Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 18
18 fimmtudagur 2. júní 2016VÍKURFRÉTTIR Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Reykjavík Reykjanesbæ Steypugljái á stéttina í sumar Superseal og Clear Guard steypugjái Steypugljáinn sem endist! VIÐBURÐIR DAGSKRÁ SJÓMANNADAGS Sjómannamessa á vegum Ytri-Njarðvíkurkirkju og dagskrá í Duus Safnahúsum 5. júní kl. 11:00. Nánari upplýsingar um viðburðina er að finna á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/upplysingatorg/ dagatal-og-vidburdir. Allir velkomnir. OPNUN SUMARSÝNINGA Laugardaginn 4. júní kl. 14:00 verða tvær nýjar sýningar opnaðar í Duus Safnahúsum; Mann- félagið og Sögur úr bænum - stiklað á stóru. FJÖLMENNINGARDAGUR/MULTICULTURAL DAY Fjölbreytt dagskrá í Bókasafni Reykjanesbæjar 4. júní kl. 12:00. Yfir 500 manns tóku þátt í umfangsmikilli flugslysaæfingu sem haldin var á Keflavíkurflugvelli um síðustu helgi. Æfingin er ein stærsta hópslysaæfing sem haldin hefur verið á Íslandi og eru æfingar sem þessar mjög mikilvægar heildarviðbragðskerfi Íslands hvort sem um flugslys eða önnur hópslys er að ræða. Isavia heldur utan um skipulag æfinganna en mikill fjöldi annarra viðbragðsaðila kemur að þeim, svo sem starfs- menn Keflavíkurflugvallar, lögregla, slökkvilið, sjúkra- flutningsaðilar, starfsmenn sjúkrahúsa, almannavarnir, björgunarsveitir, Rauði krossinn, prestar, rannsóknaraðilar auk fjölda annarra. Flugslysaæfingar sem þessar eru að jafnaði haldnar á um fjögurra ára fresti á hverjum flugvelli á Íslandi þar sem starfrækt er áætlunarflug og hefur Isavia haldið yfir 40 flug- slysaæfingar frá árinu 1996. Sett var á svið flugslys þar sem þota með 150 einstaklinga um borð lenti utan vallar vestan við suðurenda norður- suður flugbrautarinnar. Vettvangurinn var gerður mjög raunverulegur en kveikt var í bílflökum til þess að líkja eftir flugvélabúk, sjúklingar voru farðaðir og allt gert til þess að gera hann sem líkastan raunverulegu slysi. Æfingin gekk vel en að henni lokinni munu allir þættir hennar verða rýndir og farið yfir þau atriði sem mætti bæta. Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingunni. Nánar verður fjallað um æfinguna í Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld, fimmtudagskvöld, klukkan 21:30. Þátturinn verður einnig á vf.is í háskerpu. Yfir 500 þátttakendur í hóp- slysaæfingu á Keflavíkurflugvelli Okkar ástkæri frændi,   Guðmundur Snorrason, Þórustíg 15, Njarðvík,   lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 29. maí sl.  Útförin fer fram frá Innri- Njarðvíkurkirkju,   mánudaginn 6. júní  kl. 11:00.   Frændsystkini og nánustu aðstandendur. Stærri vélar hafa bæst í flota Icelandair og WOW air að undanförnu og er því verið að gera breytingar á farangurs- flokkunarkerfi í flugstöðinni á Kefla- víkurflugvelli. Frá þessu er greint á vefnum Turisti.is. Icelandair tók í vor í notkun Boeing 767 breiðþotur með sætum fyrir 262 farþega og WOW Air mun á næstu dögum taka í notkun enn stærri Airbus 330 þotur. Vegna þessa er verið að stækka farang- urssal flugstöðvarinnar og hefur því hægt á afköstum og þessa vikuna eru farþegar beðnir um að mæta í flug- stöðina þremur tímum fyrir brottför. Á vef Isavia kemur fram að nýja kerfið hafi rúmlega tvöfalda flokkunargetu á við það gamla og nauðsynleg við- bót við núverandi kerfi. Í nýjum sal er auk þess mun betri vinnuaðstaða fyrir starfsfólk og nú verður unnt að þjónusta farangursgáma sem notaðir eru í breiðþotur. Framkvæmdir við nýjan sal hófust í nóvember á síðasta ári, stuttu eftir að flugfélögin höfðu tilkynnt um þá ákvörðun að taka breiðþoturnar í notkun. Nýbyggingin sem hýsir salinn er 3.000 fermetrar að stærð en þar af er nýi salurinn 2.100 fermetrar. Breytingar vegna breiðþotna

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.