Fréttatíminn - 11.02.2017, Síða 4

Fréttatíminn - 11.02.2017, Síða 4
Bjarni Benediktsson biðst afsökunar fyrir hönd ríkisins í kjölfar svartrar skýrslu um Kópavogshælið. Sólarferðir frá kr. 48.950 m/afslætti Allt að 25.000 kr. afsláttur á mann í febrúar B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Valdar brottfarir Sumardagar Stóriðja Aðeins einn lífeyrissjóð- ur hefur staðfest fjárfestingu í kísilmálmverksðju Thorsil á Reykjanesi. Lífeyrissjóður starfs- manna ríkisins tekur ekki þátt. Framkvæmdastjóri Thorsil segir það vonbrigði að fleiri lífeyrissjóð- ir taki ekki þátt. Fleiri erlendir aðilar koma að fjárfestingunni í stað íslenskra fyrirtækja og sjóða. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis- ins mun ekki fjárfesta í kísilmálm- verksmiðju Thorsil í Helguvík á Reykjanesi. Þetta kemur fram í svari til Fréttatímans frá fram- kvæmdastjóra sjóðsins, Hauki Haf- steinssyni, þar sem hann var spurð- ur um málið. „LSR hefur um nokkurt skeið verið að meta hugsanlega að- komu að Thorsil. Stjórn sjóðsins hef- ur nú tekið ákvörðun um að hætta þeirri athugun. Sjóðurinn mun því ekki fjárfesta í verkefninu að svo stöddu.“ Kísilmálmverksmiðjan fékk endurnýjað starfsleyfi frá Umhverfis- stofnun í vikunni. Fjármögnunin á kísilmálmsverk- smiðjunni hefur dregist um marga mánuði en upphaflega stóð til að henni yrði lokið síðastlðið sumar. Þetta gekk ekki eftir. Svo var greint frá því í haust að ljúka ætti fjármögn- uninni þá en af því varð ekki held- ur. Verksmiðjan mun kosta um 34 milljarða króna og geta framleitt 54 þúsund tonn af kísilmálmi árlega. Meðal hluthafa í verksmiðjunni eru John Fenger, Eyþór Arnaralds, Einar Sveinsson, Þorsteinn Már Baldvins- son, Guðmundur Steinar Jónsson í Sjólaskipum og Andri Sveinsson. Fjárfestingin var kynnt fyrir flest- um stóru lífeyrissjóðum landsins en hingað til hefur einungis einn sjóður, Almenni lífeyrissjóðurinn, gefið það út að hann ætli að fjárfesta í verkefn- inu. Þá voru Lífeyrissjóður verslun- armanna og Frjálsi lífeyrissjóðurinn að skoða fjárfestingu í verksmiðju Thorsil. Í svari frá Arnaldi Lofts- syni, framkvæmdastjóra Frjálsa líf- eyrissjóðsins, kemur fram að sjóð- urinn hafi ekki tekið ákvörðun um að fjárfesta í Thorsil. Arnaldur nefnir ekki hvort sjóðurinn hafi endanlega slegið hugmyndina út af borðinu eða ekki. „Sjóðurinn hefur ekki fjárfest í Thorsil eða tekið ákvörðun um slíkt,“ segir hann. Hákon Björnsson, f ram- kvæmdastjóri Thorsil, segir að vissu- lega séu það vonbrigði að fleiri líf- eyrissjóðir hafi ekki viljað fjárfesta í verkefninu. „Það var metnaður okkar og stefna að reyna að hafa þetta sem mest íslenska fjárfesta og sjóði. Við töldum að þetta væri ver- kefni með góða ávöxtun og gott fjár- festingartækifæri fyrir lífeyrissjóði. Þetta þýðir hins vegar að hlutur erlendra aðila í þessu verður bara stærri.“ Aðspurður um hver staðan sé á fjármögnun verksmiðjunnar segir Hákon að hún sé langt komin. Hákon vill hins vegar ekki nefna dagsetn- ingu um hvenær fjármögnuninni ljúki. Hann segir að dráttur á útgáfu starfsleyfis og aðrar slíkar aðstæður hafi dregið fjármögnun verksmiðj- unnar á langinn. „Það hafa hlutir komið upp - þá er ég til dæmis að tala um starfsleyfið - sem hafa gert það að verkum að við höfum ekki getað klárað þetta. En nú er það komið og þá getum við farið að ljúka málum.