Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 19
19fimmtudagur 2. júní 2016 VÍKURFRÉTTIR ÍÞRÓTTIR Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is Elías á skots- kónum í norska boltanum Daníel Leó kom inn á sem vara- maður í Suðurnesjaslag ■ Keflvíkingurinn Elías Már Óm- arsson skoraði fyrra mark Vale- renga í 2-2 jafntefli gegn Aalesund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. Var þetta annað mark Elíasar á leiktíðinni. Í liði Aalesund leikur Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson, en hann kom inn á sem varamaður í byrjun seinni hálfleiks. Aalesund er í 12. sæti deildarinnar en Valerenga í því 13. eftir tíu um- ferðir. Sandgerðingar stigalausir í 3. deild ■ Það gengur hvorki né rekur hjá Reynismönnum í 3. deild karla í fót- bolta. Þeir töpuðu 2-4 á heimavelli sínum gegn Kára um liðna helgi. Þorsteinn Þorsteinsson og Birkir Freyr Sigurðsson skoruðu fyrir Sandgerðinga í leiknum. Sand- gerðingar hafa tapað öllum þremur leikjum sínum í deildinni og hafa fengið á sig þrjú mörk, að meðaltali, í leik. Stefan Alexander Ljubicic mun á næstunni yfir- gefa æskuslóðirnar í Keflavík og halda til Brighton á Englandi. Þar hefur hann samið við lið Brighton Hove Albion sem leikur í næst efstu deild Englands. Stefan er aðeins 16 ára en hann hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og æft með meistaraflokki Keflavíkur undanfarin tvö ár. Hann lék þrjá leiki í Pepsi-deildinni í fyrra og hefur verið í hópnum í byrjun tímabils í 1. deildinni. Eftir frábæra frammistöðu með 17 ára liði Íslands þar sem Stefan á að baki átta leiki, þá fór hann að vekja athygli liða á Bretlandseyjum. Fyrir utan Brig- hton fór Stefan á reynslu til skoska stórliðsins Celtic og enska liðsins Norwich. „Mér leist best á Brighton. Þeir eru með nýja akademíu og hugsa vel um mann innan vallar sem utan. Mér leið vel þar,“ segir Stefan sem heldur utan eftir mánuð. „Þetta verður bara ævintýri, vona ég. Það verður erfitt en ég elska fót- bolta mest í heiminum og stefni á að ná langt,“ segir framherjinn ungi sem verður 17 ára í október. „Eng- land finnst mér vera hjarta fótboltans. Það vilja allir leikmenn koma til Englands,“ bætir hann við. Stefan fór á reynslu hjá Brighton þar sem leikið var gegn sterku unglingaliði Chelsea þar sem Kefl- víkingurinn skoraði mark og lék afar vel. Strax eftir þann leik var honum boðið að koma til liðsins. Brighton er spennandi borg að sögn Stefans, en hún er á Suður Englandi í um 20 til 30 mínútna fjar- lægð frá London. Áður en ákvörðun var tekin þá ráðfærði Stefan sig við nokkra aðila. Hann ræddi meðal annars við Keflvíkinginn Samúel Kára Frið- jónsson sem leikið hefur með Reading á Englandi frá unglingsaldri. „Hann sagði mér að þetta geti verið erfitt þar sem maður er fjarri vinum og fjöl- skyldu. Þetta getur líka verið magnað. Maður verður leiður á einhverjum tímapunkti. Maður þarf bara að vera sterkur og njóta.“ Lið Brighton var nálægt því að komast upp í úrvalsdeild nú í vor en það féll úr keppni í útsláttarkeppni á síðustu stundu. Var efnilegur í körfubolta Stefan var góður í körfuboltanum á sínum tíma en hætti fyrir rúmlega tveimur árum. Hann ætlaði sér þó alltaf að velja fótboltann sem hann segir hafa verið rétta ákvörðun. Hann er hávaxinn svona miðað við fótboltamann, enda 193 cm á hæð. Hann gnæfir orðið yfir fjölskylduna sína. „Þetta er frekar furðulegt. Ég veit ekki hvaðan þetta kemur, það er enginn stór í fjölskyldunni.“ Stefan á ekki langt að sækja fótboltahæfileikana en hann er sonur Zoran Ljubicic sem gerði það gott sem leikmaður og síðar þjálfari hjá Keflavík. Nú er Stefan framherji en hann getur einnig leikið í holunni svokölluðu fyrir aftan framherjana. Áður fyrr lék hann á miðjunni í varnarsinnuðu hlutverki. „Pabbi færði mig framar og kenndi mér stöðuna. Það gekk vel og ég fór að skora mörk. Ég á honum margt að þakka. Hann og Haukur þjálfari hafa kennt mér mikið og þakka ég þeim óendanlega fyrir.“ Stefan er sjálfur metn- aðarfullur og hefur lagt hart að sér til þess að verða góður leikmaður. „Ég æfi eitthvað á hverjum degi. Ef það er ekki æfing þá fer ég bara út í fótbolta eða fer niður á völl og fer að skjóta. Það er leyndarmálið, aukaæfingar.“ Bojan eldri bróðir Stefans er leikmaður í meistara- flokki Keflavíkur eins og Stefan. Það kemst því lítið annað að en fótbolti á heimilinu. „Fótbolti er það eina sem er í sjónvarpinu og við erum alltaf að tala um fótbolta heima,“ segir Stefan að lokum. ENGLAND ER HJARTA FÓTBOLTANS ● Hinn 16 ára Stefan Ljubicic úr Keflavík samdi við 1. deildarlið Brighton Aðspurður um fyrirmynd í fótbolt- anum þá nefnir Stefan Svíann Zlatan Ibrahimovic. Hann er einmitt stór framherji sem býr yfir mikilli tækni, þannig að Stefan er frekar líkur Sví- anum sterka á velli. Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir fagnaði um helgina Evrópu- meistaratitli í Crossfit annað árið í röð. Njarðvíkingurinn Sara átti í harðri keppni við löndu sína An- nie Mist Þórisdóttir en að lokum stóð Sara uppi sem sigurvegari. Hún leiddi allt mótið og vann að lokum tíu stiga sigur, hlaut 650 stig á meðan Annie hlaut 640 stig. Sara sigraði tvær greinar, varð tvisvar í öðru sæti og í því þriðja, en í einni grein hafnaði hún í fimmta sæti. Um hundrað félagar Söru úr Crossfit Suðurnes komu saman í Sporthúsinu á Ásbrú til þess að fylgjast með henni í lokagreinunum. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út þegar ljóst var að Sara hefði sigrað. Fjölskylda Söru og aðrir Suður- nesjamenn fjölmenntu einnig til Madrid til þess að hvetja hana til dáða. Ragnheiður Sara Evrópumeistari annað árið í röð ● Fer á heimsleikana í Los Angeles í sumar Rúmlega 100 æfingafélagar Söru hjá Crossfit Suðurnes mættu í Sporthúsið til þess að fylgjast með sinni konu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.