Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 33

Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 33
Dagskrá á hátíðarsviði á Bryggjuballi: • Ingó Veðurguð með brekkusöng þar sem allir taka undir. • „Trúbadorar“ úr hverju hverfi taka lagið. Reiptog hverfanna • Páll Óskar Hjálmtýsson ásamt dönsurum. • Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór ásamt hljómsveit. • Ellert úr The Voice ásamt hljómsveitinni Von. Aðal-braut: Opið til kl. 05:00 um morguninn. Grillið opið allan tímann. Söluturninn: Opið alla nóttina. Kl. 22:00 Bryggjan-kaffihús: Bubbi og Vignir (Guðbrandur Einarsson og Vignir Bergmann) leika lifandi tónlist fyrir gesti. Kl. 23:00 Kanturinn. Gilz ásamt Sverri Bergmann og Dj Óla Geir sjá um fjörið fram á rauða nótt (aðgangseyrir). Kl. 00:00 Salthúsið: Eldhúsið opið frá kl. 11.30-22:00. Diskó frá miðnætti. Ókeypis aðgangur. Kl. 00:00 Papa‘s Barinn: Dúbilló spilar eftir bryggjuballið og eldhúsið opið fram á nótt. Laugardagur 6. júní: Söguratleikur Grindavíkur 2016 sem byggir á heimildum um Tyrkjaránið. Tyrkjaránið í Grindavík 1627, þegar 12 Íslendingum, þar af helmingur Grindvíkingar og þremur Dönum var rænt í Grindavík, auk áhafnar á kaupfari utan við víkina. Sýnilegar minjar og sögur um atburðinn eru við- fangsefni ratleiksins. Bókstafi og tölustafi á hverjum stað þarf að færa inn á lausnarblaðið og skila því í Kvikuna ekki síðar en 24. júní. Dregið verður úr réttum lausnum og það tilkynnt í Jónsmessugöngunni á Þorbirni 25. júní. Vinningar: Gjafabréf í Bláa Lónið og þriggja rétta máltíð á Lava Restaurant. Sjá nánar á bls. 11. Kl. 08:00 Sjóarinn Síkáti – ÞORBJÖRN h/f, hið vinsæla golfmót Golfklúbbs Grindavíkur verður leikið með SHOT- GUN fyrirkomulagi, sem þýðir að þátttakendur eru allir ræstir út samtímis. Mótið hefst stundvíslega kl. 08:30 laugardaginn 4. júní. Kylfingar eru beðnir um að mæta tímanlega til leiks. SHOTGUN ræsing gerir það að verkum að einungis 88 keppendur komast að í mótinu. Opnað verður fyrir skráningu þann 21. maí. Leikið er með punktafyrirkomulagi og einnig eru verðlaun fyrir besta skor. Veglegir vinningar eru í boði en uppistaða vinninga eru fiskafurðir. ÞORBJÖRN h/f styrkir mótið af miklum myndarbrag. Nú er um að gera að missa ekki af þessu einstaka tækifæri og spila golfmót á Húsatóftavelli, því Grindvíkingar eru sannarlega höfðingjar heim að sækja. Sjáumst hress og kát á glæsilegum 18 holu golfvelli. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin með forgjöf og efsta sætið án forgjafar. Einnig verða nándarverðlaun á öllum par 3 holunum og að sjálfsögðu munum við draga út vinninga úr skorkortum viðstaddra í lok verðlaunaafhendingar. Hámarksforgjöf karla er 24 og kvenna er 28. Skráning fer fram á www.golf.is Þátttökugjald er 4.000 kr. Kl. 09:00 Knattspyr- numót á æfingasvæði Grindavíkur í 6. flokki drengja. Keppt er í A, B, C og D liðum og er von á 200 þátttakendum, fyrir utan foreldra og forráðamenn. Kl. 10:00 – 18:00 Kvikan, auðlinda- og menningarhús – Hafnargötgu 12A. Opið á Saltfisksýninguna, jarðorkusýninguna og Guðbergsstofu. Kl. 10:00 – 19:00 Opnunartími Sundlaugar Grindavíkur Kl. 11:00 Sjóvá kvennahlaup ÍSÍ. Hlaupið frá íþrótta- miðstöðinni. 3 vegalengdir í boði; 3, 5 og 7 km. Frá árinu 1990 hafa konur um allt land sameinast í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ til að minna hverja aðra á mikilvægi hreyfingar. Það er skemmtilegt að hreyfa sig og hreyfing þarf alls ekki að snúast um keppni. Bolir seldir í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar. Verð á bolunum er 2.000 kr. fyrir 13 ára og eldri, en 1.000 kr. fyrir 12 ára og yngri. Kl. 11:00 Minja- og sögufélagið stendur fyrir framhalds- göngu um Þórkötlustaðahverfið. Loftur Jónsson verður leiðsögumaður. Mæting við innkeyrsluna að Hrauni. Gengið að Hrauni. Kl. 11:30-14:00 Sjómannastofan Vör: Tilboð af grillmatseðli. Palóma: Opið frá 12:00 og fram eftir degi. Hjá Höllu: Okkar vinsæli matseðill auk þess að nóg verður til af kökum, brauði og ýmsum heilsudrykkjum. 