Fréttatíminn - 18.03.2017, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 18. MARS 2017
Dómsmálaráðherra segir ekki vandræðalegt fyrir Ísland, að hafa nú í fimm-gang fengið áfellisdóma
frá Mannréttindadómstóli Evrópu í
tjáningarfrelsismálum. „Nei, nei, ég
myndi nú ekki segja það, en þetta
er auðvitað vísbending um að það
sé eitthvað óljóst í þessum málum
sem við þurfum að skýra betur,“
segir ráðherra í samtali við Ríkisút-
varpið eftir að Mannréttindadóm-
stóll Evrópu úrskurðaði að enn eina
ferðina hefði Hæstiréttur brotið
gegn tjáningarfrelsi blaðamanna.
Íslenskir fjölmiðlar, sem búa við
bág rekstrarskilyrði og eru flestir á
brauðfótum, þurfa einnig að starfa
undir fallöxi Hæstaréttar sem virð-
ist hafa setið eftir um tvo eða þrjá
bekki þegar kemur að tjáningar-
frelsinu. Hver og einn dómur frá
Mannréttindadómstólnum hefði
átt að gefa fullt tilefni til að skoða
hvort þessi mál væru ekki komin
í blindgötu en allt kom fyrir ekki.
Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður
hefur bent á skelfilegar ákvarðanir
Hæstaréttar um að láta fjölmiðlana
einnig standa straum af málskostn-
aði í málum sem enda með sýknu.
Meiðyrðamál eru vissulega verkfæri
sem hægt er að nota til þöggun-
ar og slík vinnubrögð bæta ekki
ástandið. Vonandi verður þessi nýj-
asti dómur til þess að dómarar fari
að túlka ákvæði hegningarlaganna
mjög varlega þegar kemur að því að
þrengja að tjáningarfrelsinu, það
ætti að vera augljóst að þau halda
ekki í lýðræðissamfélagi.
En þetta snýst ekki bara um pen-
inga. Þetta snýst um réttlæti.
Af hverju rekur dómsmálaráð-
herrann nefið upp í loftið og lætur
eins og hún vilji að fjölmiðlar haldi
áfram að starfa undir fallöxinni? Er
þöggunin svo mikils virði, að ríkið
vill láta sig hafa það að hirða reikn-
inginn í þeim undantekningartil-
vikum að mál eru send til Mann-
réttindadómstólsins en þagga niður
í æði mörgum blaðamönnum þess
á milli?
Eða er frjálshyggjukonunni bara
svona mikils virði að viðurkenna
ekki að ríkisvaldið hafi haft rangt
við?
Þóra Kristín
5-0
GAMMA í átta milljarða
viðskiptum með leigufélög sín
Stærstu leigufélög
Íslands
Heimavellir
2100 íbúðir
308 eru í byggingu
Almenna leigufélagið GAMMA
1100 íbúðir
Ásbrú ehf
70 íbúðir
BK Eignir:
400 íbúðir
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Húsnæðismál Sjóðsstýringarfyr-
irtækið GAMMA metur hlutafé fé-
laganna sem eiga íbúðirnar sem
fyrirtækið hefur keypt í Reykjavík
og nærliggjandi sveitarfélögum á
rúmlega 8 milljarða króna. Þetta
kemur fram í þinglýstu skjali frá
stjórn félagsins sem heldur utan um
íbúðirnar fyrir Gamma, Almenna
leigufélaginu ehf. Um er að ræða
átta eignarhaldsfélög í heildina.
Ákvörðunin um hlutafjáraukn-
inguna var tekin í desember síðast-
liðnum.
GAMMA var fyrsta fyrirtækið á
Íslandi sem sá viðskiptatækifæri í
stórfelldum uppkaupum á íbúðar-
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu árið
2013 og byrjaði það þá að safna að
sér íbúðum. Í kjölfarið hafa orðið til
önnur leigufélög eins og Heimavell-
ir, BK Eignir og Ásbrú ehf. sem hafa
keypt upp samtals vel á þriðja þús-
und íbúðir. GAMMA hefur á liðnum
árum keypt um 1100 íbúðir og má á
áætla að rúmlega 3000 íbúar búi í
þessum leiguíbúðum. Ómögulegt er
að sjá í opinberum gögnum hverjir
það eru sem eiga Almenna leigufé-
lagið og tengd félög þar sem um er
að ræða eignarhald í gegnum sjóði
sem GAMMA heldur utan um.