“ Hákon segist aðspurður ekki vilja gefa upp nöfn erlendra fjárfesta sem ætla að koma að byggingu verksmiðj- unnar. Hann segir að engir nýir, ís- lenskir fjárfestar hafi komið að ver- kefninu. Thorsil í óvissu vegna tregðu lífeyrissjóða Heilbrigðismál Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra er tvístígandi þegar kemur að áfengisfrumvarpi sem til stendur að leggja fyrir Alþingi en hann setur fyrirvara við að ríkið sjái um sölu áfengis. Hann vill helst sjá málamyndun þegar kemur að frumvarpinu en gæta þurfi að lýðheilusjónar miðum. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is „Ég hef ekki myndað mér skýra afstöðu, já eða nei, svona fyrirfram, það er að segja áður en frumvarpið fær þinglega meðferð, en ég set fyrirvara við að auka aðgengi að áfengi sem mér finnst ekki í takt við þær stefnur sem hafa verið uppi hingað til varðandi lýðheilsusjónar- mið,“ segir Óttar um frumvarp- ið sem er flutt af þingmönnum Pírata, Sjálfstæðisflokksins, Við- reisnar og Bjartrar framtíðar, en Óttarr er formaður Bjartrar framtíð- ar. Óttarr segist opinn fyrir útfærslum varðandi frumvarpið, „Því ég er ekki heldur harður á því að ríkið eigi endi- lega að hafa einkarétt á áfengissölu,“ útskýrir hann. „Mér finnst mikilvægt að meta þetta út frá lýðheilsusjónarmiðum,“ segir hann og áréttar að frumvarp- ið eigi eftir að fá þinglega meðferð, og þar breytast frumvörp oft til hins betra að mati Óttars. Frumvarpið miðar að því að gefa smásölu á áfengi frjálsa. Það þýðir að leyfilegt verði að selja áfengi í matvöruversl- unum. Landlæknir hefur sett sig einarðlega upp á móti frum- varpinu og því ljóst að það nýt- ur ekki mikils stuðnings innan heilbrigðisstéttarinnar. Óttarr tvístígandi varðandi áfengisfrumvarp Heilbrigðisráðherrann er tví- stígandi varðandi áfengisfrum- varp en segist ekki hugnast aukið aðgengi að áfengi. Fjölmiðlar „Þetta gengur svo vel að við erum farin að velta fyrir okkur næstu skrefum,“ segir Gunnar Smári Egilsson, útgefandi Fréttatímans og hvatamaður að stofnun Frjálsrar fjölmiðlunar, félags til stuðnings frjálsrar og óháðrar blaðamennsku. Í gærkvöldi höfðu tæplega 500 manns skráð sig í félagið og lagt til þess misháar upphæðir. „Það er magnað hversu margt fólk er tilbúið að styðja frjálsa fjölmiðla þótt það fái í sjálfu sér ekkert persónu- lega heldur gefi í raun öllum með sér. Trú manns á samfélagið eflist,“ segir Gunnar Smári. Þegar hefur safnast fé sem mun efla ritstjórn Frétta- tímans mikið á næstu mánuðum. Að sögn Gunnars Smára eru næstu skref að efla umfjöllun um tiltek- in málefni; til dæmis umhverfismál, menntamál og kjarabaráttu. „Þrátt fyrir að fjölmiðlaefni hafi aukist að magni með tilkomu Internetsins hefur veiking stóru miðlanna dregið úr dýpri umfjöllun um einstaka efn- isþætti. Vegna góðra viðbragða við almennri söfnun félaga í Frjálsa fjölmiðlun veltum við því fyrir okkur hvort hægt sé að efla umfjöllun um tiltekna málaflokka með samskonar hætti, með því að leita eftir stuðningi til þess hjá almenningi,“ segir Gunnar Smári. Formlegur stofndagur Frjálsrar fjölmiðlunar hefur ekki verið settur, en reikna má með að hann verði um mánaðamótin. Félagsgjöld verða ekki innheimt fyrr en eftir að félagið hefur verið stofnað. Á stofn- fundinum verður kosið 36 manna fulltrúarráð, fram- kvæmdastjórn og formaður og stofnsamþykktir lagðar undir atkvæði. Á heimasíðu Frjálsrar fjölmiðlunar, www.frjalsfjolmidlun.is, er hægt að skrá sig sem stofnfélaga samtakanna. Félagsgjöld eru andvirði kaffibolla eða það sem félagar kjósa að leggja til verkefnsins. Stofnfélagar orðnir fimm hundruð Sjómannaverkfall Alls hafa 1600 einstaklingar tilgreint sjómanna- verkfallið sem skýringarástæðu umsóknar um atvinnuleysis- bætur en kostnaður vegna þessa nemur rúmlega þrjú hundruð milljónum króna fyrir skattgreið- endur. