Ófeigur - 01.03.1908, Blaðsíða 10
10
í heildinni óhrekjandi sannindi, því held eg föstu,
og það hefir A. K. ekki reynt að hrekja. Nokkur
ónákvæmni í einstökum tölum hefir í þessu tilliti
ekki mikla þýðingu, og allra sízt um lengri tímabil,
enda eru engar hagskýrslur bygðar á nákvæmlega
réttum undirstöðutölum, því að þær er ekki unt að fá,
um það þarf ekki annað en að benda á búnaðar-
og tíundarskýrslurnar, og yfir höfuð allar framtals-
skýrslur. Eigi að síður eru af þeim dregin margs-
konar hagfræðisleg sannindi, er hafa afar-mikla þýð-
ingu, og reynslan hefir sýnt, að þessum almennu
hagfræðisályktunum má fyllilega treysta, þrátt fyrir
ónákvæmni í einstökum tölum.
Ein slík almenn sannindi dró eg út úr verzlun-
arskýrslunum; þau sannindi, að óhóflega dýrt væri
fyrir almenning, að láta marga þróttlausa og þekk-
ingarsnauða smákaupmenn reka viðskiftin við aðrar
þjóðir með fratnleiðslu vora, eða hafa aðdrættina á
hendi.
Pessum meginsannindum hefir A. K. ekki hagg-
að hið minsta, þrátt fyrir eltingaleik sinn við ein-
stakar tölur, stóryrði sín og brigzlyrði sín til mín.
Þetta veit eg að allir skynsamir lesendur okkar sjá,
og þessvegna er heimskulegt að deila við A. K. um
það, hvort starfsemi og «atvinna» Húsavíkurkaup-
mannanna kostar Pingeyinga þúsundinu meira eða
minnna, úr því að það er fullsannað, að það hleypur
á tugum þúsunda, samanborið við það sem gæti ver-
ið, ef fullkomin hagsýni væri við höfð, og engir kaup-
menn notaðir. Svona veit eg að skynsamir menn