Fréttatíminn - 11.02.2017, Qupperneq 14
GASTROPUB
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
VALENTÍNUSAR
DAGUR
6.900 kr.
Aðeins framreitt fyrir allt borðið.
14. FEBRÚAR
FORDRYKKUR
– GLAS AF CODORNÍU CAVA
HROSSA "CARPACCIO",
döðlur, rucola-mayo, stökkir jarðskokkar, parmesan
OFNBAKAÐIR HUMARHALAR,
hvítlaukssmjör, humar-mayo, maís-chilisalsa
NAUTALUND,
steiktir ostrusveppir, möndlukartöflur, gulrætur,
nautadjús, bernaisefroða
Tveir eftirréttir
SÚKKULAÐIKAKA "NEMISIS"
bökuð á 90°C
MÍNÍ KLEINUR,
Dulce de Leche-karamella, kanill, sítróna
5 SVÍNSLEGAGIRNILEGIRRÉTTIR
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 11. febrúar 2017
talaði við frænku mína. Ég var
búin að ímynda mér að það yrði svo
hræðilægt.“
Viðbrögð móður Sunnu voru
hins vegar ekki eins og hún hafði
vonast eftir. „Mamma sagði það í
raun beint út að hún ætlaði ekki
að standa með mér. Og ég man að
ég hugsaði hvað ég væri heimsk.
Hvernig gat ég trúað því í öll þessi
ár að hún væri með mér í liði.
Hún ákvað svo að hringja í fjöl-
skyldumeðlimi og vara þá við að ég
væri að fara að ljúga þessu. Ég fékk
því fullt af símtölum þar sem ég
var spurð út í þetta, sem var mjög
óþægilegt.“
Móðirin tók afstöðu gerandans
Sunna ólst upp í sveit og móð-
ir hennar bjó þar enn þegar mál-
ið komst upp. „Hún ákvað að leika
fórnarlambið í sveitinni og ég var
geðveiki krakkinn sem laug. Ég
ákvað að taka ekki þátt í þessu leik-
riti. Ég hringdi ekki í fólk og reyndi
að fá það til að trúa mér eða fór í
sveitina og var með vesen. Það sem
ég gerði hins vegar var að fá hana til
að viðurkenna þetta. Á tímabili var
ég nefnilega farin að hugsa hvort ég
væri orðin geðveik. Hvort ég hefði
kannski verið að ímynda mér þetta.
Hvort þetta hefði ekki gerst. Ég var
farin að trúa því sem þau sögðu um
mig.“
En Sunna fékk móður sína ekki
bara til að viðurkenna að misnotk-
unin hefði átt sér stað, og að hún
hefði vitað af því, heldur tók hún
samtalið upp til að hafa eitthvað í
höndunum sem styrkti mál henn-
ar. „Ég var með símann inni á mér
þegar ég fór að hitta hana og hr-
ingdi í frænku mína sem var með
upptökutæki í símanum. Ég man að
hún bað mig um að geyma töskuna
úti á palli, eins og hana hafi grun-
að að ég væri með upptökutæki.
Svo spurði hún mig þegar líða fór á
samtalið hvort ég væri að taka upp,
sem ég var auðvitað gera. En hún
viðurkenndi þetta allt saman og ég
sá þá fyrir mér að fólk gæti hætt að
velta þessu fyrir sér. Það vissi hvað
væri satt og ósatt. En þegar mamma
komst að því að ég hefði tekið sam-
talið upp þá sagðist hún hafa þóst
trúa mér til að ég myndi ekki átta
mig á hvað ég væri lasin. Þá gafst ég
upp. Ég nennti ekki að eyða tíma í
að sannfæra fólk um að trúa mér.“
Ráðvillt og „stalkaði“ karlmenn
Eftir þetta tóku við nokkur erfið ár
í lífi Sunnu. Það voru svo margir
sem tóku afstöðu með móður henn-
ar og manninum hennar þannig
hún missti samband við stærstan
hluta fjölskyldunnar. „Þau vildu
hafa þetta svona, fórna mér frekar
en þessum manni. Ég ólst upp hjá
mömmu og öllum systkinum mín-
um og allt í einu var þetta fólk farið.
