Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 20
20 fimmtudagur 2. júní 2016VÍKURFRÉTTIR Keflvíkingar unnu mikilvægan sigur á grönnum sínum úr Grindavík í 1. deild karla í fótbolta í dag. Leikur- inn fór fram í Bítlabænum og unnu heimamenn 2-0 sigur með mörkum frá Magnúsi Þóri Matthíassyni og Sigurbergi Elissyni. Það er hægt að tala um óskabyrjun Keflvíkinga en að sama skapi um mar- tröð fyrir Grindvíkinga. Gestirnir færðu Keflvíkingum þá mark á silfur- fati þegar Hlynur Hlöðversson mark- vörður þeirra sendi aukaspyrnu beint fyrir fætur Magnúsar Matthíassonar sem skoraði auðveldlega í autt markið strax á 2. mínútu. Klaufalegt hjá Grindvíkingum sem þó voru sterkari aðilinn framan af leik. Þeir héldu bolt- anum vel en komust lítið áleiðis gegn vel skipulagðri vörn Keflvíkinga sem lágu aftarlega á vellinum og sóttu hratt þegar færi gafst. „Þeir gerðu bara engin mistök í dag. Það skilur á milli þar sem við gerum tvö mjög afdrifarík mistök í leiknum. Það er eitthvað sem við verðum að læra af. Við gerum okkar hluti ágæt- lega en það er lítið sem við getum gert í þessu. Við vorum ekki alveg nógu beittir og stundum slitnir í varnar- leiknum. Þannig að það eru nokkrir litlir hlutir sem við þurfum að vinna í á æfingasvæðinu,“ sagði Gunnar Þor- steinsson, miðjumaður Grindvíkinga, í leikslok. „Það vantaði kannski smiðshöggið í sókninni, þessa síðustu sendingu. Það var mikið um pústra í leiknum en það er við því að búast enda er þetta Grindavík-Keflavík,“ bætir hann við. Grindvíkingar höfðu verið á mikilli siglingu og unnið þrjá fyrstu leiki sína í 1. deild auk þess að vera komnir í 16 liða úrslit bikarkeppninnar. „Lið sem ætlar sér að gera eitthvað þarf að koma sterkt til baka þegar það lendir í mót- læti, við munum bara halda áfram.“ Það var ekki mikið um hættuleg færi í fyrri hálfleik og liðin voru að fikra sig áfram. Sóknarleikur beggja liða var ekkert sérstaklega beittur og því má auðveldlega tala um miðjumoð. Í síðari hálfleik breyttist ekki mikið í leiknum. Grindvíkingar fengu mikið af hornspyrnum og nokkrum auka- spyrnum sem nýttust ekki nægilega vel. Það var svo á 66. mínútu sem Kefl- víkingar fengu aðra gjöf frá Grindvík- ingum. Þá var Magnús Matthíasson á leið út úr teig Grindvíkinga eftir horn- spyrnu, þegar Hlynur markvörður virðist fella hann. Dómarinn benti á punktinn og vítaspyrna niðurstaðan. Sigurbergur Elisson steig upp og sendi boltann rakleiðis í netið. Keflvíkingar því komnir í kjörstöðu og á brattan að sækja fyrir Grindvíkinga. Talsverður hiti færðist í leikinn eftir seinna markið en menn héldu þó haus. Kefl- víkingar lönduðu sigrinum og eru því enn ósigraðir í 1. deildinni. Miðjumaðurinn Jónas Guðni Sæv- arsson í Keflavíkurliðinu var maður leiksins að margra mati enda kom ekki margt framhjá honum á miðjunni. „Þetta var mjög svo gott. Sérstaklega það að halda hreinu og ég var hriklega ánægður með hvað við vorum agaðir og með fókus allan leikinn.“ Kefl- víkingar voru ekki að standa undir væntingum að margra mati áður en kom að leiknum gegn Grindavík. „Ég veit ekki hvort þetta var léttir. Mér fannst ekki vera komin einhver pressa á okkur. Það er bara gott að vinna og að halda hreinu,“ sagði jaxlinn Jónas og bætti við. „Ég er í rauninni bara mjög sáttur við hvernig þetta hefur byrjað. Ég meina, við erum ekki búnir að tapa leik. Við erum að finna takt- inn og hvernig okkur líður best. Þegar við erum þéttir og beitum skyndi- sóknum þá erum við mjög öflugir. Ég geri mér þó grein fyrir að við munum stjórna fullt af leikjum í sumar. Þegar við erum með boltann þá opnumst við dálítið en við erum að vinna í því að vera þéttari og skynsamari þegar við missum boltann.“ Jónas virðist í fantaformi svona í upphafi sumars. Hann skoraði í sínum fyrsta heima- leik eftir langa útlegð erlendis og í Vesturbænum. „Það þarf bara að láta vita að maður sé kominn heim, það er bara þannig. Það var mjög ljúft. Ég hef aldrei verið betri. Ég er bara eins og rauðvínið, verð bara betri með aldrinum,“ segir Jónas sem er 33 ára. Svarið var svo stutt og laggott þegar Jónas var spurður út í það hvort hann yrði mættur í Keflavíkurbúning í Pepsi deildina næsta sumar. „Já“ Grindvíkingar sem voru með fullt hús stiga fyrir leikinn fóru niður í 2. sæti með ósigrinum og hafa níu stig. Kefl- víkingar eru nú aðeins einu stigi á eftir þeim gulklæddu í 3. sæti með átta stig. Keflvíkingar sækja KA-menn heim á laugardaginn á Akureyri en að margra mati fara þar tvö sterkustu lið 1. deildarinnar. Grindvíkingar fá Leikni R. í