Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 26

Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 26
26 fimmtudagur 2. júní 2016VÍKURFRÉTTIR Guðmundur Bjarni Sigurðsson eig- andi Kosmos & Kaos gagnrýnir vinnu- brögð og ákvörðun Reykjanesbæjar varðandi hönnun nýs upplýsingave- fjar í aðsendri grein á vef Víkurfrétta 28. maí síðastliðinn í grein, sem ber heitið, „Eitthvað annað – áburðarverksmiðja nei takk“. Í greininni segir Guðmundur: „Við vitum hver staða Reykjanesbæjar er og hún gefur fullt tilefni til hagkvæmni í rekstri. Veflausnir eru hluti af þeirri hagkvæmni. Verkkaupi leggur út dá- góða fjárhæð fyrir verkinu en ef vel er að verki staði hlýst ákveðin rekstrarleg hagkvæmni af góðum lausnum. Og hvað sparast með þeim gjörningi að flytja veflausnirnar til Eyjafjarðar? Ef litið er á stóra samhengið þarf að muna ansi miklu á tilboðum til að það borgi sig að færa þessi viðskipti úr heimabyggð.“ Allir gátu framkvæmt verkið og því var lægstbjóðandi valinn Fyrr á þessu ári gerði Reykjanesbæjar verðkönnun hjá sex hugbúnaðar- fyrirtækjum, fimm tóku þátt. Það voru Advania, Dacoda, Hugsmiðjan, Kosmos & Kaos og Stefna hug- búnaðarhús. Eftir vandlega skoðun og ígrundun var ákveðið að ganga til samstarfs við Stefnu. Tilboð Stefnu hugbúnaðarhúss var lægst, næstlægsta tilboð átti Dacoda, þriðja lægsta til- boð átti Hugsmiðjan, fjórða lægsta til- boðið átti Kosmos & Kaos og fimmta lægsta tilboð átti Advania. Þar sem nokkrir aðilar óskuðu trúnaðar á til- boðum sínum, þá eru verð ekki upp- gefin, enda var óskað eftir trúnaði í útboðsgögnum og má færa rök fyrir því að það gangi í báðar áttir. Fyrirtækið Sjá ehf. sá um óháða ráð- gjöf varðandi kröfulýsingu/útboðs- lýsingu ásamt því að sjá um útboðið sjálft og samskipti við bjóðendur. Á heimasíðu þess; www.sja.is, segir m.a.; „Fyrirtækið hefur verið leiðandi á sviði rannsókna og úttekta á notenda- hegðun og aðgengismálum á vefnum og er það fyrsta sinnar tegundar á Ís- landi. Sjá hefur sérhæft sig í að prófa vefi og viðmót með notendum í því skyni að kasta ljósi á notendavanda- mál svo fyrirtæki geti betur bætt úr þeim.“ Við mat við val á samstarfsaðila segir í útboðsgögnum: „2.3 Mat við val á samstarfsaðila Við mat á bjóðanda er eftirfarandi lagt til grundvallar, athugið að röð atriða endurspeglar ekki vægi við mat: 1. Þjónusta bjóðanda 2. Verð 3. Starfsmenn sem koma að verkinu og reynsla þeirra 4. Verk- og tímaáætlun bjóðanda 5. Leyfis og uppfærslumál bjóðanda 6. Viðmót kerfis; bakendi og fram- endi. 7. Fjöldi vefsíðna í kerfinu á Íslandi 8. Fjöldi nýrra notenda sl. 2 ár Áskilin er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.“ Mat umsjónaraðila verðkönnunar- innar þ.e. Sjá ehf., var það að allir aðilar gætu framkvæmt verkið, en jafnframt var lægstbjóðandi sterkur á fleiri sviðum en verðinu s.s. þjónustu, verk- og tímaáætlun, viðmóti, fjölda vefja/nýrra notanda og því var niður- staðan að lægstbjóðandi var valinn. Tvö lægstu tilboðin voru í samræmi við kostnaðaráætlun, en önnur mun hærri og má í því sambandi nefna að tilboð Kosmos & Kaos var rúm 80% yfir kostnaðaráætlun. Svanhildur Eiríksdóttir verkefnastjóri upplýsinga- og kynn- ingarmála hjá Reykjanesbæ Það vita það kannski ekki allir en í Reykjanesbæ er blómstrandi upp- lýsingatæknigeiri. Ég fór á stúfana fyrir ekki svo löngu og vildi halda tækni- og hönnunarhitting hérna á svæðinu. Það kom mér strax á óvart hversu mörg stöndug fyrirtæki eru staðsett hér, fannst eins og ég ætti að vita þetta verandi hluti af hópnum. Það eru ótal hönnunar f yr