Fréttatíminn - 18.03.2017, Blaðsíða 37

Fréttatíminn - 18.03.2017, Blaðsíða 37
HEILSA Laugardagur | 18. mars | 2017 „Ég ákvað að prófa Nutrilenk Active og eftir um það bil mánuð hurfu verkirnir, ég finn ekki til í höndunum og stirðleikinn er mun minni“ ökklinn hefur staðið sig vel og ég hef ekki fundið til í stóru liðunum“. Notar allar Nutrilenk vörurnar Nutrilenk Gold, Active og Gel eiga það öll sameiginlegt að þau hjálpa til við að draga úr stirðleika og verkjum í liðum. Unnið í samstarfi við Artasan Gold getur hjálpað gegn brjóskvefsrýrnun, Act-ive smyr stirða liði og Gelið er kælandi og bólgueyðandi. Þúsundir Íslendinga nota Nutrilenk Nutrilenk Gold og Active eru liðbætiefni sem þarf vart að kynna en þúsundir Íslendinga hafa notað þau gegn eymslum og stirðleika í liðum með góðum árangri daglega og hafa gert í mörg ár. Nutrilenk hefur verið eitt mest selda liðbætiefnið hér á landi lengi og það fjölgar stöðugt í hópi þeirra sem dá- sama virknina og eru tilbúnir að deila því með öðrum. Fyrir skömmu síðan kom á markað Nutrilenk Gel sem gerði þetta að fullkominni þrennu. Gelið er bæði fyrir liði og vöðva og er einnig hægt að nota það eitt og sér. Hannyrðakonur bera því t.d. vel söguna en það getur dregið úr verkjum og aukið lið- leika í fingrunum. Notar allar Nutrilenk vörurnar Bergljót Vilhelmína Jónsdóttir er ein af þeim sem þekkir vel til Nutrilenk varanna. Hún er 64 ára sérkennari, sem situr mikið í starfi sínu og vinnur mikið á tölvu. Hún hefur stundað hesta- mennsku af lífi og sál í 30 ár. „Ég hef tekið Nutrilenk Gold í um það bil 15 ár. En það var eftir að ég lenti í slysi og upp- handleggs- og ökklabrotnaði. Sjúkraþjálfarinn minn ráðlagði mér að taka Nutrilenk Gold því hann taldi að ökklinn myndi endast betur þannig. Þessi ár hef ég lengst af tekið 2 töflur á dag en jók dagskammtinn í 4 töflur fyrir ári síðan. Ég veit ekki hvernig þróunin hefði verið ef ég hefði ekki tekið Nutrilenk Gold en ökklinn hefur staðið sig vel og ég hef ekki fundið til í stóru liðunum.“ Finn ekki til í höndum og stirðleikinn er minni Fyrir 12 árum greindist Bergljót síðan með Sjögrens sjúkdóminn sem er sjálfsofnæmis- og gigt- arsjúkdómur. „Áður en greiningin kom var ég farin að finna töluvert til í höndunum, sérstaklega á vet- urna þegar tölvuvinnan jókst. Það voru bólgur í liðum á fingrum sem mér gekk illa að vinna á. Fyrir um það bil þremur árum fór ég svo að finna fyrir verkjum í hryggnum og þá sér- staklega í hryggsúl- unni (slitgigt). Sam- fara því fann ég fyrir stirðleika í líkamanum. Þetta olli mér mikilli vanlíðan og var ég sífellt þreytt og leið mjög illa. Þá ákvað ég að prófa Nutrilenk Active, 2 töflur á dag. Eftir um það bil mánuð hurfu verkirn- ir, ég finn ekki til í höndun- um og stirðleikinn er mun minni. Fyrir ári prófaði ég að sleppa 2 mánuðum úr og hætti tímabundið að taka Nutrilenk Active. Við það komu verkirn- ir aftur og ég hélt þá áfram að taka Nutrilenk Active.“ Kælandi og bólgueyðandi Nutrilenk Gel Í september síðastliðnum keypti Bergljót svo Nutrilenk kaupaukatilboð þar sem ókeypis túpa af Nutrilenk Geli fylgdi með: „Mér finnst það virka mjög vel á mig því það er kælandi og bólgueyðandi. Til þessa hef ég prófað ýmis bólgueyðandi hita- og kæligel sem og olíur en af þeim finnst mér Nutrilenk gelið virka best á mig. Það er fljótt að virka, dregur úr verkjum eftir notkun og smýgur vel inn í húðina. Gel- ið er t.d. mjög gott eftir heit- an bakstur eða bað.“ „Nutrilenk hefur verið eitt mest seld a liðbætiefnið h ér á landi lengi.“ Sölustaðir: Apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.