Viðskipti GAMMA og hinna leigu-
félaganna hafa verið mjög umdeild
þar sem um er að ræða fjársterk
stórfyrirtæki, þar sem lífeyrissjóð-
ir eru meðal annars hluthafar í til-
felli GAMMA, sem eiga í samkeppni
við einstaklinga á íbúðamark-
aði. Hlutdeild þessara leigufélaga
á höfuðborgarsvæðinu telur nú
nokkur þúsund íbúðir. Þau fjögur
stærstu eiga rúmlega 4000 íbúðir
víðs vegar um landið, mest á höf-
uðborgarsvæðinu. Þegar litið er til
þess að árið 2016 voru 136 þúsund
íbúðir á öllu landinu þá er þessi tala
ekki svo há, tæp 3 prósent, en mið-
að við hversu stutt slík leigufélög
hafa starfað á Íslandi – rúmlega þrjú
ár – þá er þetta ansi há tala.
Upplýsingarnar eru í skjali þar
sem greint er frá því að Almenna
leigufélagið hafi í árslok í fyrra tekið
ákvörðun um að hækka hlutafé sitt
um rúmlega 600 milljónir króna
að nafnverði með því að móður-
félag þess, Almenna leigufélagið
eignarhaldssjóður, lagði fram eign-
ir átta eignarhaldsfélaga sem halda
utan um íbúðirnar sem GAMMA
hefur keypt. Þetta hlutafé var svo
selt á genginu 10 eða á ríflega 6.4
milljarða króna í heildina. Jafn-
framt tók Almenna leigufélagið yfir
skuldir upp á ríflega 1200 milljónir
króna og veitti 400 milljóna króna
víkjandi lán.
Almenna leigufélagið er fyrir
vikið miklu sterkara fyrirtæki en
ella þar sem hlutafé félagsins er
nú nærri fjórfalt hærra en það var
fyrir. Gísli Hauksson, þáverandi for-
stjóri GAMMA og núverandi stjórn-
arformaður, sagði við Fréttatímann
í árslok í fyrra að til stæði að skrá
Almenna leigufélagið á markað á
þessu ári og að leigutími íbúða fé-
lagsins yrði hækkaður upp í fimm
ár. Aðspurður um hlutafjáraukn-
inguna segir Gísli í svari í tölvu-
pósti að hann sé í fríi og geti því
ekki svarað spurningum um málið.
Sérfræðingur á fjármálamarkaði,
sem Fréttatíminn bar hlutafjáraukn-
inguna undir, segir að líklegast sé
að Gamma sé með þessu að safna
mörgum fjárfestingum saman í eina
stóra fjárfestingu, í þessu tilfelli Al-
menna leigufélagið. Hann segir að
aðgerðin sé liður undirbúningi að
skráningu Almenna leigufélagsins
á markað þar sem uppbygging fé-
lagsins verði einfaldari fyrir vikið.
Sérfræðingurinn segir að líklegt
sé að Almenna leigufélagið verði
svo endurfjármagnað með útgáfu
skuldabréfa til að lækka vaxtakostn-
að fyrirtækisins. Þegar fyrirtækið
verður skráð á markað munu hlut-
hafar þess svo geta selt hluti sína í
félaginu og eftir atvikum grætt háar
fjárhæðir á íbúðaviðskiptunum.
GAMMA, fyrirtækið sem Gísli Hauksson stýrði sem forstjóri þar til nýlega, undir-
býr Almenna leigufélag sitt undir skráningu á markað og hækkaði nýlega hlutafé
fyrirtækisins með 8 milljarða króna fasteignasafni.
Leigufélagið undirbúið fyrir skráningu á hlutabréfamarkað. Átta milljarða eignir
settar inn í Almenna leigufélagið. GAMMA er fyrsta fyrirtækið sem sá tækifæri
í stórfelldum uppkaupum á íbúðarhúsnæði í Reykjavík. Á milli þrjú og fjögur
þúsund manns, um eitt prósent af íslensku þjóðinni, búa í íbúð frá GAMMA.
Hlutfallslegur munur á leit Breta af Norður-
löndunum á netinu undanfarna 12 mánuði.
Að hverju eru
Bretar að leita?
Finnland
Ísland
Svíþjóð
Noregur
Danmörk
Dómsmál Engin játning liggur
fyrir í máli Birnu Brjánsdóttur en
málið er komið á borð héraðssak-
sóknara.