ir tæki á svæðinu að hanna ótal hluti. Tæknifyrir- tækin (forritun ýmis konar) eru ekki færri. Ég get í fljótu bragði talið upp fjögur fyrir- tæki á Suðurnesjum sem hanna, forrita og viðhalda vefjum fyrir stærri og minni fyrirtæki hérna á svæðinu, út um allt land og allan heim. Þá eru ekki talin með þau fyrirtæki sem koma að sérhæfðari lausnum. Og það er mikið að gera hjá öllum. Gleymum heldur ekki þeim fjölmörgu sem búsettir eru hér en sækja vinnu á höfuðborgarsvæðinu: Hérna búa margir grafískir hönnuðir, vefhönnuðir, forritarar, vefforitarar, verkefnastjórar og stjórnendur í upp- lýsingatæknistörfum. Hér er sem sagt alvöru upplýsingatæknigeiri. Hjá Kosmos & Kaos var aldrei spurn- ing um annað en að hafa höfuðstöðvar fyrirtækisins í Reykjanesbæ. Það vantaði sárlega eitthvað móralskt gott hingað á þeim tíma (árið 2010) og við kappkostuðum við hafa eins mikla starfsemi hér og mögulegt var. Versla heima, tala svæðið upp við hvert tæki- færi, ráða fólk af svæðinu til starfa eða flytja það hingað. Fyrir skemmstu ákvað Reykjanesbær, stærsta sveitarfélagið á svæðinu, að færa alla vinnu við sína vefi úr heima- byggð og norður í Eyjafjörð. Tvö fyrir- tæki í Reykjanesbæ hafa um árabil byggt upp og þjónustað veflausnir sveitarfélagsins. Norðan heiða er nú unnið að því afrita sjö ára gamlar hönnunaráherslur þessara heima- fyrirtækja fyrir nýja vefi. Við reyndar stöndum hvorki né föllum með við- skiptum okkar við sveitarfélagið, en hvað er verið að pæla? Við vitum hver staða Reykjanes- bæjar er og hún gefur fullt tilefni til hagkvæmni í rekstri. Veflausnir eru hluti af þeirri hagkvæmni. Verkkaupi leggur út dágóða fjárhæð fyrir verkinu en ef vel er að verki staði hlýst ákveð- in rekstrarleg hagkvæmni af góðum lausnum. Og hvað sparast með þeim gjörningi að flytja veflausnirnar til Eyjafjarðar? Ef litið er á stóra sam- hengið þarf að muna ansi miklu á til- boðum til að það borgi sig að færa þessi viðskipti úr heimabyggð. Hönnunar- og UT (upplýsingatækni) fyrirtækin á Suðurnesjum borga sína skatta og skyldur hér. Fyrirtæki í sama geira í Eyjafirðinum borga sitt til sam- félagsins þar. Í ljósi þess að UT geirinn er sá hraðast vaxandi í heiminum er óhætt að líta á stuðning við uppbyggingu hönnunar- og UT fyrirtækja á landsbyggðinni sem fjárfestingu. Fjárfestingu í fjöl- breytni í atvinnusköpun, í þekkingu, í búsetu, í nýsköpun og fleiru. Fjár- festingu gegn spekileka. Reykjanesbær hefur nú stigið stórt skref í að fjárfesta ekki í þessari þróun í sinni heimabyggð. Reyndar er staðan þannig að aðeins fá fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurnesjum kaupa sínar upplýsinga- tæknilausnir í heimabyggð, þrátt fyrir gríðarlega sterkan og vel samkeppnis- hæfan markað hér. Á sama tíma er kappkostað við að fá fólk til að versla heima. Talað er fjálglega um þörf fyrir upp- byggingu þekkingarsamfélags á Suðurnesjum, aukna fjölbreytni í at- vinnustarfssemi og svo framvegis, en eins og flestir vita hefur Reykjanesbær meðal annars farið flatt á því að setja öll sín egg í eina körfu. Hvar liggur svo stuðningur Reykjanesbæjar við fjölbreytta atvinnustarfsemi? Hann sést kannski einna best í eftirgjöf op- inberra gjalda og greiðslufrestunum þeirra vegna mengandi „áburðarverk- smiðja” í Helguvík. Fyrir nokkru sat ég fund með ungu fólki af Suðurnesjum þar sem þau voru spurð að því við hvað þau vildu starfa í framtíðinni. Í þessum flotta hópi var fólk sem gekk um með drauma um að verða læknar, lögfræðingar, forritarar, hagfræðingar, hjúkrunarfræðingar o.fl. Ekkert þeirra, ekki