Fréttablaðið - 27.01.2018, Síða 102
Brandarar
Konráð horfði hugsi á
gátuna. „Hverskonar
gáta er nú þetta?“
„Örugglega eitthvað til
að rugla mann og plata,“
sagði Kata snúðug eins
og venjulega. „Alltaf
verið að plata mann,“
bætti hún við. Lísaloppa
las leiðbeiningarnar
fyrir gátuna. „Þetta er
orðagáta og hér stendur,“
las hún. Búið er að rugla
stöfunum í nöfnum
nokkurra fuglategunda í
hverri línu.
Ef þú getur raðað þeim
rétt í kassana, mynda
sta
rnir í hringjunum
nafn fugls ef lesið er
niður.
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
286
Getur þú
ráðið orðaru
glið
og séð hvað
a fuglar
þetta eru?
?
?
?
ÓLRMU
LYISMLR
FLÁT
VMURÁ
FRHNA
Lausn á gátunni
VALUR?
Henrik Hermannsson sigraði í
ljóðasamkeppni grunnskóla Kópa-
vogs með ljóði sínu Myrkrið sem nú
hefur verið dreift um bæinn á vegg-
spjöldum og bókamerkjum, ásamt
ljóðum tveggja stúlkna sem urðu í
2. og 3. sæti.
Skyldi Hermann gera mikið að því
að yrkja? Nei, þetta ljóð var bara
skólaverkefni.
Nú segir það mikla sögu. Er hún
byggð á eigin upplifun? Nei, þetta
var bara eitthvað sem mér datt í
hug. Ég sá þetta bara fyrir mér.
Hvað fékkstu í verðlaun? Ég fékk
bækur, rós og peninga.
Í hverju ertu bestur í skólanum?
Ég er örugglega bestur í íslensku en
mér finnst stærðfræðin skemmti-
legri. Svo er ég líka góður í ensku og
dönsku.
Hver eru helstu áhugamálin?
Fótbolti. Ég æfi með Breiðabliki, í
4. flokki, er miðjumaður í liðinu.
Hefurðu eitthvað ferðast? Já, bæði
innanlands og til útlanda.
Hver er skemmtilegasta ferð sem
þú hefur farið í? Ég held þegar ég
fór til Englands núna um daginn,
við fórum á tvo fótboltaleiki með
uppáhaldsliðinu mínu, Manchester
United, móti Southampton og Ever-
ton, það gerði jafntefli í öðrum og
vann hinn.
Af hverju heldurðu með Man
chester United? Bróðir minn byrj-
aði að halda með því.
Hvernig leikur þú þér helst? Við
vinirnir erum mikið úti í bolta, bæði
fótbolta og körfubolta.
Hefurðu einhvern tíma verið í
hættu staddur? Kannski pínu. Ég
var í útlöndum og við vorum að fara
í lest, þá var geitungur að sveima
akkúrat í dyrunum og ég þorði ekki
inn en hurðin var byrjuð að lokast
og pabbi tosaði mig inn. Svo vorum
við einu sinni veðurteppt uppi á
Holtavörðuheiði í brjáluðum snjó-
byl. En það komu björgunarsveitir
og ferjuðu okkur og fleira fólk í
Reykjaskóla í Hrútafirði.
Farið þið stundum norður? Já, ég
á ömmur og afa á Sauðárkróki og
nágrenni, við förum oft að heilsa
upp á þau. Önnur amma mín á
heima á Meyjarlandi á Reykja-
strönd. Hún á kindur, geitur og
hesta.
Fékk bækur,
rós og peninga
Henrik á auðvelt með að sjá hluti fyrir sér og koma þeim í orð. Svo er fót-
boltinn mikið áhugamál. Fréttablaðið/VilHelm
Myrkrið
Það er dimmt og ég er hræddur
ég veit ekki hvert ég er að fara eða hvar ég á heima.
Vindurinn blæs á móti mér og það rignir
mér finnst ég vera einhver annar.
Ég hleyp eins hratt og ég get.
Ég heyri öskur og hleyp enn hraðar
inn í myrkrið.
Ég hleyp bara eitthvert í von um að ég komist heim.
Ég er þreyttur og mig langar að sofna
en ég get það ekki og verð að halda áfram
en ég er rennblautur og leggst á jörðina.
Ég gefst upp og hætti að reyna
ég vissi að það var enginn tilgangur að reyna.
En í sama bragði sá ég spegilmynd mína
ég spyr sjálfan mig hvað get ég gert?
Ég ákvað að ég ætlaði ekki að gefast upp
ég stóð upp og hljóp eins hratt og ég gat.
Ég sá ljós þarna átti ég heima.
Henrik Hermannsson
Einu sinni var
maður úti að ganga með
tannbursta í bandi. Þá kom strákur
glottandi til hans og sagði: Hvað
heitir hundurinn þinn? – Ha? Sérðu
ekki að þetta er tannbursti? svaraði
maðurinn. Um leið og strákurinn
var farinn sneri maðurinn sér að
tannburstanum og sagði: – Þarna
plötuðum við hann, Snati!
Pínulítill kúreki kom askvaðandi
inn á krá í villta vestrinu, greini
lega trylltur af reiði. „Hver málaði
hestinn minn grænan hérna
fyrir utan?“ öskraði hann. Það ríkti
grafarþögn þar til risastór og mikill
kúreki stóð upp og svaraði dimmri
röddu: „Það var ég.“ Litli kúrekinn
horfði skelfdur upp eftir krafta
karlinum og sagði mjóróma: „Það er
nefnilega það, ég vildi bara láta þig
vita að hann er orðinn þurr.“
Ég var í útlöndum
og við vorum að
Fara í lest, þá var geitung-
ur að sveima akkúrat í
dyrunum og Ég þorði ekki
inn en hurðin var byrjuð
að lokast og pabbi tosaði
mig inn
2 7 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
krakkar
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
D
8
-5
A
D
0
1
E
D
8
-5
9
9
4
1
E
D
8
-5
8
5
8
1
E
D
8
-5
7
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K