Svo komu jól og páskar og ég vissi
ekkert hvar ég átti að vera.
Í kjölfarið byrjaði ég að vera
„sækó“ gellan. Ég varð algjör stal-
ker í sambandi við karlmenn. Ég
þráði einhverja virðingu og vildi
sýna fólkinu mínu að það væri ein-
hver sem vildi mig. Ég hugsaði með
mér að ef ég myndi giftast einhverj-
um manni þá kannski sæju þau að
ég væri ekki jafn slæm og þau héldu
og áttuðu sig á því að þau væru að
missa að einhverju. Ég var á þeim
stað.“
Ef einhver karlmaður sýndi henni
áhuga þá varð hún alltaf sannfærð
um að hún fengi engan betri, þó
að hún væri ekki endilega hrifin
af honum. Það var nóg að hann liti
vel út á pappír. „Ég var týpan sem
hringdi þúsund sinnum þegar ég
var drukkin. Ég þráði svo innilega
einhverja nánd og fannst ég ekki
geta lifað af án þess að vera með
karlmanni. Ég vildi að karlmaður
bjargaði mér.“
Sunna var mjög þunglynd á þess-
um tíma, brotin og ráðvillt. Hana
vantaði bjargvætt, karlmann í líf sitt
svo allt yrði betra. „Ég var þannig í
mörg ár og var með mörgum strák-
um. Þetta urðu samt aldrei alvöru
sambönd. Við rétt svo náðum deit-
-tímabili og svo byrjaði ég að vera
„sækó“ gellan. Þannig að sam-
böndin dóu alltaf í fæðingu. Ég man
hvað þetta var óþægilegt og ég var
að leita að sambandi á svo röngum
forsendum.“
Hætti að deita
Fyrir þremur árum tók Sunna hins
vegar erfiða ákvörðun. Hún ákvað
að hætta að eltast við karlmenn og
einbeita sér hundrað prósent að
sjálfri sér. „Þá var ég búin að fá að-
stoð hjá Drekaslóð og var að reyna
að vinna í mér. Reyna að komast út
úr þessum erfiðleikum. Ég man eft-
ir að hafa setið á fundi í Drekaslóð
og mér leið eins og ég væri unga-
barn í fullorðnum líkama. Ég vissi
ekkert hver ég var og fannst ég
svo eftir á. Ég hafði svo lengi ver-
ið í einhverjum hlutverkum, eins
og fólk gerir oft þegar það verður
fyrir ofbeldi. Ef einhver hefði spurt
mig hvort mér þætti mjólk eða vatn
betra þá hefði ég ekki geta svarað
því. Ég þurfti að finna út hver ég var
og byrja upp á nýtt.“
Sunna er fegin að hafa ekki verið
í sambandi þegar hún var í þessari
sjálfsvinnu, hún telur að þá hefði
verið erfiðara fyrir hana að finna út
hver hún var.
„Ég lofaði sjálfri mér því að ég
myndi ekki deita neinn eða fara í
samband fyrr en ég væri nógu and-
lega og fjárhagslega vel stæð til að
geta gengið í burtu ef þess þyrfti. Ég
vildi líka geta horft til baka og litið á
líf mitt áður en ég fór í samband og
þótt það frábært, en ekki að ég væri
þunglynd og að sambandið hefði
bjargaði mér. Ég vildi vita að ég gæti
átt gott líf, einstæð með barn.“
Svo leið tíminn og Sunna fann að
hún var mjög ánægð ein með dóttur
sinni. Hún þurfti ekki karlmann til
að líða vel. „Um leið og ég komst
yfir þráhyggjuna fyrir því að vera í
sambandi, fór ég að spá í hvað væri
mér og stelpunni minni fyrir bestu,
án þess að blanda karlmanni inn
í dæmið, þá varð allt svo auðvelt.
