninni, krakkakeyrsla á mótor-
hjólum, andlitsmálning, svo eitthvað
sé nefnt.
Einnig verður fiskasafn með lifandi
sjávardýrum í fiskabúrum á bryggj-
unni á sunnudeginum en það er sam-
starfsverkefni Sjóarans síkáta, Hafró í
Grindavík, Gunna kafara og sjávarú-
vegsfyrirtækjanna í Grindavík. Var
þetta gert í fyrsta skipti í fyrra og sló
algjörlega í gegn. Einnig hafa frysti-
togarar Þorbjarnar safnað saman
ýmsum furðufiskum og verða þeir til
sýnis fyrir gesti og gangandi. Sullubúr
verður fyrir krakkana þar sem þau
geta komist í tæri við krabba, skeljar
og minni fisktegundir.
Óhætt er að segja að landslið skemmti-
krafta verði á Sjóaranum síkáta í ár.
Á meðal þeirra sem búið er að bóka
á Sjóarann síkáta er Páll Óskar sem
kemur fram bæði á Bryggjuballi og
verður með Palla-ball í íþróttahús-
inu. Bræðurnir Jón og Friðrik Dór
Jónssynir munu skemmta saman
ásamt hljómsveit á bryggjuballinum
og heimamaðurinn Ellert Heiðar Jó-
hannsson sem sló í gegn í The Voice
treður upp ásamt hljómsveit sinni.
Ingó Veðurguð sér um brekkusöng
eins og honum einum er lagið. Þá
verður keppnin Sterkasti maður á Ís-
landi á sínum stað og er met þátttaka
í ár.
Þá mun hópur tónlistarfólks í Grinda-
vík standa fyrir klassískri rokkhátíð
í íþróttahúsinu. Alls koma fram 15
flytjendur, sem flestir búa í, hafa búið
í eða tengjast Grindavík á einhvern
hátt. Þetta fólk kemur úr ólíkum áttum
en á það sameiginlegt að njóta þess
að flytja frábæra tónlist. Hópurinn
ætlar að flytja framsækið rokk sem átti
sitt blómaskeið á áttunda áratugnum.
Flutt verða lög eftir hljómsveitir á
borð við Pink Floyd, Marillion, Yes og
Queen, í bland við nýrra efni.
Björgunarsveitin Þorbjörn kemur að
skipulagningu og gæslu á hátíðinni
með öflugum hætti að vanda og er
í lykilhlutverki á hátíðinni. Hátíðin
hefur vaxið með hverju árinu, þar
er fjölbreytt dagskrá alla helgina en
mikið er lagt upp úr vandaðri barna-
dagskrá. Um 25 þúsund gestir voru á
hátíðinni í fyrra.
Líf og fjör á
Sjóaranum síkáta
HAFNARGÖTU 35 REYKJANESBÆ
Formerkt nafnahandklæði
Stærð 1.0 x.50
Áður kr. 1990,- Nú á opnunnar tilboði kr. 990,-
Einnig bjóðum við merkingar í handklæði
sem áður kostuðu kr. 1850.- á kr 1000.-
Verið velkomin að líta inn, margt að sjá.
Reynum að halda okkur við að vera með
minnst 80% af vöruúrvali okkar íslenskt