Fréttablaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 96
Íþróttasaga Íslendinga hefur að geyma frásagnir af sætum sigrum jafnt sem sárum von­brigðum. Öðru hvoru hafa íslenskir íþróttamenn unnið afrek á heimsmælikvarða og sagan verður enn glæstari ef gripið er til höfðatölureglunnar sívinsælu. En það eru ekki síður mörg dæmin þar sem velta má því fyrir sér hvað hefði getað gerst – allar hetjudáðirnar sem hefðu getað unnist ef tilviljanir hefðu hagað málum örlítið öðruvísi eða ein­ stakar ákvarðanir orðið á annan veg. Æsilegasta sagan gerist oft í þáskil­ dagatíð. Vetrarólympíuleikar standa nú fyrir dyrum í Suður­Kóreu. Ísland hefur átt keppendur á öllum vetrar­ ólympíuleikum frá árinu 1948, ef frá eru taldir leikarnir árið 1972 sem fram fóru í Sapporo í Japan. Enn oftar hafa Íslendingar þó verið með á sumar­ leikum eða samfleytt frá Berlínarleik­ unum árið 1936. Þar á undan höfðu íslenskir íþrótta­ menn komið við sögu á þrennum leikum. Í Lundúnum árið 1908 keppti Jóhannes Jósefsson, sem síðar var kenndur við Hótel Borg, í grísk­róm­ verskri glímu. Hann var þá í hópi glímumanna sem hugðust kynna gestum Ólympíuleikanna íslenska glímu. Fjórum árum síðar sendu Íslend­ ingar aftur glímuflokk til sýninga, þegar Ólympíuleikarnir voru haldnir í Stokkhólmi. Í það skiptið spreytti Sigurjón Pétursson frá Álafossi sig á grísk­rómversku glímunni, en einnig tók Jón Halldórsson þátt í 200 metra hlaupi. Hafa Íslendingar ætíð litið á þá Jóhannes, Sigurjón og Jón sem fyrstu keppendur Íslands á Ólympíuleikum, þótt væntanlega séu þeir flokkaðir sem Danir í bókum Alþjóðaólympíu­ nefndarinnar. Undir röngum fána Árið 1920 voru Ólympíuleikarnir haldnir í belgísku borginni Ant­ werpen. Þótt Ísland væri orðið fullvalda ríki, var enn ekki búið að koma á laggirnar fullgildri íslenskri Ólympíu nefnd. Fyrir vikið þurfti hlauparinn Jón Kaldal að sætta sig við að keppa undir merkjum Dan­ merkur í 5.000 metra hlaupi. Náði Jón sér engan veginn á strik og var hann þess fullviss að árangurinn hefði orðið betri ef honum hefði boðist að keppa undir fána Íslands. Samúel Thorsteinsson var í leikmannahópi danska knattspyrnuliðsins á leik­ unum, en kom ekki við sögu. Þá var hópur Vestur­Íslendinga í sigursveit Kanada í ísknattleik. Ef horft er fram hjá þessum óopin­ beru fulltrúum Íslands á Antwerpen­ leikunum, létu Íslendingar ekkert til sín taka í Ólympíusögu þriðja áratug­ arins. Litlu mátti þó muna að þróunin hefði orðið allt önnur. Litlar tilviljanir og umdeildar ákvarðanir höfðu þar mikið að segja. Sem fyrr segir sendu Íslendingar glímumenn til Lundúna og Stokk­ hólms árin 1908 og 1912. Vegna vel­ vilja Svía, fékkst glíman sýnd á sjálfum Ólympíuleikvangnum og var greinin ásamt hafnabolta önnur aðeins tveggja opinberra sýningargreina leikanna. Í raun er það magnað að sérviskuleg fangbragðaíþrótt, sem einungis var iðkuð af Íslendingum, öðlaðist slíkan sess og verður ekki skilið nema sem sérstakt vinarbragð gestgjafanna. Íslendingar voru hins vegar höfð­ ingjadjarfir og töldu í raun sjálfsagt að glíman yrði alheimsíþrótt, enda öðrum glímuafbrigðum fegurri og tignarlegri að þeirra mati. Glímufor­ kólfum Íslands tókst meira að segja að koma því til leiðar að keppt væri um glímubikar í Stokkhólmi, sem skyldi verða farandgripur á komandi leikum. Vegna fyrri heimsstyrjaldarinnar féllu Ólympíuleikarnir 1916 niður, en fjórum árum síðar