Ég sé það núna bara fyrir mér sem
vesen að vera í sambandi. Maður
þarf alltaf að gera málamiðlanir,
gefa af sér og maður fær ekki alltaf
það sem maður vill. Ég er bara ekki
tilbúin í það,“ segir Sunna og skellir
uppúr. „Ég vil bara geta haft hlutina
eftir mínu höfði og gert það sem
mig langar að gera,“ bætir hún við.
„Ástin sem ég ber til dóttur minn-
ar og ófædda barnsins er svo hrein
ást. Ég þarf ekkert frá þeim. En
hrifning mín af karlmanni verður
til því hann er svona og hinsegin af
því að hann kemur svona fram og
gerir þetta og hitt. Börnin mín geta
ekkert gert til að ég hætti að elska
þau. Ég vil miklu frekar eyða tíma
í það heldur en að deita karlmenn.
Ég fullyrði ekki að ég fari aldrei í
samband en ég hef ekki áhuga á því
núna.“
Mæðgunum hefur liðið vel tveim-
ur saman en eru tilbúnar að bæta
öðrum einstaklingi í fjölskylduna.
Dóttir Sunnu er meira að segja búin
að suða um systkini í dágóðan tíma.
Nú er draumur þeirra beggja er að
rætast. „Hún veit alveg hvernig
barnið verður til og hvað er í gangi.“
Sunnu finnst mikilvægt að dóttir
hennar sé meðvituð um mismun-
andi fjölskyldugerðir og að það sé
ekki nauðsynlegt að allir fari sömu
leiðina.
Hugsar hvað hún fékk í staðinn
Í dag er Sunna ekki í sambandi við
neinn í fjölskyldunni sinni nema
eina systur og frænku. Hún tók
meðvitaða ákvörðun um að vera
ekki í sambandi við fólk sem hún
veit ekki hvar stendur gagnvart
henni.
„Ég vil bara hafa fólk í kringum
mig sem ég veit að er hundrað pró-
sent þar fyrir mig og veit hvað er
rétt og rangt.
Mér finnst mjög leiðinlegt að hafa
misst sambandið við þetta fólk en
þetta var það besta sem ég gat gert.
Í dag skilgreini ég fólk ekki sem fjöl-
skyldu, vini eða eitthvað annað. Ég
lít ekki svo á að ég þurfi að vera í
sambandi við fólk af því að það er
tengt mér fjölskylduböndum. Mér
finnst skipta meira máli hvernig
manneskja viðkomandi er, hvort
það ríki traust á milli okkar og hvort
þetta sé manneskja sem ég vil hafa í
lífi mínu. Ég fjarlægði titlana af fólki
og skildi manneskjurnar eftir. Vinir
mínir eru bara fjölskyldan mín. Ég
hugsa ekki um hvað ég missti held-
ur en hvað ég fékk í staðinn,“ seg-
ir Sunna. Hún er rík af góðu fólki
og hefur bakland ef hún þarf á því
að halda. „Mér finnst rosalega gott
að vera sjálfstæð. Það stressar mig
bara ef ég er of bundin einhverj-
um.“
Sunna býður þeim sem hafa
áhuga á að fylgjast með ferlinu
og meðgöngunni að fylgja sér á
snapchat: sunnabaxter.
Dóttir Sunnu veit hvernig barnið verður til og er spennt fyrir að eignast systkini.
Ég þráði einhverja
virðingu og vildi sýna
fólkinu mínu að það væri
einhver sem vildi mig. Ég
hugsaði með mér að ef ég
myndi giftast einhverjum
manni þá kannski sæju
þau að ég væri ekki jafn
slæm og þau héldut og átt-
uðu sig á því að þau væru
að missa að einhverju. Ég
var á þeim stað.“