Fréttatíminn - 11.02.2017, Síða 38
FÆÐUBÓT
með skynsemina að vopni
KOSTIR:
○ Fæðubótarefni geta vissulega hjálpað til við að byggja upp og
stækka vöðva. þarna kemur mysuprótein til dæmis sterkt inn.
○ Sum þeirra geta hjálpað til við fitubrennslu eins og til dæmis þau sem
innihalda koffín og ákveðnar amínósýrur.
○ Oft geta þau gefið aukna orku fyrir og eftir æfingar og aukið blóð-
flæði.
○ Yfirleitt er góð næring í fæðubótarefnum ásamt virkum efnum sem
getur hjálpað til, sér í lagi þegar verið er að taka mataræðið í gegn og
einhversstaðar mögulega pottur brotinn.
GALLAR:
○ Sum efni í fæðubótarefnum geta valdið truflunum í meltingavegi. Þau
geta valdið niðurgangi og uppþembu og þau sem eru viðkvæm fyrir
mjólkurpróteinum gætu upplifað óþægindi.
○ Bæði kreatín og koffín eru örvandi efni sem oft eru notuð í fæðubót-
arefni, ekki síst fitubrennsluefni. Þau geta hins vegar orsakað óeirð og
valdið erfiðleikum við svefn. Passa
skal að taka efni með þessum inni-
haldsefnum ekki þegar líða tekur
á daginn og sumir þola alls ekki
inntöku þeirra yfirleitt. Auk þess
getur þessi blanda, kreatín og
koffín, valdið ofþornun.
○ Sum algeng efni, sér í
lagi kreatín, geta valdið
nýrnaskemmdum í
miklum mæli. Sumt
fólk er útsettara
fyrir nýranabilun
en annað svo best
er að fara var-
lega.
Fæðubótarefni geta verið mikill akkur fyrir þau sem stunda að jafnaði
öfluga líkamsrækt. En að mörgu er þó að huga og heillavænlegast er að
nota þessi efni skynsamlega. Passa skal að velja aldrei fæðubótarefni
sem henta ekki þínum líkama eða þeim stað sem þú ert á hverju sinni.
Hér eru nokkrir kostir og gallar þess að nota fæðubótarefni.
SAGAPRO
Við tíðum þvaglátum
„Hér áður voru klósettferðir hjá mér mjög tíðar.
Ég prófaði síðan að taka SagaPro og hef nú tekið
daglega í töluverðan tíma. Þetta er í góðu lagi núna!“
Hjálmar Sveinsson, 67 ára verkefnastjóri
SAGA MEMO
Fyrir heilbrigt minni
„Ég byrjaði að taka SagaMemo af því það
er unnið úr jurtum og öll mín orka og minni
hefur batnað til muna. Þvílík snilld!“
Berglind Hanna Ólafsdóttir, 57 ára sjúkraliði
SAGAVITA
Gegn vetrarpestum
Í þau 10 ár sem ég hef tekið
SagaVita þá hef ég ekki misst úr
dag í vinnu vegna veikinda.“
Sævar Hjaltason, 51 árs forstöðumaðurSÆKTU STYRK Í
ÍSLENSKA NÁTTÚRU
SagaMedica framleiðir náttúruvörur
úr íslenskri hvönn en ætihvönn hefur
um aldir verið talin afar mikilvirk
lækningajurt.
Vörurnar frá SagaMedica eru fáanlegar í flestum
apótekum, heilsu- og matvöruverslunum.
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 20172 HEILSA
Útgefandi: Morgundagur ehf. Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300