Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 22
22 fimmtudagur 2. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
Kynning á iHealth snjalltækjum
í Lyfju Reykjanesbæ
Framúrskarandi tækni og hönnun sem gerir þér kleift
að fylgjast með grunnþáttum góðrar heilsu; hreyfingu,
svefni, þyngd, blóð- þrýstingi og glúkósa (blóðsykri).
Öll iHealth heilsutækin tengjast snjallsímanum og birta
gögn á myndrænan hátt í iHealth heilsuappinu. Auðvelt
að deila niðurstöðum með heilbrigðisstarfsfólki, vinum
og fjölskyldumeðlimum.
Fyrir iPhone og Android síma.
Katrín hjúkrunarfræðingur hjá Eirbergi, dreifingaraðila
iHealth kynnir blóðsykursmæla og tengdar vörur
föstudaginn 3. júní, milli kl. 15-18
lyfja.is
Hvað hefur þú æft fótbolta lengi?
8 ár.
Hvaða stöðu spilar þú?
Ég er miðjumaður.
Hvert er markmið þitt í fótbolta?
Komast eins langt og ég get. Vonandi
verða atvinnumaður.
Hversu oft æfir þú á viku?
5 sinnum í viku.
Hver er þinn eftirlætis
fótboltamaður/kona?
Lionel Messi hjá Barcelona.
Áttu þér einhverja fyrirmynd
í boltanum?
Steven Gerrard er fyrirmyndin.
Hefurðu farið á
fótboltaleik erlendis?
Já. Liverpool - QPR á Anfield á síðustu
leiktíð.
Hversu oft getur þú haldið á lofti?
34 sinnum.
Hvaða erlenda félag
heldur þú upp á?
Liverpool.
Góður árangur Keflvíkinga
á Stjörnustríðsmóti í blaki
Blakdeild Keflavíkur tók þátt í öld-
ungamóti Blaksambands Íslands sem
haldið var dagana 5. til 7. maí síðast-
liðinn. í Garðabæ sem að þessu sinni
bar heitið Stjörnustríð. Á mótinu voru
158 lið eða um 1500 þátttakendur af
öllu landinu og var þetta stærsta og
fjölmennasta öldungamótið til þessa.
Keppendur á þessum mótum verða að
hafa náð 30 ára aldri til að geta keppt
og má segja að þau séu nokkurs konar
uppskeruhátíð eldri blakara í landinu.
Keppt var í sex karladeildum og tíu
kvennadeildum. Blakdeild Keflavíkur
átti þrjú lið á þessu móti, tvö karlalið
og eitt kvennalið. Annað karlaliðið
keppti í 4. deild og hitt, skipað nýliðum
í blaki, keppti í 6. deild. Kvennaliðið
var í síðan í 8. deild a. Nýliðarnir stóðu
sig mjög vel miðað við að þeir voru að
taka þátt í sínu allra fyrsta blakmóti og
eiga þeir mikið hrós skilið fyrir það
hve vel þeim gekk að stríða hinum lið-
unum en þeir munu koma reynslunni
ríkari til leiks að ári. Kvennaliðið og
4. deildar karlaliðið, sem eru skipuð
reyndum blökurum, náði þeim flotta
árangri að sigra alla sína leiki og stóðu
efst í sínum deildum og munu því
keppa í næstu deildum fyrir ofan að
ári. Bæði lið léku mjög vel í mótinu.
Kvennaliðið fór í gegnum sína leiki
með miklum yfirburðum og má með
sanni segja að þær hafi borið höfuð og
herðar yfir andstæðinga sína. Karla-
liðið náði að bæta upp fyrir slakt gengi
í síðasta móti og sló vart feilspor að
þessu sinni.
„Við vitum að það er eitthvað af blak-
áhugafólki hér á Suðurnesjum og
við viljum hvetja það fólk sem hefur
áhuga á að koma og æfa með okkur
að fylgjast með okkur á Facbook og
einnig á heimasíðu Keflavíkur,“ segir
í tilkynningu frá keflvísku blakfólki.
FÓTBOLTASNILLINGUR VIKUNNAR
Fyrsta tap Þróttara
■ Þróttarar frá Vogum þurftu að sætta sig við fyrsta
tap sitt í 3. deild karla þegar þeir léku á útivelli
gegn Einherja á Vopnafirði um helgina. Lokatölur
leiksins urðu 3-2
þar sem Kristinn
Aron Hjartarson
og Aron Elfar
Jónsson skoruðu
mörk Þróttara.
Vogamenn eru
í f j ó r ð a s æ t i
d e i l d a r i n n a r,
hafa unnið tvo
leiki og tapað
einum.
Víðismenn halda
hreinu á toppnum
■ Víðismenn eru með fullt hús
stiga og hafa ekki ennþá fengið á
sig mark í 3. deildinni í fótbolta.
Þeir unnu um helgina 4-0 sigur á
liði KFR á heimavelli sínum og hafa
því unnið þrjá fyrstu leikina sína
í deildinni auk þess að vera eina
3. deildarliðið í 16 liða úrslitum í
bikarkeppni. Staðan í hálfleik í gær
var 2-0 fyrir heimamenn en mörkin
skoruðu þeir Helgi Þór Jónsson og
Milan Tasic. Helgi bætti svo við marki í síðari hálfleik en það
var Tómas Jónsson sem skoraði fjórða markið undir lok leiks.
STEVEN GERRARD
ER FYRIRMYNDIN
Fótboltasnillingur vikunnar er Garðbúinn Tómas Freyr Jónsson. Tómas er 12
ára og spilar með 5. flokki Reynis/Víðis. Tómas stefnir á að komast sem lengst í
boltanum en atvinnumennskan heillar sérstaklega. Liverpool er hans lið á Englandi
og Steven Gerrard er fyrirmyndin í boltanum.