Fréttatíminn - 11.02.2017, Page 46

Fréttatíminn - 11.02.2017, Page 46
 Farið á staðinn sem þið borðuðuð fyrst saman á. Að vísu eru töluverðar líkur á því að hann sé ekki þar lengur, sé sambandið eldra en tvævetur. En finnið einhvern stað sem þið deilið minningu um og rifjið upp þegar nýjabrumið var í algleym- ingi. Ó, nýjabrumið! Gerðu eitthvað sem þú hefur aldrei gert áður - þarf ekki að vera merkilegt en þarf að koma á óvart. Hefurðu aldrei skipt um á rúminu að fyrra bragði? Hefurðu aldrei boðið maka þínum upp á heilnudd? Hefurðu aldrei eldað þriggja rétta máltíð? Hefurðu aldrei vaknað eldsnemma og farið í bakarí og verið búin/n að hella upp á þegar makinn vaknar. Oft er fegurðina að finna í litlu hlutunum. Farið saman í kvöldsund. Það er ekkert notalegra en að láta líða úr sér í pottinum og fara svo í einn lítinn með dýfu á eftir. Beint heim í ból, endurnærð á líkama og sál. Þetta er ódýr og hversdagsleg rómantík. Tékkið á kvöldopnun sundlauganna á sundlaugar.is. Opnið rauðvíns- eða rótarbjórs- flösku þegar börnin, séu þau í dæminu, eru sofnuð og spilið Skrafl. Það kemur á óvart hvað það kyndir undir ástinni að leika sér með orð og stafi. Próf- ið bara. Komdu ástinni rækilega á óvart, farðu inn á dohop.com og finndu ódýrasta fargjaldið til Parísar um helgina. Pantaðu Ef þið geymið hátíðarhöldin þar til um helgina, farið þá út að dansa. Dansið saman inn í nóttina eins þið séuð bara tvö/ tveir/tvær í heiminum. Farið í norðurljósatúr. Já, svona túristaferð! Ef norðurljósaspá- in er góð, það er. Þó að þessar ferðir séu vissulega miðaðar út frá ferðamönnunum þá er alltaf gott að upplifa það að vera gestur í eigin landi. Svo hafa norðurljós einstaklega dáleið- andi áhrif og jafnvel frygðar- aukandi. Fullkomið stefnumót! Ástinni fagnað á fjölbreyttan hátt Valentínusardagurinn er framundan og þá er ekki úr vegi að fagna ástinni enda er hún ekki sjálfsögð. Hér eru nokkrar misdramatískar leiðir til þess að fagna þessum degi sem sumir elska að hata. hótel á booking.com og skellið ykkur til ástarborgarinnar miklu, labbið meðfram Signu, takið selfie í Effielturninum og kíkið á Monu Lisu. Eða notið tímann og borðið allan þann dásamlega mat sem hægt er að fá á mörkuðum, verslunum og veitingastöðum í París. Munið eftir Tripadvisor og Yelp til að lenda ekki í túristagildrum. LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 201710 ÁSTIN Ómetanlegt dekur í amstri dagsins Notaleg snyrtistofa í 101 Unnið í samstarfi við Kosmetik Kosmetik við Garðastræti 2 er lítil og persónulega snyrtistofa sem býður upp á allsherjar snyrtimeð- ferðir. Það eru þær Kristín og Jó- hanna sem hafa staðið vaktina á þessari notalegu snyrtistofu sem hefur verið starfandi í tæp tvö ár. Á þessum tíma hefur Kosmetik eignast fjölda fastakúnna, ekki síst meðal Vesturbæinga og þeirra sem starfa í miðbænum - enda afar þægilegt að geta skot- ist í hádeginu eða eftir vinnu í dálítið dekur. 100% lífrænar snyrtivörur Kosmetik notar Janssen Cosmetics sem er þýskt gæða- merki og flokkast raunar sem „cosmeceuticals“ sem þýðir að vörurnar hafa meiri virkni en venjulegar húð- og snyrtivör- ur. „Þær eru þróaðar af læknum og snyrtifræðingum og eru mjög náttúrulegar og umhverfisvænar. Innan merkisins eru fjölbreyttar línur, til að mynda veganvottuð lína og 100% lífræn lína. Við erum ótrúlegar ánægðar með þessar vörur, bæði vegna virkninnar og ekki síður vegna þess að þær eru lausar við aukaefni og skaða ekki umhverfi okkar,“ segir Kristín. Fagleg ráðgjöf Kristín og Jóhanna eru með á nótunum hvað varðar það nýjasta í bransanum og leggja áherslu á að veita faglega ráðgjöf. „Það er svo ótrúlega mikið úrval af snyrti- vörum til í dag og til dæmis mjög margar vefsíður sem eru að selja alls kyns snyrtivörur. Samkvæmt auglýsingum þá henta allar vörum öllum en það er samt ekki þannig, við erum með mismunandi húð og bregðumst mismunandi við ólíkum vörum. Við erum búnar að mennta okkur í þessu og ein- blínum á að veita persónulega ráðgjöf,“ segir Kristín og bendir á að þær fari á öll námskeið sem bjóðast til þess að viðhalda þekk- ingu sinni og fylgjast með nýjustu straumum og stefnum. Ómetanlegt að dekra við sig Að dekra við sjálfa/n sig er líklega vanmetið og segist Kristín skynja hvernig streitan líður úr fólki þegar það leggst á bekkinn hjá henni. „Maður finnur hvað fólki finnst þetta gott fyrir sálina, að koma á hlutlausan stað og gera eitthvað fyrir sjálft sig. Þetta er ómetanlegt í hröðu samfélagi, að hugsa um andlegu hliðina með því að láta eftir sér smá dekur,“ segir Kristín og minnir á gjafabréfin sem eru ákaflega sniðug handa þeim sem allt eiga. Virkar á Facebook Kosmetik býður alltaf upp á til- boð mánaðarins sem Kristín og Jóhanna setja bæði inn á vef- síðu snyrtistofunnar og Face- book en þar eru þær afar virkar. „Við hvetjum alla til þess að fylgja okkur þar, við notum Facebook mjög mikið til þess að sýna hvað við erum að gera, setjum inn til- boð, nýjungar og fróðleik. Einnig er hægt að panta tíma þar, ungu stelpurnar nýta sér það mikið og okkur finnst það bara frábært,“ segir Kristín en einnig er hægt að panta tíma í síma 5717995 eða gegnum tölvupóstinn kosmetik@kosmetik.is. Kristín Bergmann er snyrtifræðingur og annar eigandi Kosmetik við Garðastræti. Myndir | Hari Janssen Cosmetics vörurnar eru bæði umhverfisvænar og náttúrulegar. Kosmetik er notaleg og persónuleg stofa í 101.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.