Fréttatíminn - 11.02.2017, Qupperneq 24

Fréttatíminn - 11.02.2017, Qupperneq 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 11. febrúar 2017 skólum fór að aukast í Svíþjóð og í framhaldinu voru settar á laggirn- ar kokkakeppnir og svo með tíman- um fóru sænskir kokkar að ferðast og keppa.“ „Á þessum tíma stigu kokkarnir líka út úr eldhúsinu og fram í sal. Áður voru það eigendur veitinga- staðanna sem voru stjörnur þeirra, það voru þeir sem buðu gestina vel- komna og svo voru það þjónarnir sem sáu um að bera matinn listi- lega vel fram, flambera fyrir framan augu gestanna eða umbreyta ísklu- mpi í svan. Kokkurinn var hvergi sjáanlegur í þessu ferli, hann var al- gjört aukaatriði. En þarna fara þeir að stíga fram og jafnvel reka sína eigin staði.“ Úr mjólkinni í léttvínið Sænskum kokkum fjölgaði hratt og áhrif nýju matarbylgjunnar, la nouvelle cuisine, bárust að sunn- an. Í þeirri bylgju voru kokkarnir orðnir listamenn og gestgjafar. Allt í einu fóru veitingastaðir að setja gler í stað veggja svo gestirnir gætu séð hvernig kokkurinn töfraði fram eitthvað alveg nýtt úr sama gamla hráefninu. Svo tók sjónvarpið við af glerinu og allt í einu var matur farinn að snúast meira um upplifun en nauðsyn. „Þetta er í raun ein birtingar- mynd umbreytingar sænska þjóðfélagsins úr lútersku iðnað- arsamfélagi yfir post-industrial samfélag þar sem framleiðslan er orðin minna virði en upplifunin sjálf,“ segir Håkan. „Í iðnaðarsam- félaginu vorum við upptekin af því að framleiða vöru, og í Skandinav- íu Lúters hefur þeirri framleiðslu alltaf fylgt strangt vinnusiðferði. Þú áttir að vinna vel og mikið og reglulega á hverjum degi og þú átt- ir alls ekki að njóta lífsins. Það þótti ekki gott að leyfa sér of mikið, þú máttir bara hafa gaman á ákveðn- um dögum, eins og til dæmis á Jónsmessu, en þá urðu flestir ofurölvi.“ „Á áttunda áratugnum fó r m i ð - stétt in að fjarlægjast þessa menn- i ng u, að miklu leyti vegna þess að hún vildi skil- greina sig frá leiðindaforeldr- um sínum sem voru alltaf í vinnunni. Á ní- unda áratugnum var svalt að vera minna sænskur og meira „continental“. Miðjarðarhafsmenn- ingin ýtti sænska vinnusiðferðinu til hliðar og allt í einu fór fólk að fara á veitingahús að borða, ekki af því það var að deyja úr hungri heldur til að njóta matarins. Svíar byrjuðu líka að drekka vín á þess- um tíma en áður var bara drukkin mjólk með mat á veitingahúsum. Besta leiðin til að vera ósænskur og alþjóðlegur á þessum tíma var að láta sjá sig á veitingastað. Það var svo í byrjun tíunda áratugarins sem sænskir kokkar voru komnir með það mikið sjálfstraust að þeir þorðu að brjótast undan Nouvelle cuisine-hefð- inni og byrja að skapa úr sínum eigin uppruna og þannig fæddist New nord- ic cuisine. Kokkarn- ir fylltust metnaði því þeir sáu að þeir gátu ekki orðið bestir nema með nýj- um leiðum. Noma veitingahúsið í Kaup- mannahöfn var einmitt stofnað á þessum tíma, árið 2004.