Fréttablaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 47
ER FRAMTÍÐ
ÞÍN HJÁ
OKKUR?
Marel er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki með um 5100 starfsmenn, þar af um 600 á Íslandi. Fyrirtækið er brautryðjandi á heimsvísu
í þróun og framleiðslu tækja og hugbúnaðar fyrir matvælaiðnað. Við leggjum ríka áherslu á nýsköpun og framþróun í öllu okkar
starfi. Þess vegna viljum við ráða til okkur öflugt fólk, konur og karla, sem hafa áhuga á að mæta nýjum og spennandi áskorunum
á hverjum degi. Við bjóðum upp á góða vinnuaðstöðu, skilvirka starfsþjálfun, sveigjanlegan vinnutíma, glæsilegt mötuneyti,
framúrskarandi íþróttaaðstöðu og gott félagslíf.
DEILDARSTJÓRI INNVIÐA
Í VÖRUÞRÓUN
Marel óskar eftir að ráða deildarstjóra innviða fyrir vöruþróun
á Íslandi. Starfsmenn innviðadeildar sjá um að þróa og styðja
við tæki og tól til nota í vöruþróun, þróa og viðhalda bestu
starfsvenjum, koma á og efla samvinnu við aðrar deildir og
taka þátt í alþjóðlegum samræmingarverkefnum.
Starfssvið:
• Deildarstjóri innviða heyrir undir vöruþróunarstjóra og ber ábyrgð á
þremur teymum: framleiðslutækni-, hugbúnaðar- og
raftækniteymi, gagna- og handbókateymi
• Ná fram og skilja þarfir vöruþróunarteyma til að byggja upp faglegt
sérþekkingarumhverfi
• Vera í forystuhlutverki fyrir teymið og stuðla að góðu vinnuumhverfi
og skipulagi
Hæfniskröfur:
• 5 ára starfsreynsla af því að leiða teymi með góðum árangri
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Framúrskarandi samskiptafærni
• Búa yfir skipulagshæfni, hugmyndaauðgi og eiga auðvelt með að
aðlagast breytingum
• Jákvætt hugarfar og metnaður til að stuðla að framförum
LAUNAFULLTRÚI
Marel leitar að talnaglöggum og nákvæmum einstaklingi með
reynslu af launabókhaldi sem býr yfir góðri samskiptafærni.
Starfið krefst mikilla samskipta við starfsmenn og stjórnendur
fyrirtækisins.
Starfssvið:
• Launavinnsla og frágangur launa
• Launaröðun, launagreiðslur og utanumhald tímaskráninga
• Upplýsingagjöf varðandi launavinnslu og kjaratengd mál
• Aðstoð og ráðgjöf í launamálum
• Þátttaka í gerð launaáætlana
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla og þekking af launavinnslu, kjarasamningum og lögum
og réttindum
• Þekking af launakerfum t.d. H-3 eða sambærilegu
• Góð kunnátta og færni í Excel
• Samskiptalipurð og sveigjanleiki
Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar. Sótt er um rafrænt á heimasíðu Marel, marel.is/störf.
SÉRFRÆÐINGUR
Í ÚTFLUTNINGI
Marel leitar að einstaklingi til liðs við öflugt teymi sérfræðinga
í inn- og útflutningi í alþjóðlegu umhverfi. Starfið felst í að
skipuleggja flutning milli landa þar sem unnið er í nánum
samskiptum við innri og ytri viðskiptavini Marel.
Starfssvið:
• Undirbúningur og vinnsla útflutningsskjala
• Gerð pökkunarlista
• Greiðslur af sköttum og gjöldum
• Tilboðsgerð, samþykkt reikninga og tollamál
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi og góð enskukunnátta er skilyrði
• Reynsla af útflutningi skilyrði
• Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
• Hæfni og vilji til að starfa í alþjóðlegu teymi
• Reynsla af SAP er kostur
SÉRFRÆÐINGUR
Í INNKAUPUM
Marel leitar eftir sérfræðingi í innkaupum (e. strategic
purchaser) til þess að sinna innkaupum og aðfangastýringu
fyrir þrjá framleiðslustaði okkar á Norðurlöndum. Starfið felur
auk þess í sér að vinna að umbótum á ferlum og þátttöku í
umbótaverkefnum.
Starfssvið:
• Gerð alþjóðlegra og svæðisbundinna samninga við framleiðendur
og birgja
• Samskipti við birgja og þátttaka í samningaviðræðum
• Þróun viðskiptasambanda við stærri birgja fyrirtækisins
• Þátttaka í þróunar- og umbótaverkefnum
Hæfniskröfur:
• Þekking og reynsla af innkaupum og/eða aðfangastýringu er skilyrði
• Hæfni og vilji til að starfa í alþjóðlegu teymi
• Geta til þess að setja skýr markmið og klára verkefni tímalega
• Haldgóð þekking og reynsla af notkun tölvukerfa s.s. DAX og SAP
• Framúrskarandi enskukunnátta (e. business English)
Umsóknarfrestur er til og með 28. janúar fyrir
sérfræðing í innkaupum.
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
D
8
-9
6
1
0
1
E
D
8
-9
4
D
4
1
E
D
8
-9
3
9
8
1
E
D
8
-9
2
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K