Víkurfréttir - 18.10.2007, Blaðsíða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 42. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Tölvu skóli Suð ur nesja býður upp á byrjenda-
námskeið í stafrænni ljós-
mynd un nú um helg ina
og er enn hægt að skrá sig.
Leiðbeinandi á námskeiðinu
verður Ellert Grétarsson, ljós-
myndari Víkurfrétta.
Námskeiðið er tvíþætt og skipt-
ist annars vegar í praktíska
ljósmyndun og hins vegar í
úrvinnslu ljósmynda í Photo-
shop. Markmið námskeiðsins
er að þátttakendur kynnist
myndavélinni sinni betur, læri
að taka betri myndir og að
gera meira úr þeim með réttri
úrvinnslu í Photoshop, sem
er snar þáttur stafrænnar ljós-
myndunar. Námskeiðið hentar
afar vel nýj um eig end um
stærri myndavéla (DSLR) en
slíkar vélar hafa verið að ryðja
sér til mjög til rúms við síauk-
inn áhuga almennings á ljós-
myndun.
Námskeiðið hefst á laugardag-
inn kl. 10 í húsakynnum Tölvu-
skóla Suðurnesja. Þar verður
fjallað almennt um tæknilega
þætti stafrænna myndavéla,
helstu stillingar og áhrif þeirra
á myndefnið (ljósop, hraði,
dýptarskerpa o.s.frv.)
Þá verður farið í praktískt at-
riði ljósmyndunar, s.s. mynd-
byggingu með þriðjungaregl-
unni, val myndefnis og margt
fleira. Eft ir hádegi verður
farið í myndatökuleiðangur
út í Krísuvík sem er afar fjöl-
breytt til ljósmyndunar með
allri sinni litadýrð á hverasvæð-
unum. Félagar í Ljósopi ætla
að slást með í för.
Á sunnudeginum verður farið
í úrvinnslu myndanna úr ferð-
inni frá deginum áður. Nem-
endur kynnast helstu grund-
vallaraatriðum í Photoshop og
gera æfingar.
Nánari upplýsingar og skrán-
ing er hjá Tölvuskóla Suður-
nesja í síma 421 4025.
Tölvuskóli Suðurnesja:
Helgarnámskeið í stafrænni ljósmyndun
Frá Krýsuvík.
Ljósm: Ellert Grétarsson.
Sandgerðisbær hefur auglýst til umsóknar styrki sem
bærinn veitir ár hvert félaga-
samtökum, fyrirtækjum og
einstaklingum til að efla starf-
semi og þjónustu, til að efla
uppbyggingu á atvinnulífi, til
umhverfisbreytinga og til að
auðga lista- og menningarlíf
bæjarbúa.
Til þessa verkefnis verður varið
allt að 60 milljónum króna á ár-
unum 2006–2010. Mikil áhersla
er lögð á að styrkja og stuðla
að sjálfsprottnu starfi, framtaki
einstaklinga og fyrirtækja sem
stuðlar að farsælli þróun, betri
lífsgæðum, fegurra umhverfi og
fjölbreyttu mannlífi í bæjarfélag-
inu. Ætlunin er að skapa marg-
feldsisáhrif með fjármagni Sand-
gerðisbæjar í framangreindum
málaflokkum og á þann hátt
hraða breytingum í mannlífi og
atvinnumálum bæjarbúa.
Verkefnið skiptist í fjóra hluta,
þ.e. frumkvöðlastyrki, átak til
verkefna sem er atvinnuskap-
andi eða til menningarmála
og viðburða og átak í flutningi
eða breytingum í rekstri og/eða
umhverfisbreytingum. Að síð-
ustu er um að ræða 30 milljóna
króna framlag til þriggja stór-
verkefna á kjörtímabilinu. Til
að efla þjónustu tengdri Kefla-
víkurflugvelli, til að koma á fót
sjávardýrasafni og til að stórefla
Fræðasetrið í Sandgerði.
Umsóknir þurfa að berast til bæj-
arráðs fyrir 7. desember 2007 og
verða afgreidd að fenginni um-
sögn viðkomandi fagráðs. Um-
sækjendum verða svo kynntar
niðurstöður fyrir janúarlok
2008.
Fyrir utan fyrrnefnd atriði er
bærinn tilbúinn að bjóða frum-
kvöðlum og fyrirtækjum, sem
vilja hefja starfsemi í nýjum at-
vinnurekstri í Sandgerði, tíma-
bundna aðstoð með samningum
við bæj ar sjóð um greiðslu
lóða-, gatnagerða- og eða fast-
eignagjalda í samræmi við um-
svif starfseminnar og fjölda at-
vinnutækifæra fyrir bæjarbúa á
vegum umsóknaraðila.
Sandgerðisbær:
STYRKIR AUGLÝSTIR
TIL ÚTHLUTUNAR
Hilmar Freyr Brynjarsson, 6 ára Sandgerðingur, datt heldur betur í lukkupottinn þegar hann vann splunkunýtt reiðhól
í Office1-leik Húsasmiðjunnar. Ef verslað var fyrir ákveðna upp-
hæð gátu viðskiptavinir sett nöfn sín í lukkupott og kom nafn
Hilmars upp úr honum. Þá vann Fanney Lovísa Bjarnadóttir, 6
ára úr Keflavík, gjafakort upp á fimm þúsund krónur.
Vann reiðhjól í Húsasmiðjunni
VF-mynd: elg