Málsgögnin í máli Birnu Brjáns-
dóttur voru afhent héraðs-
saksóknara í gær. Hann tekur
ákvörðun um hvort Thomas Möller,
sem hefur setið í gæsluvarðhaldi í
átta vikur, verði ákærður. Thomas
hefur ekki játað að hafa ráðið henni
bana en Grímur Grímsson, yfir-
maður rannsóknarinnar, segir að
lögreglan telji sig þó hafa yfirgnæf-
andi sannanir sem bendi til sektar
hans. Ekki má halda manni lengur
en í tólf vikur í gæsluvarðhaldi án
þess að gefin sé út ákæra. Embætti
héraðssaksóknara hefur því fjórar
vikur til að gefa út ákæru. Thomas á
eftir að sitja í gæsluvarðhaldi í tvær
vikur áður en úrskurðurinn rennur
út, en fastlega má gera ráð fyrir því
að héraðssaksóknari sæki þá um
framlengingu í tvær vikur. | þká
Yfirgnæfandi
sönnunargögn
Embætti héraðssaksóknara hefur
fjórar vikur til að gefa út ákæru.
Internetið Bandaríkjamenn,
Bretar og Frakkar hafa mun meiri
áhuga á Íslandi en öðrum löndum
Norðurlanda, ef marka má leit
þessa fólks á Netinu.
Gunnar Smári Egilsson
gse@frettatiminn.is
Netáhugi hefur hingað til skilað sér í
auknum ferðamannastraumi og því
má gera ráð fyrir að ferðamönnum
fjölgi enn á næstunni.
Bandaríkjamenn hafa leitað mun
oftar að Íslandi á Netinu en hinum
Norðurlöndunum allar vikur frá
því fyrir jól, stundum allt að tvisvar
sinnum oftar en að næsta landi. Eina
undantekningin er í byrjun febrú-
ar, þegar Donald Trump talaði um
ófremdarástand í Svíþjóð. Þá fóru
milljónir Bandaríkjamanna á Netið
að gúggla Svíþjóð.
Íslandsáhuginn er mestur í norð-
vesturríkjunum. Íbúar New York-
-fylkis eru til dæmis sjö sinnum lík-
legri að leita að Íslandi í tengslum við
ferðir en Danmörku og þrisvar sinn-
um líklegri að hafa almennan áhuga
á Íslandi en okkar gömlu herraþjóð.
Í Bretlandi er munurinn enn meiri
og skiptir þá engu hvort skoðað er
England, Skotland eða Wales. Alls
staðar trónir Ísland á toppnum,
langt fyrir ofan hin löndin í almenn-
um áhuga en á svipuðum slóðum og
Noregur, hið mikla ferðamanna-
land, varðandi ferðir.
Ísland er líka það land Norður-
landa sem Kanadamenn leita helst
að og á það við um öll fylki lands-
ins. Sömu sögu er að segja með
Japan. Mikil fjölgun hefur verið á
ferðamönnum frá þessum til Ís-
lands á umliðnum árum og sýnir
það ágætlega hversu sterk tengsl
eru á milli netleitar og ferðalaga.
Hjá Þjóðverjum er Svíþjóð efst á lista
Norðurlanda og Ísland liggur nálægt
botninum, enda hefur hlutfallslega
lítil fjölgun verið á ferðamönnum
frá Þýsklandi á undanförnum árum.
Ekkert lát á Íslandsáhuga
365 fær 1900
milljóna hlut í
Vodafone
Eigendur 365 fá greitt frá Vodafone
með hlutabréfum í fjarskiptafyrir-
tækinu. Ingibjörg Pálmadóttir og
aðrir hluthafar fjölmiðlafyrirtækis-
ins 365 fá um 1900 milljóna króna
hlut í Vodafone í kjölfar kaupa
fyrirtækisins á nær öllum eignum
fyrirtækisins. Þetta kemur fram í
fundargerð frá aðalfundi móður-
félags Vodafone, Fjarskiptum hf.,
sem fram fór í vikunni. Vodafone
er skráð á markað og getur Ingi-
björg, sem er eiginkona Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, selt bréf sín á
markaði eftir atvikum. Hlutabréfin
sem Ingibjörg, og félög á hennar
vegum, eignast í Vodafone nema
um 7.5 prósent af öllu hlutafé fjar-
skiptafyrirtækisins og verður hún
þriðji stærsti hluthafi þess. | ifv
Viðskipti
Ítalir leita helst að Svíþjóð og Spán-
verjar að Noregi, en Ísland klifrar
upp listann í þessum löndum.