Fréttatíminn - 18.03.2017, Blaðsíða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 18. MARS 2017
og Justyna vill meina að þau
mótmæli hafi haft mikið að segja
og hafi verið upphafið af nýrri
kvenréttindabylgju í Póllandi.
Good Change
Í Póllandi er þegar í gildi fóstur-
eyðingarlög sem leyfir aðeins fóst-
ureyðingar í þremur tilfellum, eða
þegar um er ræða nauðgun, eða
ef heilsufar móður eða barns er
í hættu, eða ef um fósturskaða er
að ræða. Réttur og lög, með stuðn-
ing kirkjunnar, vill hinsvegar blátt
bann við fóstureyðingum sem er
stefna sem þeir kalla Good Change.
En flokkurinn, sem komst ekki upp
með bannið, er með aðrar áætlanir,
eins og að banna „daginn-eftir-pillu“
og hvetja til þess að læknar neiti
konum um fóstureyðingu á forsend-
um eigin siðferðiskenndar sem er
byggt á
ákvæði
sem
nefnist
„Consius
Clause“.
„Það get-
ur reynst
konum í
dreifbýl-
inu mjög
erfitt
þar sem ekki er um marga lækna
að velja,“ segir Justyna, sem hefur
áhyggjur af því að læknar séu að
nota þetta í auknum mæli eftir að
Réttur og lög komst til valda árið
2015. En stefnu flokksins er haldið
á lofti undir slagorðinu „Good
Change“ sem af mörgum túlkast
sem hræðilegar breytingar.
Hættulegt að verða ófrísk
Ástandið í Póllandi er klikkað, það
er alltaf verið að þrengja að konum.
„Ég velti mikið fyrir mér mínum
eigin barneignum þegar ég var að
undirbúa mótmælin á síðasta ári,“
segir Justyna, en hún segir umhverf-
ið sem flokkurinn skapar ekki hvetja
til barneigna.
Heilbrigðisþjónustan hefur verið
skorin niður þannig að það er erfitt
að komast í mæðraskoðun. Og ef
konur missa fóstur þá eiga þær á
hættu að verða sakaðar um morð
og handjárnaðar á spítalanum.
Afturhaldið í Póllandi
„Að vera karlremba og „chauvinisti“
ber vott um voða litla manneskju,“
segir Justyna og býr til minnstu
mælieiningu með vísifingri og þumli
og sýnir smæð karlrembunnar. „En
það eru karlar á pólska þinginu sem
tala opinskátt um það ef þeirra eigin
dóttir yrði fyrir nauðgun og barns-
hafandi, þá myndu þeir neyða hana
til þess að eiga barnið.“ En akkúrat
svona orðræða og öfgaöfl hafa stuðn-
ing þjóðarinnar sem er ótrúlegt, seg-
ir Justyna og veltir fyrir sér hvernig
popúlistarnir náðu þessum tökum á
þjóðinni. „Kannski af því að Réttur
og lög gerði hluti eins og að greiða
barnafjölskyldum vissa upphæð á
barn mánaðarlega, það jók allavega
á vinsældir hans,“ segir Justyna.
Súrrealískar fréttir
„Ég skrapp heim fyrir jól til foreldra
minna. Ég var að skera niður í salat
og kveikti á sjónvarpinu. Ég ætlaði
að horfa á fréttirnar á TVP1, sem er
pólska ríkissjónvarpið. Pabbi sagði
við mig: Hvað ertu að gera þér, af
hverju ertu að horfa á þetta? Og
hann hafði rétt fyrir sér, fréttirn-
ar voru súrrealískar. Þær minntu
á eitthvað ævintýralíf frá fimmta
áratugnum. Allt var svo æðislegt,
fólk að tala um hvað lífið þeirra væri
yndislegt og fagurt. Þannig er allur
fréttaflutningur, eitt stórt leikhús
þar sem öllum sannleika er hagrætt
flokknum í hag.“
„Ég skil ekki hvað er að gerast í
Póllandi,“ segir Justyna Grosel.
„Ef konur missa
fóstur þá eiga
þær á hættu að
verða sakaðar
um morð og
handjárnaðar
á spítalanum.“
En Réttur og lög hefur tekið yfir
alla ríkisfjölmiðlana og heldur uppi
sínum eigin „sannleika,“ segir
Justyna. Landskunnur og vinsæll
blaðamaður hætti á pólska útvarp-
inu Trójka, sem er þeirra RÚV Þar
hefur umræðan ávallt verið þokka-
lega frjáls og opinská, jafnvel á tím-
um á kommúnismans.
Rasistinn á Evrópuþinginu
Justyna segir sig oft þurfa að setja
sig betur inn í umræðuna í Póllandi
til þess að vera viðbúin að svara
fyrir allskonar vitleysu sem pólskir
ráðamenn hafa í frammi. Einn karl
sem heldur úti hatursfullri orð-
ræðu, rasisma og kvenfyrirlitningu
er Janusz Korwin-Mikke. Karlinn
situr á evrópska þinginu fyrir hönd
Póllands, þrátt fyrir að það gangi
undirskriftalisti þar sem krafist er
afsagnar hans. Hver er þessi mað-
ur? spyr Justyna sig og svarar því
að fullt af ungu fólki hafi kosið hann
af því að hann vill lögleiða gras til
fíkniefnaneyslu. Hafðir eru eftir
honum ótrúlega ömurlegir hlutir
eins og að „ekki sé hægt að nauðga
vændiskonu“. „Hann fær mann til
þess að skammast sín fyrir pólska
þjóðernið og það sem verra er, að
líklega mun hann fá greiddan lífeyri
frá Evrópubandalaginu þangað til
hann deyr.“
Berjast fyrir lífi sínu
Justyna telur vera mun á kvenna-
baráttunni á Íslandi og í Póllandi.
„Ef það er eitthvað mikið í ólagi á Ís-
landi þá þjappa konur sér saman og
eru samstiga, og ég hefði viljið sjá
allar konur, sem eru 52% af pólsku
þjóðinni, berjast gegn banninu, en
það er ekki reyndin. En það má ekki
gera lítið úr kraftinum í baráttunni í
Póllandi, þær eru auðvitað að berj-
ast fyrir lífi sínu. Ástandið er alvar-
legt og það eru mjög skrýtnir hlut-
ir að gerast. Kannski þarf byltingu
til þess að koma á breytingum í
landinu.
Óskiljanlegt ástand í Póllandi
„Við losnuðum undan Sovétríkj-
unum árið 1989 og það er stuttur
tími til þess að æfa lýðræði. Núna
hef ég verið í burtu í þrjú ár og ég
sakna fjölskyldu og vina. Pólland
er fallegt land og Pólverjar eru gott
fólk. En ég er enginn þjóðernissinni
og gæti búið hvar sem er. En samt
vil ég berjast fyrir réttindum fólks í
Póllandi og „Good Change“ eru alls
ekki góðar breytingar. Ég skil ekki
hvað er að gerast í Póllandi.“
Frá Black Monday mótmælunum
3. október á Austurvelli. Pólskar og
íslenskar konur mótmæltu hertri
fóstureyðingarlöggjöf í Pólandi.
Mynd | Anna Wojtynska
Komdu og spjallaðu við okkur á
Centerhotel Plaza
HVERNIG ER KAUPFERLIÐ Á SPÁNI:
Fræðslufundir báða dagana kl. 12 og 15
18. og 19. mars
Frá kl. 10:00 til 18:00
Aðalstræti 4 – 101 Reykjavík
Skráðu þig hér: www.medlandspann.is