“ Amma helsta fyrirmyndin En afhverju vildir þú sjálfur verða kokkur? „Mér fannst gaman að elda. Það er eitthvað við það að vinna með höndunum en á sama tíma höfða til skynjunar sem mér finnst heillandi. Ég held að áhuginn hafi upphaflega komið frá ömmu, hún var verka- kona sem vann aukavinnu við að elda fyrir heldri fjölskyldur. Þegar við borðuðum hjá henni þá átti hún það til að elda fínan og borg- aralegan mat sem mér fannst heill- andi þegar ég var barn. Ég er ennþá heillaður af mat og en í stað þess að nota hendurnar og elda hann held ég áfram að skoða hvernig það sem við borðum endurspeglar samfé- lagið,“ segir Håkon sem er eini sænski kokkurinn sem einnig stát- ar af þeim titli að vera doktor í mat- armenningu. Hann segist hvergi nærri kominn með nóg af því að skoða áhrif stjörnukokkanna á sam- félagið því umbreytingin sé svaka- leg. Eftir að hafa skrifað um upp- haf sælkerabyltingarinnar er hann nú að skrifa um þau áhrif sem sæl- kerabyltingin hefur haft á borgina, sveitina og heimilin. Feður fyrirmyndir í eldhúsinu „Stór hluti sælkerabyltingarinn- ar snýst um að nota nærtækt hráefni. Norrænn landbúnaður hefur alltaf átt erfitt uppdráttar í samkeppni við innflutt hráefni en nú eru að myndast ný tækifæri. Upp spretta bændur sem leggja áherslu á að rækta grænmeti og korn sem hefur ekki verið notað í tugi ára eða lengur. Áhugi fólks á uppruna matarins er að aukast. Allt í einu eru frumkvöðlar að spretta upp á landsbyggðinni vegna nýrra tæki- færa á markaði og mörg veitinga- hús versla beint við bændur. Þannig að ein afleiðingin er að bændur eru á ný komnir með sína eigin við- skiptavini, og það laðar nýtt fólk að stéttinni. Þetta hefði aldrei gerst án stjörnukokkanna.“ „Önnur hlið og ekki síður áhuga- verð er sú sem snýr að heimilinu. Í dag alast börn upp við að karlmenn geti verið fyrirmyndir í eldhúsinu, bæði vegna sjónvarpsins og frá heimilinu. Nú þegar hafa tvær kyn- slóðir barna alist upp við að hafa feður til jafns við mæður í eldhús- inu en fyrir 30 árum elduðu ekki nema um 10% sænskra feðra fyrir börnin sín. Eldhúsið er ekki leng- ur staður móðurinnar á heimilinu og það mun hafa víðtæk margfeld- isáhrif á menningu okkar. Og að sama skapi eru konur komnar inn í eldhús veitingahúsanna sem áður var karlavígi. Það verður gaman að fylgjast með þessu áfram,“ segir Håkan. Á hann sér draum um að verða aftur kokkur, líkt og forstjórana dreymdi um? „Það er svo fyndið að núna skil- ur fólk ekki afhverju ég hætti að vinna sem kokkur. Hvernig gat ég hætt í þessu frábæra starfi og farið að skrifa,“ segir Hakan og hlær. „Ég þarf allavega ekki lengur að þykjast vera arkitekt til að fá íbúð á leigu.“ „Á níunda áratugnum var svalt að vera minna sænskur og meira „continental“. Mið- jarðarhafsmenningin ýtti sænska vinnusið- ferðinu til hliðar og allt í einu fór fólk að fara á veitingahús að borða, ekki af því það var að deyja úr hungri heldur til að njóta matarins.“ Sænski kokkurinn Magnus Nielsen er einn frægasti kokkur heims um þessar mundir og minnir meira á rokkstjörnu en kokk í blaðavið- tölum. Þúsundir ferðamanna sækja veitingastað hans heim ár hvert. Matartúrismi er eitt afsprengi sælkerabyltingarinnar og hefur Håkan skrifað bók um þann anga þessarar nýju matarmenningar. Håkan Jönsson er dósent í þjóðfræði við Lundarháskóla, en starfaði í áratug á veitingahúsum áður en hann fór í doktorsnám í þjóðfræði. Doktorsrit- gerð hans frá 2005 fjallar um mjólk og menningarlegt gildi hennar í Svíþjóð á 20. öld, en hann hefur ritað fjölda bóka um mat og matarhætti, m.a. um sælkerabyltinguna, matarferða- þjónustu, matvælaiðnað, matarsögu, mat í fjölmiðlum, og um breytilegar hugmyndir um mat og heilsu.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.