heimsókn í kvöld, fimmtudag, en oft hefur verið talað um að þessi tvö lið muni veita hinum ofangreindu hvað mesta samkeppni í baráttunni um sæti í Pepsi deildinni. Gjafmildi Grindvíkinga færði Keflvíkingum sigur í Suðurnesjaslag ●● Grindvíkingar●af●toppnum● ●● Stigi●munar●á●Suðurnesjaliðunum Eftir mikinn baráttuleik þá var það draumamark frá hinni 16 ára gömlu Anitu Lind Daníelsdóttur sem tryggði Keflvíkingum sigur gegn grönnum sínum frá Grindavík þegar liðin áttust við í 1. deild kvenna. Niðurstaðan varð 1-0 en markið kom í uppbótartíma þar sem Anita lét vaða af löngu færi og boltinn small í slánni og inn. Rosaleg negla í samskeytin sem markvörður Grindvíkinga réði ekkert við. „Þetta var geðveikt. Ég er að fara grenja hérna, sko,“ sagði markaskorarinn og hló í viðtali við Víkurfréttir nokkrum augnablikum eftir markið magnaða. „Ég hugsaði bara um að klára þetta, hitta rammann. Þetta er drauma- mark og gaman að skora svona,“ bætti Anita við. Keflvíkingum hefur ekki gengið mjög vel gegn grönnum sínum undanfarin tímabil. „Við höfum ekki náð að vinna þetta lið sem þær eru með núna. Þetta er allt annað lið en á undirbúningstíma- bilinu og ég er rosalega ánægð með þennan sigur. Þessi sigur hafði heldur betur mikla þýðingu fyrir okkur. Þetta var erfiður leikur enda eru þær drullugóðar. Við erum þó með góða hlaupagetu og erum duglegar, það skilar okkur sigrum.“ Keflavíkur- konur hafa byrjað mótið vel og hafa ekki ennþá tapað leik. „Þessi byrjun okkar er fín. Ég var pínu stressuð fyrir þennan leik enda gegn Grindavík, en maður þarf að halda kúlinu,“ sagði unglingalandsliðsmaðurinn Anita sem er ein af mörgum efnilegum stelpum í liði Keflvíkinga. Í fyrri hálfleik var jafnræði með lið- unum en heimakonur í Keflavík voru ívið sprækari. Taflið snerist svo við í síðari hálfleik og Grindvíkingar réðu ferðinni og áttu fleiri færi. Þær voru nokkrum sinnum nærri því að skora en Sarah Magdalene Story í marki Keflvíkinga átti frábæran dag og varði oft og tíðum meistaralega. Grind- víkingar náðu næstum að komast framhjá henni en skot sem rataði yfir hana hafnaði í slánni og Keflvíkingar sluppu með skrekkinn. Þegar allt virtist svo stefna í jafntefli fengu Keflvíkingar skyndisókn á 93. mínútu. Anita Lind vann þá boltann á eigin vallarhelmingi og tók á mik- inn sprett. Þegar hún var við það að nálgast vítateiginn þá lét hún vaða með sínum öfluga vinstri fæti. Boltinn sveif fallega og hafnaði eins og áður segir í samskeytunum. Sannkallað draumamark og Keflvíkingar ærðust af fögnuði. Keflvíkingar hafa nú unnið báða leiki sína og eru í efsta sæti B- riðils 1. deildar. Guðmundur Valur Sigurðsson, þjálf- ari Grindvíkinga, var skiljanlega ekki sáttur í leikslok. „Mér fannst við vera mun sterkari í seinni hálfleik og áttum fullt af tækifærum til þess að klára en nýttum það ekki og fengum þetta því bara beint í andlitið, sem er súrt. Þetta var frábært skot hjá henni.“ Grind- víkingar höfðu unnið 9-0 sigur í fyrsta leik Íslandsmótsins en Keflvíkingar komu þeim gulklæddu aftur á jörð- ina. „Ég held að þetta séu bara tvö ágætis lið. Mér finnst við hefðum átt að hirða sigurinn en svona er fótbolt- inn. Við höldum ótrauðar áfram en þetta drepur okkur ekki. Við stefnum ótrauðar á að vera að berjast um sæti í efstu deild. Það eru óvenju margar stelpur sem eru að æfa og spila með meistaraflokki Grindavíkur. Kvenna- boltinn er í toppmálum þar eins og undanfarin ár.“ Suðurnesjaliðin leika bæði á útivelli í kvöld, fimmtudag. Grindvíkingar heimsækja Hauka á meðan Keflvík- ingar leika gegn Aftureldingu. ●● Ungt●Keflavíkurlið●byrjar●af●krafti Undramark í blálokin réði úrslitum í grannaslagnum Draumamark Anitu og afdrifarík mistök í tvöföldum Suðurnesjaslag ■ Það var óneitanlega sérstakt að Keflavík og Grindavík mættust í 1. deild, bæði karla og kvenna, núna með tveggja daga millibili á Nettóvellinum í Reykjanesbæ. Leikir milli þessara Suðurnesjarisa í fótboltanum eru alltaf fjörugir og baráttan alltaf örlítið meiri en í öðrum leikjum. Að þessu sinni voru það Keflvíkingar sem komu sigurreifir úr báðum viðureignum. Karlalið Keflavíkur hafði 2-0 sigur að þessu sinni þar sem stór mistök Grindvíkinga reyndust dýrkeypt. Kvennaleikurinn var stál í stál þar sem úrslitin réðust með sannkölluðu draumamarki hinnar 16 ára Anitu Lindar Daní- elsdóttur í blálokin. Barátta í teignum. Það er alltaf sérstök stemmning í leikjum Keflvíkinga og Grindvíkinga. Ekkert gefið eftir um baráttuna um boltan.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.