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt Starfs- greinasambands Íslands. Í samantektinni segir að fisk- vinnslufyrirtæki hafi ýmist farið þá leið að bera við hráefnisskorti þannig að fólk fari á kauptryggingu, sem er í raun strípuð dagvinnulaun um 260 þúsund krónur í mánuði, eða borið fyrir sig svokallað ham- faraákvæði, en þannig geta fyrir- tæki sett starfsfólk beint á atvinnu- leysisbætur. Alls eru um eitt þúsund starfs- menn á kauptryggingu en atvinnu- leysistryggingasjóður greiðir hluta hennar beint til fyrirtækja sam- kvæmt ákveðnum reiknireglum. 2.300 fiskvinnslustarfsmenn eru ýmist á kauptryggingu eða á at- vinnuleysisbótum vegna verkfalls sjómanna. Fiskvinnslufólk á Íslandi er á milli 3-4.000 manns. Starfsgreinasambandið hefur mótmælt því að fiskvinnslufólk sé sett á atvinnuleysisbætur, en samanreiknaður kostnaður fyrir almenning vegna þessara aðgerða fyrir mánuðina janúar og desember eru 312 milljónir króna. Það eru þá byrðar sem skattgreiðendur axla í verkfallinu með beinum hætti. Starfsgreinasambandið segist ekki láta reyna á samningana fyr- ir dómstólum þar sem ekki sé mik- il von um sigur. Þau svör fengust hinsvegar að til standi að endur- skoða hið umdeilda hamfaraákvæði í næstu samningum og girða fyrir svona uppsagnir í verkfalli. Þá má benda á að skrifstofufólk og yfir- menn sömu fyrirtækja halda sínum störfum, ólíkt fiskverkafólkinu. | vg Fiskverkafólki sagt upp en ekki skrifstofufólki Fiskverkafólk var sett á atvinnu leysisbætur, á meðan skrifstofufólk og yfirmenn halda sínum störfum. Bjarni biðst afsökunar „Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar bið ég ykkur afsökunar á þeirri ómann- úðlegu meðferð og margháttuðu vanrækslu sem börn bjuggu við á Kópavogshælinu,” segir Bjarni Benediktsson forsætisráðherra en ríkisstjórnin ræddi nýja skýrslu um Kópavogshælið og Efri Brú, á fundi sínum í morgun. Afsökunarbeiðni Bjarna nær einnig til alls fatlaðs fólks, barna og fullorðinna, sem hefur verið vistað á stofnunum hér á landi og sætt þar ofbeldi eða illri meðferð. Hann segir að sár reynsla verði aldrei bætt að fullu, en á grund- velli laga um sanngirnisbætur verði unnið að því að bæta þeim sem urðu fyrir ofbeldi eða illri meðferð þann skaða sem af því hefur hlotist, að því marki sem það er unnt. Formaður Þroskahjálpar kallaði eftir því í gær að allir fatlaðir sem hefðu verið vistaðir sem börn á slík- um stofnunum ættu rétt á sanngirn- isbótum, enda yrði það viðurkennt að þau hefðu sætt illri meðferð, ekki bara á Kópavogshælinu heldur fleiri slíkum stofnunum. | þká Forsvarsmenn Thorsil, Hákon Björnsson og Eyþór Arnalds, undirrituðu raforkusamning við Landsvirkjun vegna verk- smiðju fyrirtækisins í fyrra og sjást þeir hér ásamt Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar, og Jóni Sveinssyni yfirlög- fræðingi. Íslenskir lífeyrissjóðir hafa hins vegar ekki viljað fjárfesta í verkefninu fyrir utan einn. Sannleiksskýrsla 4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 11. febrúar 2017

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.