Fréttatíminn - 18.03.2017, Blaðsíða 28
28 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 18. MARS 2017
Stefán Turner er einn
af örfáum Íslendingum
sem blogga markvisst
um herratísku. Áhugi
hans á tísku kviknaði
í gegnum fótbolta en
fyrirmyndir hans á
vellinum voru gjarnan
vel klæddar utan vallar
og heilluðu hann upp
úr skónum.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Stefán John Turner kom eins og ferskur andvari inn í tískubloggheiminn í lok síðasta árs, en hann er einn af örfáum íslensk-
um karlmönnum sem blogga um
herratísku. Eftir því sem hann
kemst næst er hann eini íslenski
karlmaðurinn sem býr á Íslandi
og bloggar markvisst um tísku,
en hann á íslenskan kollega í Dan-
mörku sem hefur bloggað um
tíma.
Stefán, sem heldur úti bloggsíð-
unni stefanjohnturner.com, hefur
spáð í tísku síðan hann var lítill
fótboltastrákur í Vogum á Vatns-
leysuströnd. Fyrst var áhuginn
eingöngu á tískutrendum helstu
fyrirmyndanna í boltanum, en
áhuginn þróaðist hratt. „Ég byrj-
aði að pæla í tískunni í tengslum
við fótboltann og út því frá byrjaði
ég að pæla almennt í fötum. Ég
keypti mér mikið af fötum þegar
ég var unglingur, spáði mikið í
fatasamsetningum og fannst rosa
skemmtilegt að setja saman ný föt.
Ég átti mikið af fyrirmyndum úti
í heimi, eins og Ronaldo og Dav-
id Beckham sem er langbestur í
þessu. Tíska og fótbolti er svo ná-
tengt. Það skiptir svo miklu máli
að vera í tískunni utan vallar,“ seg-
ir hann kíminn.
„Mig langar svo að fá fleiri
stráka til að blogga. Það yrði
ógeðslega gaman. Ég hef bara
fengið frábær viðbrögð við mínu
bloggi,“ bætir hann við.
En Stefán er ekki bara að blogga
um föt og tísku heldur er hann
með sitt eigið fatamerki, Riptide
Clothing, sem hann kom á fót áður
en bloggævintýrið hófst. Hann
lætur meðal annars prenta á peys-
ur og boli og saumar sín eigin föt
meðfram því.
„Mig langaði alltaf að blogga
en þorði það ekki alveg.
Áhuginn jókst þegar ég
byrjaði með fatamerk-
ið. Ég hugsaði svo um
þetta í viku og ákvað að
slá til. Ég skrifaði niður
allt það jákvæða og neikvæða við
að blogga og tók ákvörðun út frá
því. Ég prófaði bara og er búinn
að vera að fikra mig áfram. Ég
hef mikið verið að fylgjast með
bloggurum og instagrömmurum
úti og langar svolítið að fanga svip-
aða stemningu.“
Stefán leggur mikið upp úr fal-
legum myndum á síðunni sinni,
en kærastan hans og félagi hans
hjálpa honum mikið við það. „Svo
er ég líka hjá Ey-
lendu, sem er
samfélag
bloggara, og við
hjálpumst öll að.
Tökum stundum
myndir af hvort
öðru og svona.
Það er æðislegt að
vera hluti af svona
hópi, ég er alltaf
að læra eitthvað
nýtt.“
Stefán fær eðli-
lega mikið af spurn-
ingum frá strákum
sem eru að vandræð-
ast með í hverju þeir
eiga að vera, eða hvern-
ig þeir eigi að raða föt-
um saman og hjálpar
þeim að sjálfsögðu með
glöðu geði. Hann vill
vera tískufyrirmynd
og draumur hans er að
rætast.
„Ég set markið mjög
hátt og á stóra drauma.
Bloggið er bæði á ensku og
íslensku, því mig langar að
ná til stærri hóps en hér á
Íslandi. Ég er bara rétt að
byrja,“ segir hann einlægur,
en hann er að fá töluverða
skoðun í Bretlandi, Bandaríkj-
unum, Svíþjóð og Danmörku.
Sjálfur er hann hálfbreskur, á
breskan föður og hefur verið
með annan fótinn í Bretlandi alla
tíð. Honum finnst því ekki leiðin-
legt að fá athygli þar.
Fótboltastrákur
sem varð tískugúru
Strax sem unglingur
keypti Stefán sér
mikið af fötum og
hafði gaman af
því að prófa nýjar
samsetningar.
Mynd | Rut
Mig langar svo að
fá fleiri stráka til
að blogga. Það yrði
ógeðslega gaman.
NISSAN MICRA VISIA
ELDSNEYTISNOTKUN 5,0 L/100 KM*
BEINSKIPTUR. VERÐ: 1.850.000 KR.
NISSAN MICRA
NETTUR, ÓDÝR OG HLAÐINN BÚNAÐI
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Staðalbúnaður er meðal annars: Handfrjáls Bluetooth
símabúnaður, hiti í sætum, aðgerðahnappar í stýri, rafknúið
léttstýri, ESP stöðugleikastýring, AUX tengi fyrir iPod o.fl.
Sjálfskiptur. Verð: 2.090.000 kr.
* V
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
0
6
4
1
N
is
s
a
n
M
ic
ra
5
x
2
0
e
ld
ri
t
y
́
a
n
t
il
l
b
o
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
OPIÐ Í DAG FRÁ KL. 12–16