Fréttatíminn - 11.02.2017, Side 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 11. febrúar 2017
Bryndís Silja Pálmadóttir
bryndis@frettatiminn.is
Inga Bjarnadóttir meistaranemi í listfræði hefur gefið fólki leyfi til að senda sér spurningar á netinu um líf með fötlun, til þess að berjast gegn fötlun-
arfordómum. Inga svarar spurn-
ingunum og birtir þær á twitter.
„Ég vonast með þessu til að fötlun
verði normalíseruð. Að hætt verði
að líta á fatlað fólk sem sjúklinga
eða grey, heldur bara venjulegt
fólk. Hluti af þessu er að opna
umræðuna því margir vita ekki
hvernig þeir eiga að tala við fatlað
fólk.“ Það kom Ingu sjálfri á óvart
hve margir sendu henni spurn-
ingar. „Mér finnst augu fólks
vera að opnast. Fólki fannst til
dæmis eðlilegt að það væri
ekki aðgengi fyrir fatlaða
en er núna farið að tala um
það.“ Fréttatíminn fékk leyfi
til þess að birta nokkur af
svörum Ingu.
Er dónalegt að spyrja fólk
afhverju það er í hjólastól ?
„Ég myndi ráðleggja að spyrja
aldrei nema þekkja manneskjuna
mjög, mjög vel. Og þá sérstaklega
ekki „Hvað kom fyrir?“ Það getur
verið þreytandi og sárt að þurfa
endalaust að segja frá slysi eða
sjúkdómi. Sjálfri finnst mér verst
að fá viðbrögðin - yfirleitt hvað
þetta sé hræðilegt og sorglegt og
hvað ég er mikil hetja. Þetta er í
alvöru engin tradegía í mínu lífi
og þó fólk hafi fatlast vegna slyss
þá er það örugglega ekki að hugsa
um það alla daga, allan daginn og
nennir væntanlega ekki að ræða
það við ókunnuga.“
Í hvaða aðstæðum á að hjálpa fólki?
Er það pirrandi að vera sífellt boðin
aðstoð?
„Það er fallegt að aðstoða aðra,
óháð því hvort fólk sé fatlað eða
ekki. Hins vegar er mikilvægast
af öllu að bjóða aðstoðina fyrst
og hlusta og virða ef viðkomandi
segir nei. Það sem mörgum þykir
þreytandi er að ófatlað fólk nálg-
ast það bara til að bjóða aðstoð.
Kunna ekki aðra leið til vináttu við
fatlað fólk. Það er lítillækkandi.
Eins er að bjóða aðstoð við mjög
persónulega hluti eins og salernis
ferðir að mínu mati óviðeigandi.
Góð regla er að bjóða aðstoð en
taka því ekki illa ef fólk afþakkar.“
Upplifir þú hindranir vegna skorts
á aðgengi?
„Já, aðgengisleysi er án efa eitt
það erfiðasta sem ég díla við og
það gerist svona tvisvar til þrisvar
í mánuði. Afmæli, skemmtistaðir,
heima partí, matarboð, heim-
sóknir - yfirleitt alltaf óaðgengi-
legt og ég fæ massa samviskubit
yfir veseninu sem ég veld. Oft
lélegt aðgengi og ég þarf að ganga
í gegnum þvílíkt vesen og jafnvel
stofna mér í hættu, eða kemst ekki
og allir rosa sorrí yfir því. Ég þarf
stöðugt að minna mig á að þetta
sé ekki mér að kenna og hætta að
taka ábyrgð. Aðgengi er að batna
hægt, en vitund og samstaða al-
mennings virðist vera að aukast.“
Svarar spurningum
til þess að uppræta
fötlunarfordóma
Inga Bjarnadóttir leyfir
fólki að senda á sig spurn-
ingar til þess að opna
umræðuna. Mynd | Hari
Þó fólk hafi fatlast
vegna slyss þá er
það örugglega ekki
að hugsa um það alla
daga, allan daginn og
nennir væntanlega
ekki að ræða það við
ókunnuga.
Hinn forspái fótur skipar
Trump í rassgat
Bragi Páll lét á
dögunum flúra á sig
„Trump farðu í rassgat’’
eftir lýðræðislega
kosningu um næsta
húðflúr á netinu.
„Forlögin virðast hlýða fætinum,“
segir Bragi Páll Sigurðarson blaða-
maður sem í vikunni lét húðflúra
„Trump - farðu í rassgat“ á hægri
fótlegg sinn. Þetta nýja húðflúr
er þó ekki eina flúrið sem prýð-
ir þennan merka fót heldur hefur
Bragi tvisvar áður látið flúra á
fótinn álíka skipanir. „Ég fékk mér
húðflúrið „Valdi komdu heim“ eft-
ir að einn besti vinur minn flutti
til Noregs.“ Stuttu seinna þegar
málið með Hönnu Birnu var í há-
marki fékk Bragi sér álíka húðflúr
sem sagði „Hanna Birna segðu af
þér,“ en það má segja að bæði flúr-
in hafi verið forspá um það sem
koma skyldi. „Fóturinn hefur ver-
ið nefndur hátíðlegum nöfnum af
ýmsum gárungum úti í bæ, eins og
fótur sannleikans eða hinn forspái
fótur,’’ segir Bragi.
„Hvatinn að nýja húðflúrinu
var þegar Valdi ákvað í byrjun
þessa árs að flytja heim og Hanna
Birna sagði af sér og hætti þing-
mennsku.“ Bragi kveðst þó sjálfur
hafa haft lítil áhrif á nýtt húðflúr
um Trump heldur ákvað hann að
leggja ákvörðunina undir lýð-
ræðislega kosningu á veraldar-
vefnum. Niðurstaða kosningar-
innar var því skipun til Trump um
að fara í rassgat. Bragi er þó ekki
alveg viss með merkingu skipunar-
innar og telur möguleika vera á
því að Trump sé nú þegar kominn
í rassgat. „Ef maður lítur á þetta
bókstaflega þá þýðir þetta líklega
að vera slippur og snauður, rúinn
virðingu. Ég held nefnilega að það
sé físískt séð ómögulegt að fara í
eigið rassgat.“ | bsp
Bragi er ekki viss hver
merking þess að fara í
rassgat er. Mynd | Hari
Í BEINU FLUGI FRÁ KEFLAVÍK
BÚDAPEST
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Ein af fallegri borgum Evrópu,
hún er þekkt fyrir sínar glæsi
byggingar sem margar eru
á minjaskrá UNESCO, forna
menningu og Spa/heilsulindir.
Við bjóðum einnig uppá mjög góð
heilsu/Spa hótel í Ungverjalandi
allt árið, en flogið er tvisvar í viku.
Ungverjar eru heimsþekktir fyrir
sína heilsumenningu en upphaf
hennar má rekja hundruð ár til
forna.
VERÐ 149.900.-
per mann í 2ja manna herbergi. Innifalið: Flug,
hótel með morgunmat, islenskur fararstjóri og
rúta til og frá hóteli.
12. – 19. JÚNÍ
ÖRFÁ
SÆTI
LAUS!
Fermingarblað
Fréttatímans
þann 18.mars
gt@frettatiminn.is
gauti@frettatiminn.is