tóku Íslend­ ingar þráðinn upp að nýju. Þeir settu sig í samband við Alþjóðaólympíu­ nefndina, fengu vilyrði fyrir þátttöku og staðfestingu á að glíman yrði á dagskrá í Antwerpen og keppt um bikarinn góða. Má ljóst vera að stjórn­ endurnir hafa talið sig bundna af lof­ orðinu átta árum fyrr. Í Reykjavík hófst undirbúningur fyrir þátttöku, leitað var til Alþingis eftir ferðastyrk og farið var að huga að því að velja glímumenn til að halda hróðri landsins á lofti í Belgíu. Áður en til þess kom bárust hins vegar fregnir af fyrirhugaðri heimsókn Kristjáns tíunda konungs Íslands og Danmerk­ ur sumarið 1920. Undirbúningsnefnd­ in óskaði eftir að konungi yrði sýnd glíma, helst á Þingvöllum. Þá voru góð ráð dýr. Ekki þótti sæmandi að bjóða konungi upp á annað en bestu glímu­ menn þjóðarinnar og heimsóknin rækist á við Ólympíuleikana. Furðuleg ákvörðun Íþróttaforystan ákvað að taka konunginn fram yfir utanförina. Alþjóðaólympíunefndinni var til­ kynnt að glímukappar Íslands væru vant við látnir og að ekkert gæti orðið af sýningunni. Eftir á að hyggja virðist þessi ákvörðun óskiljanleg. Íslenskir glímumenn höfðu látið sig dreyma um að kynna heiminum íþrótt sína og voru komnir með fótinn milli stafs og hurðar í dyragátt sjálfra Ólympíu­ leikanna. Ef keppt hefði verið um glímubikarinn á 1920­leikunum má ætla að það sama hefði gerst í París fjórum árum síðar. Hver veit nema hinn fjarstæðukenndi draumur um að glíman yrði fullgild Ólympíugrein hefði getað orðið að veruleika? En á það reyndi aldrei. Glímu­ menn drógu sig í hlé – til þess að sýna sig fyrir kónginum (sem hefði hvort sem er aldrei séð neinn mun á afburðaglímumönnum og minni spá­ mönnum). Alþjóðaólympíunefndin var laus af önglinum og glímubikar­ inn endaði á Ólympíusafninu í Sviss. Og til að bíta höfuðið af skömminni, datt Kristján kóngur af hestbaki, meiddist á hné og frestaði Íslands­ ferðinni til ársins 1921. Mikill hugur var í íslenskum íþróttamönnum að láta til sín taka á Parísarleikunum 1924. En eftir því sem leikarnir færðust nær var sem Íþróttasambandið missti móðinn. Knattspyrnumenn voru hins vegar fullir sjálfstrausts. Eftir að hafa tekið á móti fyrsta erlenda kappliðinu sumarið 1919 töldu þeir tímabært að huga að keppnisferð til útlanda. Stofnuð var sérstök Ólympíunefnd knattspyrnumanna árið 1922 með það að markmiði að safna fyrir Parísar ferðinni. Peningasöfnunin gekk vel og munaði þar mest um vinsæla upp­ setningu á Skugga­Sveini, með fót­ boltaköppum í öllum hlutverkum. Þá bauð nefndin skoskum knattspyrnu­ flokki til Reykjavíkur og græddi vel á leikjunum. En þótt fjármálahliðin liti ágætlega út, reyndist íþróttapólitíkin þyngri í vöfum. Sífelldir árekstrar voru á milli ÍSÍ og Knattspyrnuráðs Reykjavíkur. Ólympíunefnd Íslands var stofnuð árið 1921 og þar á bæ var litið svo á að knattspyrnumenn væru komnir langt út fyrir valdsvið sitt. Vegna þessa ágreinings varð ekk­ ert úr því að Ísland tefldi fram sínu fyrsta fótboltalandsliði í París sum­ arið 1924, 22 árum áður en íslenska landsliðið þreytti frumraun sína á Melavellinum í Reykjavík. Ísland hefði þannig brotið blað í knatt­ spyrnusögunni með því að leika sinn fyrsta leik á heimsmeistaramóti – en FIFA hafði lýst því yfir að sigurvegarar Ólympíukeppninnar myndu jafn­ framt teljast fyrstu heimsmeistarar sögunnar. Vart er hægt að hugsa þá hugsun til enda hvílíka útreið íslensku fótbolta­ mennirnir hefðu hlotið í sínum fyrsta leik á grasvelli, á móti sumum bestu leikmönnum síns tíma. Hætt er við að 14:2 tapið alræmda hefði bliknað við hliðina á þeirri slátrun sem óhjá­ kvæmilega hefði átt sér stað í fyrsta og eina leik Íslands á Parísarleik­ unum, en um útsláttarkeppni var að ræða. Glötuð gullverðlaun? Segja má að Íslendingar hafi sloppið með skrekkinn þegar hætt var við að senda fótboltalandslið til Par­ ísar 1924. Á hinn bóginn velta ýmsir íþróttaáhugamenn því fyrir sér hvað hefði getað gerst á Amsterdamleik­ unum fjórum árum síðar ef íþrótta­ forystan hefði tekið aðra ákvörðun á afdrifaríku augnabliki. Á seinni hluta þriðja áratugar­ ins var mikill vöxtur í fimleikalífi Íslendinga. Einkum hafði Íþrótta­ félag Reykjavíkur á að skipa öflugum kvennaflokki í fimleikum. Flokkur­ inn hélt í sýningarferð um Norður­ löndin árið 1927 og þótti slík hóp­ ferð íþróttakvenna mikil tíðindi á þeim árum. Fimleikastúlkurnar úr ÍR fengu hvarvetna lof og prís í ferðinni og varð því úr að ráðast í enn lengra ferðalag árið eftir. Franska fimleikasambandið fagnaði 50 ára afmæli sínu með risa­ stórri fimleikahátíð í Calais sum­ arið 1928. Þangað mætti fimleika­ fólk frá tugum landa og íbúafjöldi borgarinnar nálega tvöfaldaðist, slíkur var áhorfendastraumurinn. Í hugum fimleikafólks var hátíðin í Calais einhver stærsti viðburður í sögu íþróttarinnar og höfðu stjórn­ endur ÍR mikinn hug á að senda lið sitt til leiks. En þetta sama sumar voru Ólympíuleikar í Amsterdam, þar sem hópfimleikar kvenna voru í fyrsta sinn á dagskránni. ÍR­ingar sóttu um styrk frá Alþingi til að senda lið sitt til keppni á Ólympíuleikunum. Afgreiðsla þings­ ins dróst hins vegar og þegar styrk­ urinn fékkst að lokum var íslenska Ólympíunefndin búin að tilkynna mótshöldurum að enginn keppnis­ flokkur kæmi frá Íslandi. Ekki var talin ástæða til að breyta þessari ákvörðun þrátt fyrir fjárveitinguna, enda væri í raun meira grætt á að taka þátt í hátíðinni í Calais. Skemmst er frá því að segja að íslensku fimleikastúlkurnar voru ausnar lofi fyrir frammistöðu sína í Frakklandi og ekki síður í Lund­ únum, þar sem þær höfðu við­ dvöl á leiðinni heim. Á leikunum í Amsterdam kepptu hins vegar fimm stúlknaflokkar, þar sem lið heimakvenna þótti í nokkrum sér­ flokki. Hver veit nema örlítið skjót­ ari afgreiðsla þingsins hefði orðið til þess að Íslendingar hefðu teflt fram fimleikasveit og jafnvel unnið til verðlauna, 28 árum á undan Vil­ hjálmi Einarssyni? Íslenskir glímukappar sýna á Ólympíuleikunum í Amsterdam árið 1912. Mynd/Getty Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrif- ar um íþróttaafrek sem aldrei urðu. Glíman við ef og hefði Hitaðu bílinn með fjarstýringu – Webasto bílahitari -8° -6° -7° 0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 3 27.10.17 14:2 21° Tilfinning BÍLASMIÐURINN HF BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI: 567-2330 www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is 2 7 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r32 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 2 7 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 0 F B 1 2 0 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E D 8 -8 7 4 0 1 E D 8 -8 6 0 4 1 E D 8 -8 4 C 8 1 E D 8 -8 3 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 2 0 s _ 2 6 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.