Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 16
16 fimmtudagur 2. júní 2016VÍKURFRÉTTIR við erum að leita að þér! TILVALIÐ FYRIR NÁMSFÓLK - BYKO Við leitum að hressum og duglegum einstaklingum á öllum aldri í afleysingar um helgar og í fjölbreytt sumarstörf 2016. Störf í verslun fela í sér almenna afgreiðslu og ráðgjöf til viðskiptavina. Nauðsynlegt er að hafa ríka þjónustulund og góða hæfni í mannlegum samskiptum ásamt því að vera stundvís, jákvæður og heiðarlegur. SUMAR- OG AFLEYSINGA- STÖRF Í VERSLUN fagmennska - dugnaður - lipurð - traust Umsókn skal senda á verslunarstjóra BYKO á Suðurnesjum, Írisi Sigtryggsdóttur, á netfangið iris@byko.is Blikavelli 2 - 235 Keflavík Airport sími 595 1900 - www.hotelairport.is Aurora Star Hotel ehf Airport Hotel Keflavik - Iceland Aurora Star Airport Hótel Aurora óskar eftir að ráða starfsfólk í móttöku Starfsmaður verður að tala góða íslensku og ensku, Framtíðarstarf fyrir hæfan starfskraft Getum einnig við bætt við okkur þernum og aðstoð við morgunverð í sumarafleysingar. Umsóknir skal senda á hotelairport@hotelairport.is Umsóknarfrestur til 13. júní. kunnátta í fleiri tungumálum er kostur einnig reynsla af sambærilegum störfum. Unnið er á vöktum Create PDF files without this message by purchasing novaPDF printer (http://www.novapdf.com) ÍBÚAFUNDUR Í HLJÓMAHÖLL Reykjanesbær kynnir vinnslutillögur vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008 - 2024 í Merkinesi, Hljómahöll miðviku- daginn 8. júní kl. 17:00 - 19:00. Kynningin er skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Meðal annars verður farið yfir þéttingu byggðar, atvinnusvæði og samgöngur. Í framhaldi verður endanleg tillaga unnin og auglýst eftir athugasemdum. Gefinn verður sex vikna frestur til að skila inn athugasemdum. Par frá Kóreu sem missti af vél sinni frá Keflavíkurflugvelli á dögunum var himinlifandi með aðstoð sem þau fengu frá Kristjáni Þór Karlssyni, þjónustufulltrúa eignaumsýslu hjá Isavia. Seungsoo Shin, annar ferða- mannanna, skrifaði færslu og birti á Facebook-síðu Keflavíkurflugvallar þar sem fram kom að þau hafi mis- skilið hvenær vélin þeirra átti að fara í loftið, ekki verið með pening sé síma og að þau hafi ekki fundið starfsmann frá flugfélaginu sínu. „Þetta leit ekki vel út en þá kom Kristján til sögunnar. Við sögðum honum söguna okkar og hann hjálpaði okkur og fann upp- lýsingar um betra flug þó að hann hafi ekki þurft þess. Hann var mjög al- mennilegur allan tímann og gerði sitt vesta fyrir okkur í heila þrjá klukku- tíma. Hann var bjargvætturinn okkar og ég vil þakka honum fyrir fyrir. Ég veit ekki hvernig þetta hefði verið hefði hann ekki hjálpað okkur,“ segir í færslu Seungsoo Shin. Færslan fór eins og eldur um sinu netheima, en yfir 5000 netverjar lýstu yfir ánægju með færsluna og rúmlega 500 manns deildu póstinum. „Stór hluti af vinnutímanum fer í eitt- hvað í líkingu við þetta tilvik, þó að þau sé kannski ekki alveg eins en þá er þetta nokkuð algengt,“ segir Kristján í spjalli við Víkurfréttir. Hann segir ferðamenn lenda í alls kyns hrakn- ingum á sambandi við flug sín, bæði hér á landi og erlendis. „Þá er maður til aðstoðar og gefur fólki tækifæri til að komast í samband á réttan stað. Það kemur líka fyrir að fólk hafi týnt öllum sínum skilríkjum og þá komum við þeim í samband við þeirra sendiráð ef slíkt er ekki á landinu. Það er því ýmislegt sem til fellur,“ segir Krist- ján og bendir á að við úrlausn á máli ferðamannanna frá Kóreu hafi hann notið góðrar aðstoðar frá fleiri starfs- mönnum flugvallarins. Fréttir af sívaxandi ferðamanna- straumi hafa vart farið fram hjá neinum og er áætlað að á þessu ári komi um 1,7 milljón erlendra ferða- manna til Íslands. Kristján segir starfs- menn Keflavíkurflugvallar finna vel fyrir aukningunni og að með fleiri ferðamönum komi upp fleiri atvik sem greiða þarf úr. Kristján segir allan gang á því hvort fólk sé jafn þakk- látt fyrir hjálpina og ferðamennirnir frá Kóreu. Stundum fái starfsfólkið skammir þrátt fyrir að hafa varið löngum tíma í úrlausn mála, sem jafn- vel fóru úrskeiðis á öðrum flugvöllum. „Maður tekur því líka. Fólk í þjón- ustustörfum þarf að geta tekið sorg og gleði.“ Kristján hefur starfað hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli frá vorinu 2006 og er því að fara að vinna sitt ellefta sumar þar. Áður var hann hinu megin á heiðinni, hjá varnarliðinu. Þar var hann í tuttugu ár með tíu ára hléi þegar hann var grunnskólakennari á Raufarhöfn. „Ég tók ársleyfi árið 1981 en snéri þó ekki til baka fyrr en 1991. Ég fékk ársleyfinu alltaf framlengt. Ég ætlaði bara að hvíla mig á varnarliðinu í eitt ár en svo teygðist á því.“ Hvunndagshetjan Kristján varð internetstjarna á svipstundu ●● Kóreskir●ferðamenn●ánægðir●með●úrlausn●sinna●● mála●sem●tók●rúmlega●þrjá●klukkutíma Ökumenn ýmist í símanum eða á ofsahraða Sjö hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 147 km. hraða á Reykjanes- braut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Þar var á ferðinni ökumaður um tvítugt. Annar hinna átta ók sviptur ökuréttindum. Þá voru átta ökumenn til viðbótar staðnir að því að tala í síma undir stýri án handfrjáls búnaðar og fimm óku á nagladekkjum. Loks hafði lögregla afskipti af þremur ökumönnum vegna gruns um fíkniefnaakstur.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.