12:00-14:00 Bílskúrssala. Kíktu við á Túngötu 19. Föt, bækur, tölvuleikir, DVD, vídeóspólur, leikföng, húsgögn og bara allskonar. Kl. 12:00 (ATH! Breyttur tími) Skemmtisigling fyrir alla fjölskylduna. Farið um borð frá Ísfélagi Grindavíkur við Mið- garð. Vinsamlegast mætið eigi síðar en 15 mínútum fyrir brot- tför. Kl. 12:20 Bylgjan í beinni frá Sjóaranum síkáta. Kl. 13:00-18:00 Blómakot. 15% afsláttur af öllum vösum. Hlutavelta, engin 0. Kl. 13:00 Kanturinn: Brakandi ljúffeng humarsúpa, klúbb samlokur og börgerar, kaldur á Kantinum. Kl. 13:00-16:00 Andlitsmálun við Kvikuna. Ókeypis fyrir öll börn. Kl. 13:00 – 18:00 Leiktæki frá Sprell og Skemmtilegt.is á hafnarsvæðinu fyrir krakka á öllum aldri. Kl. 13:00 – 17:00 Slysavarnardeildin Þórkatla: Í sölugámi á hátíðarsvæði verður candy-flos, blöðrur og ýmislegt góðgæti til sölu, í Kvikunni verður til sölu kaffi, heitt kakó ásamt köku og heitum vöfflum. Kl. 13:00 – 17:00 Handverksfélagið Greip með opið hús í aðstöðu félagsins að Skólabraut 8. Fjöldi glæsilegra muna til sýnis. Kl. 13:00-17:00. VIGT Hafnargata 11. Verslun og vinnustofa opin. Kl. 13:00 – 17:00 Hand- verksmarkaður. Staðsettur á efri hæð í Kvikunni. Fjölbreytt úrval af ýmis konar handverki. Kl. 13:00 – 22:00 „Paintball“ og „Laz- ertag“ á Lands- bankatúninu. Aðgangseyrir. Kl. 13:00-17:00 Gokart fyrir framan Ísfélagið. Aðgangseyrir. Kl. 13:00 – 17:00 Veltibíll Sjóvá á hátíðarsvæðinu. Kl. 13:00 – 18:00 Vatnaboltar – við Fiskmarkað Suðurnesja. Aðgangseyrir. Kl. 14:00 – 17:00 Félag slökkviliðsmanna í Grindavík verður með opið hús í slökkvil- iðsstöðinni. Kl. 13:00 – 17:00 Skemmtidagskrá við hátíðarsvið o Sterkasti maður í heimi. Stærsta keppnin til þessa. Keppt í 4 greinum báða dagana. Fyrsta og síðasta grein dagsins verða við hátíðarsviðið, hinar við löndunarkantinn eða á götunni: Myllu- ganga, drumbalyfta, uxaganga og trukkadráttur. o Gunni og Felix skemmta o Bjössi Bolla og Bjarni töframaður skemmta o Einar Mikael töframaður o Siggi sæti og Goggi mega o Brúðubíllinn (ca. kl. 15:00 við hátíðarsviðið) o Sirkus Ísland o Söngatriði frá Þru- munni. Seinni hluti keppninnar Sterkasti maður í heimi Íslandi fer fram á sunnudegi. Kl. 14:00-17:00 Vísir hf. kynnir nýsköpun og hátækni á vegum fyrir tækisins á opnu húsi að Miðgarði 3 um sjómanna- helgina. Opið laugardag og sunnudag. Verið velkomin! Kl. 14:00 Hópkeyrsla bifhjóla frá Bláa Lóninu, ekið inn í bæinn niður Víkurbraut, Ránagötu og inn á Seljabót í gegnum hátíðarsvæðið niður Ægisgötu og stoppað við VIRKIÐ klúbb- hús Grindjána, hjólum raðað upp til sýnis. Grindjánar bifhjólaklúbbur ásamt öðrum klúbbum. Kl. 14:30 – Kappróður í höfninni. Land- og sjósveitir karla og kvenna. Lið frá hverju hverfi taka þátt. Allar sveitir sem vinna fá pizzuveislu á Papas. Kl. 15:00 – 17:00 Bacalao-mótið í knattspyrnu. Knattspyrnumót fyrir 30 ára og eldri, fyrrum knattspyrnuhetjur Grindvíkinga nær og fjær. Saltfiskveisla um kvöldið. Nánar á www.bacalaomotid.is Kl. 15:30 (eða strax á eftir kappróðri) Sjópulsan á ferð um höfnina. Tvenns konar ferðir; Ferð ofurhugans 13 ára og eldri – Ferð með yngri um höfnina. (Er háð veðri.) Kl. 16:00 – 17:00 Grindjánar bifhjólaklúbbur við Fiskmarkaðinn. Ókeypis krakkakeyrsla. Börn fá að sitja aftan á bifhjólum og fara hring. Mömmur fá að fara rúnt á eftir. Kl. 20:00-22:00 Vígsla á strandblakvellinum í Ungmenna- garðinum. Ungmennaráð vígir ungmennagarðinn og býður í grillveislu á á fyrsta Strandblakmótinu í Grindavík. Skráning í lið á staðnum. DJ heldur uppi stuðinu. Kvölddagskrá: Aðal-braut: Opið alla nóttina. Grillið opið allan tímann. Söluturninn: Opið alla nóttina. Salthúsið: Hádegisverðar brunch frá kl: 11.30- 14:00. Eldhúsið opið til kl. 22:00. Kl. 21:00. Tónleikar með Vinum Dóra. Þeir eru: Halldór Bragason gítar og söngur, Guðmundur Pétursson gítar, Jón Ólafs bassi, Ásgeir Óskarsson trommur. Miðaverð 2.000 kr. Frá miðnætti: Dansleikur. Hljómsveitin Baggabandið ásamt gestasöngvara skemmtir. Miðaverð 2.500 kr. dagskrasjoari2016_2:dagskra2016 24.5.2016 17:10 Page 6

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.