eitt, talaði um að það ætti sér þann draum að vinna í „áburðarverksmiðjunum” í Helguvík. Reykjanesbær hefur nú stigið stórt skref í átt að einhæfara atvinnulífi fyrir ungt fólk með stóra drauma. Þetta unga fólk mun, ef fram heldur sem horfir, þurfa að sækja vinnu í Reykjavík eða, guð hjálpi okkur, flytja norður í Eyjafjörð. Akureyri er samt fallegur bær, ekki misskilja mig. Guðmundur Bjarni Sigurðsson Frumkvöðull, vefhönnuður og eigandi Kosmos & Kaos í Reykja- nesbæ, sem aldrei hefur farið fram á afslátt á opinberum gjöldum til sinnar heimabyggðar. #Eitthvað annað #áburðarverksmiðja nei takk Guðmundur Bjarni Sigurðsson skrifar Guðmundur Bjarni Sigurðsson Svanhildur Eiríksdóttir Heimildarmyndin Maðurinn sem minnkaði Vistsporið sitt verður sýnd í Andrew´s Theater á fimmtudag í næstu viku, 9. júní, klukkan 17:00. Fyrirtækið Bros bræður framleiddi myndina en það er í eigu bræðranna Sigurðar E. og Magnúsar B. Jóhannessona úr Keflavík. Sigurður er í aðalhlutverki í myndinni og fjallar hún um baráttu hans við að lifa sjálfbæru lífi í ósjálfbæru s a m f é l a g i . Í myndinni er fylgst með honum reyna eftir fremsta megni að ná neyslu sinni inn fyrir mörk sjálfbærni eins og þau eru skilgreind af aðferðafræði Vist- sporsmælinga. Baráttan knýr hann til að svara spurningum um alla sína hegðun, eins og til dæmis um það hvað hann borðar, hvernig hann ferðast, hvernig hann býr, hvað hann kaupir inn, hvaða þjónustu hann notar og hvernig hann skilar frá sér sorpinu sem neysla hans veldur. Í ferlinu lærir Sigurður að fátt í íslensku samfélagi styður slíka baráttu og hann finnur fljótt að það er hægara sagt en gert að ná neyslunni inn fyrir sjálfbærni- mörkin. Myndin er létt og skemmtileg og var t e k i n u p p í anda Dogme 95 stílsins, þar s e m á h e r s l a er lögð á að koma sögunni til skila án þess að láta tæknina k æ f a v e r k - efnið. Myndin verður sýnd í samstarfi við sveitarfélögin á Suðurnesjum. Allir eru velkomnir og frítt er inn. Að sýningu lokinni verða pallborðsum- ræður um málefni myndarinnar og vistsporið. Í pallborði verða Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri SSS, Hjálmar Árnason, framkvæmda- stjóri Keilis. Sigurður Jóhannesson, einn framleiðenda myndarinnar og doktorsnemi í umhverfisfræði við HÍ, verður einnig í pallborðinu, ásamt fulltrúa frá Isavia. Heimildarmynd um Vistsporið sýnd í Andrews Theatre Hagræðing í rekstri Reykjanesbæjar Svanhildur Eiríksdóttir svarar Guðmundi Bjarna Sigurðssyni hjá Kosmos & Kaos Opinn dagur í Kirkjugörðum Keflavíkur Þriðjudaginn 14. júní kl. 16:00 - 18:00. Kirkjugarðurinn við Aðalgötu og Hólmsbergsgarður. Boðið upp á kaffi og kleinur. Gott tækifæri fyrir aðstandendur að snyrta leiði eftir veturinn og ræða við starfsfólk garðana. Kirkjugarðanefnd. STOFNFUNDUR VINÁTTUFÉLAGS BALDURS KE Stofnundur vináttufélags Baldurs KE 97 verður haldinn í Víkinni, Krossmóa 4, 4. hæð, á sjómannadaginn 5. júní kl. 13:00. Meðal hlutverka félagsins verður að tryggja varðveislu skipsins sem sýningargrips á Byggðasafni Reykjanesbæjar og að standa vörð um sögu þess og útgerðar á Suðurnesjum. Undirbúningsnefndin. ERU SKATTAMÁLIN Í ÓLAGI? Bókhald Þarftu hjálp við að koma bókhaldinu í réttan farveg. Tek að mér almenna bókhaldsþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga með rekstur. Allar frekari upplýsingar gefnar í síma 869-2112 eða á kefbokhald@gmail.com. ANNA KARÍN JÓNSDÓTTIR VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR - VIÐURKENNDUR BÓKARI

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.